Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Page 80

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Page 80
Tímarit Máls og menningar sem oft voru víst skorin við nögl. Eini möguleiki þeirra til verulegra breytinga var að giftast upp fyrir sig. Glæsilegur kvenbúningur hefur því hér eðli töfragripsins í ævintýrunum sem dugað gat eigandanum til að ná í kóngsdótturina og ríkið. Yfirnáttúrlegi þátturinn, þ.e. afskipti huldufólksins, þjónar líka þeim tilgangi að fletta ofan af hinu rétta innræti vondu kvennanna og koma á svolitlu réttlæti í veröldinni. En þar er stigsmunur á. Hvorki heimasæt- urnar, mæður né systur góðu stúlknanna ganga svo langt að leggjast með huldumanninum, einungis húsfreyjurnar. Þar í gæti falist ádeila á tvöfalt siðgæði húsbændanna sem fylgdust grannt með hegðun vinnu- fólks síns og voru ósparir á refsingarnar meðan þeir sjálfir leyfðu sér hitt og þetta. Það eru líka húsfreyjurnar að viðbættri einni vondri móður sem fá þyngstu refsinguna, kvalafullan dauðdaga. Hér hafa því kúgaðar og þrautpíndar vinnukonur og barin börn e.t.v. getað fengið ofurlitla útrás fyrir beiskju sína og hefnigirni í garð kvalara sinna. Mér finnst einboðið að líta á mismunandi útgáfur sögunnar í ljósi þessa margfalda hlutverks. Sögumenn eða konur hafa vafalaust gert mismunandi mikið úr mismunandi atriðum eftir því hvað þeim sjálfum lá á hjarta og hverjir áheyrendur voru. Þeir hafa svo aftur dregið lærdóm af henni eða notið hennar hver með sínum hætti. Amorsleikir í álfheimum Hér má telja a.m.k. 12 sögur, flestar fremur stuttar og einfaldar að gerð, byggðar utanum eina prófraun sem alltaf er sama eðlis. Aðalpersónur eru tveir karlmenn: eldri og yngri, stundum faðir og sonur, eða æðri og óæðri, langoftast prestur og ráðsmaður hans eða vinnumaður. Sá eldri eða æðri á vanda til að hverfa að heiman við ýmis tækifæri, einkum á helgum, enginn veit hvert, en stundum er haldið að hann sé með álfum. Sá yngri eða óæðri sækir fast að fá að koma með og er að lokum veitt það með því skilyrði að hann geri í öllu eins og hinn eða allt það sem krafist verði af honum. Svo er haldið í álfheima, klett eða hól, þar sem fyrir eru tvær konur, eldri og yngri, oft mæðgur. Þær bjóða upp á ríkmannlegar veitingar og síðan gengur eldra parið í eina sæng og fer vel á með þeim. Nýliðanum er ætlað að hvíla hjá þeirri yngri en hann neitar þverlega, hrindir henni frá sér og slær hana þegar hún leitar á hann, reynist áhugalaus eða getulaus þegar upp í er komið eða tekst a.m.k. ekki að gera hana ánægða. Afleiðingin verður mikil reiði beggja kvenna og oftast álög, hann verður stelsjúkur, versti kvennabósi eða 326
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.