Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Page 73
Guðrún Bjartmarsdóttir Ljúflingar og fleira fólk Um formgerð, hugmyndafræði og hlutverk íslenskra huldufólkssagna í barnæsku minni í norðlenskri sveit var ég svo heppin að þekkja einhvern síðasta fulltrúa þeirrar munnlegu sagnahefðar sem nú er ekki lengur til í landinu. f>að var kona á níræðisaldri, karlæg að mestu en óþrjótandi brunnur sagna og ævintýra sem sum hver munu nú öllum gleymd. Þau hafði hún m.a. numið af móður sinni sem á stundum hélt lífinu í börnunum með því að fara á milli bæja og segja sögur. Við krakkarnir þreyttumst seint á því að sitja kringum rúm gömlu konunn- ar og súpa í okkur ævintýrin, sum þeirra lærði ég og hélt áfram að segja systkinum mínum þegar sú gamla var öll. Ekkert þeirra er mér þó jafn minnisstætt og ein bernskuminning hennar sjálfrar sem ég skal reyna að rekja hér eins og hún lifir í mínu minni. Kotið var orðið matarlaust og einhver hátíð í vændum, líklega páskar. Móðirin hafði lagt í leiðangur niður í sveit að reyna að kaupa börnum sínum matarbita fyrir sögur, gangandi með sleðakríli í eft- irdragi til að flyta fenginn heim. Svo brast á stórhríð og það dróst að hún kæmi aftur. Börnin kúrðu í einu og sama fletinu til að halda á sér hita og verjast myrkfælninni, kofarnir nánast fenntir í kaf. Loks heyrðist eitthvert krafs og brölt á þekjunni og skelfingin helltist yfir þau, enda ísbirnir og draugar ríðandi húsum jafn nálægir börnum þeirra tíma og helsprengjan nú til dags. Þá var snjónum sópað ofan af strompinum og rödd móðurinnar kallaði niður til þeirra, hún hafði þá haft sig heim með hátíðamatinn á sleðanum. Ekki veit ég hvort þessi saga er nákvæmlega sannleikanum sam- kvæm, sennilega er hún það ekki, frekar en aðrar sagnir úr munnlegri geymd. Það skiptir heldur ekki öllu máli, heldur hitt, að hún opnaði krakkanum mér óvænta og hrikalega sýn inn í það líf sem var fátækra barna og einstæðrar móður á öldinni sem leið. Ég trúi að kynni mín af þessari gömlu sagnakonu og veröld hennar séu ein ástæða þess að ég hef lengi rennt hýru auga til þjóðsagnanna og 319
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.