Fréttablaðið - 30.04.2015, Side 32
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
TIBRA.IS
Bergrós mun
kynna flíkur sínar
í hannyrðaversl-
uninni Rokku í
Fjarðar kaupum um
miðjan maí. Nán-
ari upplýsingar um
það koma síðar á
www.tibra.is
Þegar ég var barn bjó ég á Ísafirði í gömlu reisulegu húsi við Hafnar-stræti sem var alltaf kallað græna
húsið. Á sama tíma bjó Vilborg Halldórs-
dóttir þar og samdi ljóðið „Mér finnst
rigningin góð“ sem síðar var gert ódauð-
legt af hljómsveitinni Síðan skein sól.
Þetta fannst mér alltaf afar merkilegt og
hef sagt þessa sögu oft í gegnum tíðina,“
segir Bergrós sem ákvað einn daginn að
yrkja sitt eigið ljóð um rigninguna en þó
ekki með pennann að vopni heldur prjón-
ana. Úr varð peysan Rigning.
Bergrós er afkastamikill prjónahönn-
uður og vann um tíma sem aðalhönnuður
hjá ÍSTEX við blaðið LOPA. Í dag starfar
hún sjálfstætt og rekur vefverslunina
Tíbrá þar sem hún selur uppskriftir sínar.
„Langflest sem ég bý til hefur með
einhverjar sögur að gera,“ segir Bergrós
sem nýtir ljóð, frásagnir, tilfinningar sem
hún hefur upplifað og minningar úr æsku
í verk sín. „Ég hugsa peysurnar mínar
oft sem ljóð eða sögur og yrki þær beint
í lopann. Líkt og með ljóðin er maður að
færa hugmynd úr höfðinu niður í annað
efni sem næsti maður skilur,“ segir Berg-
rós sem kemur úr ljóðelskri ætt.
Þegar Bergrós sest niður og prjónar
hugmyndir sínar í lopann þarf hún sjaldan
að gera margar tilraunir. „Hugmyndir
mínar eru tilbúnar í höfðinu á mér áður
en þær fara í gegnum hendurnar og prjón-
ana,“ segir Bergrós, sem gengur alltaf með
margar hugmyndir í maganum. „Þegar ég
kem þeim loks á prjónana þá er ég búin
að móta þær í huganum mjög lengi.“
Bergrós segir algengt að eitt verk leiði
af sér annað. Þannig fæddist peysan
Logn í kjölfar Rigningar. „Lognið hefur
alltaf haft djúpstæð og öflug áhrif á mig
og ég læt lokkast af logni eins og mýfluga
af mykjuskán. Ég ræð mér ekki fyrir kæti
þegar lognið leggst yfir. Því lognið er ekki
bara í loftinu svífandi í kringum okkur,
það er í sjónum líka, ögrandi og seiðandi
sést það spegla sig í letilegum vatns-
fletinum sem leyfir manni að trúa því að
ævintýri sé að hefjast,“ segir Bergrós um
þessa flík.
Bergrós telur ekki mjög erfitt að
prjóna peysurnar Rigningu og Logn. „Þær
eru mjög einfaldar fyrir utan mynstrið
sem er pínu áskorun fyrir byrjendur,“
segir Bergrós, sem reynir þó alltaf að
hafa prjónakonuna í huga þegar hún
hannar mynstur. „En maður má ekki van-
treysta prjónakonunni og það má alveg
ögra. Ég heyrði til dæmis af gamalli konu
sem prjónaði uppskrift eftir mig sem
heitir Mósaík. Hún var 84 ára gömul og
sagði að sér hefði fundist svo gaman
að prjóna þessu peysu því hún hefði
fundið það eftir á að heilasellunum hefði
fjölgað,“ segir Bergrós glaðlega.
■ solveig@365.is
YRKIR Í LOPANN
PRJÓNAHÖNNUN Nýjustu peysur prjónahönnuðarins Bergrósar Kjartans-
dóttur heita Rigning og Logn. Bergrós líkir peysunum sínum stundum við ljóð
og kveikjan að Rigningu var einmitt frægt ljóð Vilborgar Halldórsdóttur.
BERGRÓS KJARTANS-
DÓTTIR
RIGNING
Peysan Rigning er ljóð
Bergrósar Kjartansdótt-
ur sem hún samdi í lopa
undir áhrifum frá ljóðinu
„Mér finnst rigningin
góð“.
LOGN
Lognið
kom á eftir
rigningunni
og er á
svipuðum
nótum.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Stuttermabolir
Kr. 3.900.- Str. 40-56/58
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my styleStærðir 38-52
Smart föt, fyrir
smart konur
Netverslun á
tiskuhus.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
F
-3
7
D
C
1
6
3
F
-3
6
A
0
1
6
3
F
-3
5
6
4
1
6
3
F
-3
4
2
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K