Fréttablaðið - 30.04.2015, Síða 4
30. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
VÍSINDI „Það kemur þarna í ljós
að vísindastarf í landinu er veru-
lega fjárvana,“ segir Magnús Karl
Magnússon, forseti læknadeildar
Háskóla Íslands.
„Vísindasamfélaginu hefur fund-
ist að þessi grein hafi verið fjár-
svelt þrátt fyrir að opinberar tölur
um framlög til vísinda og rannsókna
hafi þótt sæmilegar frá árinu 2000,
um 2,5 prósent til þrjú prósent af
vergri landsframleiðslu.“
Magnús segir að eftir að Hag-
stofan hafi tekið við útreikningum
á fjárframlögum til vísinda hafi
nýlegir útreikningar sýnt fram á
að greinin er verulega fjársvelt og
fyrri útreikningar verið skakkir.
„Það kemur þarna í ljós að um
þriðjungur fjármagnsins hefur
ekki verið til staðar. Þetta þýðir að
um rúmlega 100 milljarða króna
skekkju er að ræða yfir síðastliðinn
áratug,“ sagði hann.
Viðmið margra þjóða er að fjár-
framlög til vísinda og rannsókna
nemi minnst þremur prósentum
af vergri landsframleiðslu og það
er það markmið sem Vísinda- og
tækniráð hefur sett sér fyrir árið
2016.
Magnús segir að til þess að ná
þessum markmiðum þurfi einfald-
lega meira fjármagn og meiri fjár-
festingu auk þess sem endurskoða
þurfi alla umgjörð fjármögnunar.
Hann bendir á að háskólar og rann-
sóknarsjóðir á Íslandi séu verulega
fjársveltir í samanburði við önnur
samanburðarríki.
Unnur Brá Konráðsdóttir, for-
maður allsherjar- og menntamála-
nefndar, segir að það þurfi að kanna
málið betur og að þau muni hlusta
eftir ráðleggingum Vísinda- og
tækniráðs í þeim efnum. - srs
...vísinda-
starf í landinu
er verulega
fjárvana...
Magnús Karl
Magnússon, forseti
læknadeildar
Háskóla Íslands.
VIÐSKIPTI Hluthafar í Borgun
fengu greiddar 800 milljónir
króna í arð vegna síðasta rekstr-
arárs. Haukur Oddsson, forstjóri
Borgunar, segir arðgreiðsluna
nema rétt rúmlega 50 prósentum
af hagnaði félagsins á síðasta ári.
„Það tekur hluthafana í Eignar-
haldsfélaginu Borgun ellefu ár að
fá kaupverðið til baka miðað við
þessa arðgreiðslu,“ segir Haukur
í samtali við Fréttablaðið.
Fréttir af arð-
greiðslunum
vekja athygli
vegna þess að
á síðasta ári
seldi Lands-
bankinn 31,2
prósenta hlut í
Borgun. Borg-
un var ekki aug-
lýst til sölu og
kaupandinn var
Eignarhaldsfélagið Borgun. Það
félag er meðal annars í eigu Stál-
skipa ehf., Péturs Stefánssonar
ehf., og P 126 ehf. Það hefur líka
vakið athygli að Einar Sveinsson,
föður bróðir Bjarna Benedikts-
sonar fjármálaráðherra, er eig-
andi síðastnefnda félagsins. Eign-
arhaldsfélagið Borgun greiddi 2,2
milljarða króna fyrir hlutinn í
Borgun, en á þessari stundu ligg-
ur ekki nákvæmlega fyrir hvern-
ig kaupverðið var fjármagnað.
Hins vegar liggur fyrir að hlut-
ur Eignarhaldsfélagsins í arðin-
um nemur 250 milljónum króna.
Að frádregnum fjármagnstekju-
skatti munu þeir svo fá 200 millj-
ónir í sinn hlut.
Sigríður Mogensen hagfræð-
ingur segir það vera lykilatriði að
fá upp á borð hvernig staðið var
að fjármögnun. „Lykilatriði til
að átta sig á því hvort þessi arð-
greiðsla sé eðlileg er að fá upp á
borð hvernig kaupin áttu sér stað,
hvernig þau voru fjármögnuð,
hvert eiginfjárframlagið var af
hálfu eigenda eignarhaldsfélags-
ins,“ segir Sigríður í samtali við
Fréttablaðið. Hún bendir á að þar
sem um er að ræða eignarhalds-
félag með takmarkaða ábyrgð þá
taki menn ekki mikla áhættu ef
hlutirnir fara ekki vel en hagnast
mjög mikið með arðgreiðslum og
hækkun á virði hlutarins.
„Til þess að geta metið hvort
þessi arðgreiðsla er eðlileg og
í takti við eðlilega arðsemi af
eigin fé þá þarf að koma upp á
yfirborðið hvert eiginfjárfram-
lag kaupendanna var og hvern-
ig hluturinn var fjármagnaður,“
segir Sigríður. Það þurfi að upp-
lýsa hvort Landsbankinn veitti
seljendalán, hvort aðrir íslensk-
ir bankar hafi fjármagnað eign-
arhaldsfélagið eða hvort kaupin
hafi verið greidd að fullu með
eigin fé.
„Öllum þessum spurningum
er ósvarað. Ástæðan fyrir því að
fólk á rétt á að fá þessar upplýs-
ingar er að þetta er banki í eigu
þjóðarinnar. Mjög mikil verð-
mæti skiptu um hendur fyrir
nokkrum mánuðum og það virð-
ist vera góð arðsemi í félaginu
sjálfu. Nú er verið að greiða þessa
stóru arðgreiðslu sem er í stóru
hlutfalli við eigið fé Borgunar þá
finnst mér ekki neitt annað koma
til greina en að það verði upplýst
hvernig þessi kaup áttu sér stað,“
segir Sigríður, en eigið fé Borg-
unar nam í árslok rúmum fjórum
milljörðum króna.
