Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 65

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Side 65
Hugmyndafrœði Sigurðar Nordal falla inn í kveðskapartísku sem ekki er á villugötum (eins og t. d. rímurnar voru) (263). Tilfinning viðtakenda fyrir hinu fagurfræðilega er forsenda fyrir lífi listarinnar. Sigurður telur það mælikvarða á verkið að hvaða marki það geti kallað fram fagurfræðilega reynslu hjá öðrum sem samsvari reynslu höfundarins (259), en hann telur þó líka að lesandi geti fundið skáld- leg verðmæti í lélegu verki og þá gramist hve þau eru skemmd og skæld (26°)' Sigurður Nordal byrjaði feril sinn sem skáld.6 Á 3. áratugnum skrifaði hann ritdóma um samtímaverk og sneri sér loks aðallega að bókmenntasögu og fornbókmenntum. Að mínu viti kemur fram í ritgerðinni „Viljinn og verkið“ hvernig hann leitast við að finna samræmi milli annars vegar skilgreiningar sinnar á skáldsnillingnum og skáldskap sem dulúðugu fyrir- bæri og hins vegar hinum „fræðilega“ skilningi á bókmenntum. Þannig nefnir hann t. d. þá skoðun Wildes að bókmenntagagnrýni geti haft eigið bókmenntagildi. Samkvæmt innsæisheimspekinni (sbr. aftar) var ekki hægt að skýra skáldverk vísindalegá, aðeins skilja þau með hjálp innsæis. Gera má ráð fyrir að skv. því hafi snillingur getað skilið sérhvert verk tafarlaust og að fullu, en sá sem ekki hafði hinar meðfæddu gáfur átti þá enga von fagur- fræðilegrar reynslu. Sigurður hlýtur að hafa viljað komast hjá slíkum niðurstöðum, sem hefðu gert kennslustarf hans að markleysu, enda þótt hann aðhyllist „nýju“ rómantíkina; hann leggur líka í umræddri grein áherslu á að skáldin verði að sökkva sér í bókmenntir og listir og að innblásturinn einn saman dugi skammt.7 Ritdeila Kvarans og Nordals Á árunum 1925—27 deildu þeir Einar H. Kvaran og Sigurður Nordal í tímaritsgreinum um fagurfræði og siðfræði. Ritdeilan var síðar prentuð í Skiptar skoðanir (1960). Hún skiptir miklu máli þegar rætt er um hug- myndafræði Sigurðar; upphaf hennar var ritgerð hans um rifhöfundarferil Einars þar sem segir að bækur hans að undanförnu hafi verið allt of einhliða boðunarbækur, þar séu persónur skoðanabrúður í stað þess að þær fái að lifa sínu eigin lífi og þróast skv. eðlilegum lögmálum sínum. Það var í sjálfu sér alveg rétt hjá Sigurði að verk Einars eftir heimsstyrjöldina voru dálítið gölluð, persónurnar meðal annars of augljós holdtekja dyggða og lasta. En hitt er meira vafamál hvernig gæða á persónur í skáldskap slíku lífi að þær þróist sjálfstætt án tillits til viðhorfa höfundarins. Sigurður vill að höfund- urinn sýni persónurnar í stað þess að segja frá þeim, og eins og Georg Lukács og ýmsir fleiri hafnar hans „tendensinum", þ. e. a. s. boðun í skáldskap sem er ekki nægilega vaxin inn í hann heldur klínt utan á hann.K 55
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.