Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1984, Page 127
við Véstein Lúðvíksson og Ólaf Hauk Símonarson. Einatt varpar hann nýstár- legu ljósi á kunnugleg fyrirbæri með frumlegri líkingu ellegar stílbragði frá óvenjulegu sjónarhorni. Meginkostur- inn við verk hans er frjór leikur að máli og persónulegur stíll en slíkt er sjaldséð í samtímabókmenntum okkar. Oft á tíð- um tekst Pétri að miðla mállegri reynslu með því að taka orð til bæna og afklæða þau sínu sjálfsagða og fordómafulla sam- hengi. Óheilindi Einkunnarorð Persóna og leikenda eru sótt í ljóð Steins Steinarr, I draumi sér- hvers manns. Vísast skilur Pétur Ijóðið svo að það fjalli um líf í blekkingu, sjálfsfirringu. Hið sama gerir Nína Björk Arnadóttir í nýlegu leikriti sínu. Þó að verk þessara höfunda séu næsta ólík á flestan máta eiga persónur þeirra það sammerkt að klæðast gervum sem hæfa þeim ekki. Hjá Nínu felur lífslygin í sér uppgjöf fyrir lífinu, flótta. Hjá Pétri er hún hinsvegar stig á þroskabraut ungs manns sem ekki hefur fundið sjálfan sig. Persónur og leikendur er skrifuð eftir líkum nótum og fyrri bækurnar um Andra sem barn og Andra sem táning. Enn sem fyrr er áhersla lögð á samhengi hlutanna í veröld þar sem menn fæðast inní ákveðin gervi eða hlutverk. Hring- urinn hefur þó þrengst um söguhetjuna, sálarlíf hennar þyngra á metum en áður. I þessari bók er Andri Haraldsson næstum orðinn að manni; hann lýkur efsta bekk í MR og fer að sofa hjá, heldur síðan úr landi til Parísar þar sem hann villist inní „vitlausa atburðarás“ og er sleginn í hausinn með lögreglukylfu fyrir vikið. Það er enginn hörgull á skemmtilegum atvikum og persónulýs- ingum í þessari bók. Líklegt að margir Umsagnir um btekur kannist við sig af umhverfislýsingu hennar ef ekki atburðunum sjálfum. Pét- ur fer víða á kostum og reytir af sér brandarana enda gefur efnið tilefni til þess: menntaskólalíf með öllum þess uppátækjum og -komum. Höfundur hefur næmt auga fyrir hinu skoplega og munar jafn vel ekki um að gera klósett- ferð í MR að lystireisu fyrir lesandann: „Ef til vill stend ég í sporum Jóns Sig- urðssonar, hugsaði Andri. Allavega var klósettið eins og hefði ekki verið sturtað niður síðan á þjóðfundinum." Galgopa- skapur af þessu tagi einkennir frásögn- ina gervalla, sem berst víða: úr skóla- stofu yfir í gamla Sigtún með viðkomu á bókasafni, heimili og kaffihúsi, út um land og loks úr landi. „Klíkuna" vantar ekki: Garðar Trotský, Svan Rimbaud og Dodda Goddard, sem ásamt Andra munar ekki um að skola niður heimslitt- eratúrnum einsog hann leggur sig og svelgist ekki einusinni á: „Með hverju höggi hækkuðu þeir í sjálfsáliti og eftir fáein strandhögg í heimslitteratúrnum munaði minnstu að þeir létu greipar sópa um Sænska Kóngsríkið og héldu á brott með Nóbelinn.“ En meginefni bókarinnar er Andri sjálfur. Þann vetur sem sagan gerist að mestu lifir hann og hrærist í heimi bóka. Einkum gengst hann uppí Hemingway og Halldóri Laxness en áhrifavaldi þeirra er lýst á mjög skoplegan hátt. Andri sér hvorki sjálfan sig né umhverf- ið fyrir skáldlegri glýju, ráfar með veislu í farangrinum um Austurstræti sem ýmist tekur á sig mynd Boulevard St.-Michel eða St.Germain og bregður sér inná „góðu kaffistofuna á Place St.-Michel“, þ. e. Hótel Höll. André Hemingway. Líf hans er leikrit úr hugs- un annars manns sem hann treður uppí í ýmsum gervum. Slík óheilindi held ég 117
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.