Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 125

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Síða 125
Neikvæð afstaða gagnvart konunni/ móðurinni er áberandi hér eins og víða annars staðar hjá Guðbergi. Hún er hindrun milli föður og sonar, hún vill stjórna uppeldi drengsins og móta hvatir hans. Orsakanna fyrir draumum drengs- ins er e. t. v. að leita í hinum fyrirbyggj- andi, kæfandi aðgerðum hennar. Eins og t. d. við lok sögunnar þegar Tóti litli má ekki sofna í fangi pabba. Tóti pabbi er rekinn út en Tóta mamma umlykur drenginn í mjúkum faðmi og svæfir hann. En Tóta mamma getur ekki hindr- að það að jafnvel þangað koma til hans draumar. Sumir draumarnir baða sig í brúnni holu, og „Allir voru draumarnir eins og tær í laginu.“ (bls. 80) Meistari tvírœómnnar Það hlýtur að vera mikið vandaverk að skrifa bókmenntir fyrir börn og til að gera það hlýtur höfundurinn að verða að beita sjálfan sig miklum aga. Hann verð- ur að setja sig í spor barnsins, tala við það þannig að það skilji án þess að tala niður til þess. Hann verður að neita sér um að láta ýmislegt flakka sem annars væri nothæft fyrir fullorðna og hann verður að hafa eitthvað fram að færa, eins og auðvitað allir höfundar. Þessi skilyrði uppfyllir Guðbergur vel að öllu öðru leyti en því að hann lætur of mikið flakka, með öðrum orðum hann skýtur yfir markið í tvíræðni. Orðaval er slíkt að ekki fer milli mála þegar skírskotað er til kynlífssviðsins, en því verður hins vegar ekki á móti mælt að Guðbergur er meistari tvíræðninnar og framan af sög- unni heldur hann sér vel á mottunni. Þegar líður á verður tvíræðnin of' groddaleg og þá á kostnað hins gaman- sama ævintýris um tána sem eignast eigið líf og leikur lausum hala út um borg og bý með telpunni Tótu. Með of- Umsagnir um bœkur urlítið mildara orðalagi hefði það ævin- týri notið sín betur og viðkvæmar sálir sloppið við hrollinn. Einhvern veginn er það svo að í barna- bókum eru kynhvöt og árásarhvöt bann- orð. E. t. v. er þetta ein ástæða þess hve barnabækur eiga erfitt uppdráttar. Margar hverjar hafa hreinlega lítið að segja barninu, jafnvel þó að þær séu vel gerðar og dálítið skemmtilegar. Vantar ekki einmitt lesefni sem getur leyst eitt- hvað af bældum hvötum barna úr læð- ingi eins og t. d. gömlu ævintýrin gerðu? Bæði árásarhneigð og kynhvöt, eru rík- ur þáttur í sálarlífi barna. Mjög fátt í samfélaginu gefur börnum tækifæri til eðlilegrar útrásar á þessum sviðum, allra síst þær bækur sem þeim eru ætlaðar. Guðbergur rýfur þessa hefð og ryðst inná bannsvæði barnabókmenntanna. Það er hæpið að fordæma „Tána“ í öðru orðinu en dásama gömlu ævintýrin í hinu sem eru full af kynferðislegum fantasíum, að vísu betur földum, morð- um og gripdeildum, eða leyfa landsins börnum vikulega að horfa á J.R. hreiðra um sig í öðruhverju bóli í Dallas. Þarna, eins og á mörgum fleiri sviðum, er um að ræða mikinn tvískinnung í þeirri sið- ferðisvitund sem höfð er að leiðarljósi við barnauppeldið. I barnabókum má ekkert segja en börn geta horft á næstum hvaða sora sem er í sjónvarpi eða bíó. Meistari stílsins Guðbergur er, eins og áður sagði, meist- ari tvíræðninnar, en ekki síður er hann mikill stílmeistari. Stíllinn á tánni er hreint afbragð. Höfundi tekst að feta einstigið milli draums og veruleika listi- lega og nær fram einkennilegum blæ fár- ánleika sem þó blómstrar í raunverulcik- anum. Málið leikur Guðbergi á tungu, hann leikur sér með orð, hugtök og 115
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.