Þá segir Sigríður að þessi arð-
greiðsla og hagnaður félagsins
sýni að Landsbankinn hafi selt
fyrirtækið á of lágu verði.
jonhakon@frettabladid.is
Lykil-
atriði til að
átta sig á því
hvort þessi
arðgreiðsla sé
eðlileg er að fá
upp á borð
hvernig kaupin áttu sér
stað…
Sigríður Mogensen,
hagfræðingur.
Fá 250 milljónir í sinn hlut
Átta hundruð milljóna króna arðgreiðsla Borgunar nemur 50 prósentum af hagnaði síðasta árs. Nýir hluthafar
fá 250 milljónir. Hagfræðingur segir að upplýsa þurfi hvernig staðið var að kaupum nýju hluthafanna.
HAUKUR
ODDSSON
forstjóri Borgunar
BORGUN Hagfræðingur segir að fyrirtækið hafi verið selt of lágu verði. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Prófessor við Háskóla Íslands segir að útreikningar vegna framlaga til vísinda hafi verið skakkir:
Skekkja í framlögum upp á 100 milljarða
ORKUMÁL Landsnet og verktakafyrirtækið
Ístak undirrituðu í gær samning um lagningu
jarðstrengs milli Fitja og Helguvíkur. Miðað
er við að framkvæmdum verði að fullu lokið í
haust.
Samningurinn hljóðar upp á tæplega 228
milljónir króna. Strax verður hafist handa við
undirbúning og slóðagerð í Helguvík og standa
vonir til að hægt verði að byrja að grafa fyrir
jarðstrengnum í næstu viku, segir í tilkynn-
ingu frá Landsneti.
Undirbúningur verkefnisins hófst síðastliðið
haust í framhaldi af samningi um flutning raf-
orku til kísilvers United Silicon sem kveður á
um að tengingin verði tilbúin 1. febrúar 2016.
Strengurinn mun tengja saman Stakk, nýtt
tengivirki Landsnets í Helguvík sem nú er í
byggingu, og tengivirki félagsins á Fitjum.
Hann er gerður fyrir 132 kílóvolta (kV)
spennu og verður 8,5 km langur.
Samið var við þýska fyrirtækið Nexans um
framleiðslu strengsins og mun það jafnframt
sjá um allar tengingar. - shá
Landsnet og Ístak semja um lagningu strengs milli Fitja og Helguvíkur:
Jarðstrengur tilbúinn í haust
SAMIÐ Guðmundur Ingi Ásmundson, forstjóri Landsnets, og Óskar
Jósefsson, framkvæmdastjóri Ístaks, handsala samning. MYND/LANDSNET
LEIÐRÉTTING
Í gær var birt frétt um rannsóknir sem
kynntar verða á afmælisfundi Heila-
heilla á laugardaginn og greint frá því
að heilablóðföllum hafi fækkað um
helming. Elías Ólafsson vill koma því
á framfæri að ekki hafi verið gerðar
nægilega nákvæmar rannsóknir á tíðni
heilablóðfalla áður, til þess að hægt
sé að halda þessu fram. Rannsókn á
tíðni slags á Íslandi birtist í tímaritinu
Stroke árið 2013. Rannsóknin var gerð
af Ágústi Hilmarssyni, Elíasi Ólafssyni
og Ólafi Kjartanssyni og sýnir að fjöldi
Íslendinga sem fær slag á hverju ári er
svipaður og í rannsóknum frá Svíþjóð,
Bretlandi og Bandaríkjunum. Tíðni slags,
á öllu landinu, hefur ekki verið metin
áður og því er ekki hægt að fullyrða að
tíðni slags á Íslandi hafi minnkað.
SAMKEPPNISMÁL Kærunefnd
útboðsmála hefur lagt fyrir fjár-
málaráðuneytið að bjóða út inn-
kaup á flugfarmiðum til og frá
Íslandi.
Nefndin kemst að þeirri niður-
stöðu, í kjölfar kæru WOW air, að
ráðuneytið hafi ekki keypt flug-
farmiða í samræmi við innkaupa-
ferli sem eru tilgreind í lögum um
opinber innkaup. Skúli Mogen-
sen, forstjóri WOW air, fagnar
úrskurðinum. „Félagið mun nú
vonandi fá tækifæri til að bjóða í
innkaup ríkisins. Afleiðing þess
mun án efa verða mikill fjárhags-
legur ábati fyrir ríkissjóð og þar
með fyrir okkur öll.“ - srs
Úrskurður kærunefndar:
Gert að bjóða
út innkaup
FAGNAR Skúli Mogensen, forstjóri
WOW air, er ánægður með úrskurðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
Uniq 4202
Glæsilega hannaður og
vandaður sturtuklefi.
Auðveldur í uppsettningu
FRÁBÆR
GÆÐI /
GOTT VERÐ
„Verður fólk á Akureyri alveg
úti að aka í sumar?“
„Nei, við verðum bara sólarmegin í
lífinu.“
Matthías Rögnvaldsson er forseti bæjar-
stjórnar Akureyrar, en svo gæti farið að
strætisvagnar á Akureyri leggi niður störf í
einn mánuð í sumar vegna manneklu. Ekki
hefur tekist að ráða vagnstjóra í afleysingar
í sumar.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-1
3
C
C
1
6
3
D
-1
2
9
0
1
6
3
D
-1
1
5
4
1
6
3
D
-1
0
1
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K