Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 106

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 106
Tímarit Máls og menningar blaður ritfanta, skáldsögur eftir daga skáldsögunnar? Eg hef ekki hugmynd um það. Allt og sumt sem ég get fullyrt er að skáldsagan getur ekki lifað í sátt við ríkjandi hugsunarhátt: ef hana fýsir ennþá að halda áfram rannsókn á því sem enn er órannsakað, „fara fram“ sem skáldsögu, er það einvörð- ungu gerlegt gegn „framförum“ heimsins. Framúrstefnumenn sáu hlutina í öðru ljósi. Þeir voru gagnteknir þeim metnaði að vera í sátt við framtíðina. Listamenn af þeim skóla sköpuðu verk sem vissulega voru voguð, erfið, örgandi, æpt niður — en þeir sköpuðu þau í fullvissu þess að andi tímans væri þeim meðmæltur og á morgun nytu þeir sannmælis. Forðum tíð var það einnig afstaða mín að líta á framtíðina sem eina hæfa dómarann yfir verkum okkar. Og mér fannst þessi hugsunarháttur lofsverð- ur þar til ég gerði mér grein fyrir því að smjaður fyrir framtíðinni er stækari íhaldssemi en hin fyrri; á lítilsigldan hátt var verið að gera hosur sínar grænar fyrir hinum sterkari. Því framtíðin ber nútíðina jafnan ofurliði. Hún mun koma og dæma okkur, að sjálfsögðu af fullkomnu getuleysi. En úr því ég aðhyllist ekki einusinni framtíðina, hverju er ég þá skuld- bundinn: Guði? föðurlandinu? þjóðinni? einstaklingnum? Svar mitt er álíka fáránlegt og það er einlægt: ég finn mig ekki vandabund- inn neinu nema hinum ófrægða arfi Cervantesar. Pétur Gunnarsson þýddi Þessi hugvekja Milan Kundera er að stofni til fyrirlestur sem hann hélt við háskólann í Michigan í apríl síðastliðnum þar sem hann tók við nafnbót heiðursdoktors. Hún birtist svo í franska vikuritinu Le Nouvel Observateur. Kundera er höfundur sem vert væri að kynna hérlendis, allar skáldsögur hans bíða íslensks búnings og má það undarlegt heita þar eð einn af okkar hæfustu þýðendum er menntaður í Tékkóslóva- kíu. Kundera er í hópi þeirra fjölmörgu Tékka sem hernám Rússa hefur rekið í útlegð. Stúdentaleikhúsið færði upp leikrit eftir hann í vetur (Jakob og Meistarann) en af skáldsögum hans má nefna Brandarann (1967) og Bók hláturs og óminnis (1980). P. G. 96
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.