Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Side 83

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1982, Side 83
Ljúflingar og fleira fólk þær til þess, breyti hins vegar eðli athafnarinnar og þótt þær á brúðkaupsnóttina upplifi maka sinn sem ófreskju eða villidýr eigi hann fyrir sér að breytast í prins. Vafalaust hefur hjónabandið líka sitt að segja í þessu sambandi, það sem nýtur blessunar guðs og manna innan þess, er skepnuskapur undir öðrum kringumstæðum. Hugsanlega blandast slíkar siðgæðishugmynd- ir inn í okkar sögur líka, huldukonan er auðvitað fulltrúi frjálsra ásta eða öllu heldur kynlífs án ástar eða undanfarandi kynningar (það gæti kannski verið öðruvísi hjá hinu parinu). Hins vegar má gera ráð fyrir að einhverjir hinna eldri og reyndari séu í hjónabandi í mannheimum og þarmeð að drýgja hór í álfheimum, en vinnumenn og unglingar frekar lausir og liðugir. Það virðist þó ekkert atriði hér, heldur er það aldur og samfélagsstaða karlanna tveggja sem gerir gæfumuninn. A.m.k. 5 prest- ar og einn prestssonur eru í hlutverki fararstjóranna og tveir feður taka með sér son sinn. Alls staðar eru það þeir sem yngri eru og neðar í mannfélagsstiganum sem ekki ráða við aðstæðurnar. Athyglisvert er líka að jafnvel þar sem báðir karlarnir eru ungir er ástkona þess eldri samt nokkuð gömul, oft móðir hinnar. I því gæti falist sá vísdómur að frekar sé von að þetta lukkist með eldri og lífsreyndari konu. Stingur það óneitanlega í stúf við hugmyndafræði rómantíkurinnar sem er ríkjandi í opinberum bókmenntum aldarinnar. Þessar sögur hafa vafalaust kitlað tilfinningar ýmissa áheyrenda, enda aðstæður í upphafi dæmigerðar fyrir draumóra kynhungraðra karl- manna: fúsar og fallegar konur í næsta hól, óbundnar af siðgæðislög- málum mannheima. En í stað hinnar hamingjusömu lausnar ævintýris- ins þar sem losnar um allar hömlur verða þær yfirsterkari hér, unga manninn brestur kjark eða mistekst og megináhersla er lögð á illar afleiðingar þess. I stað þess að efla bjartsýni og losa menn við bælingar virðist þessi saga því fremur ala á óttanum, draga úr mönnum kjarkinn og innræta þeim þolinmæði. Þeir kjarkmestu eða háttsettu (sbr. prests- soninn) hafa kannski getað skynjað hana sem hvatningu, möguleikinn er vissulega fyrir hendi, persónugerður í eldri manninum. Fleiri hafa þó líklega dregið af þessu þann lærdóm að ungum mönnum og óreyndum, (og þar að auki fátækum) sé hollast að halda sig heima og forðast alla ævintýraleit. A.m.k. eru ótímabærar kynlífstilraunir stórvarasamar, slíkt er aðeins fyrir þá eldri eða efnaðri. Raunveruleikinn að baki er staðnað og stéttskipt samfélag, þar sem hvers kyns rótleysi og ævintýraþrá er illa séð og bælingin einn mikil- 329
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.