Fréttablaðið - 30.04.2015, Blaðsíða 38
KYNNING − AUGLÝSINGLyftarar FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 20152
Upplýsingar um Vélaborg og notuðu tækin
má finna á vefsíðu okkar www.velaborg.is og
á facebook.com/velaborg
Lyftararallýið í fyrra var fyrsta keppnin sem
við héldum en hún verður nú haldin árlega.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Starfsmenn Vélaborgar hafa áratuga reynslu í meðhöndl-un og sölu lyftara og vöru-
húsatækja. Hjá Vélaborg vinna 25
manns sem hafa það sameigin-
lega markmið að viðskiptavinur-
inn sé alltaf í fyrsta sæti. Ingimar
Ingimarsson er sölumaður lyft-
ara og lyftitækja hjá Vélaborg og
við hittum hann að máli í húsnæði
Vélaborgar að Járnhálsi 2.
Hvaða vörur eruð þið
með hjá Vélaborg?
„Í lyfturum og lyftitækjum erum við
með þýska gæðamerkið Junghein-
rich. Það byggir á rúmlega 60 ára
reynslu í smíði lyftara og lyftitækja.
Þessi reynsla hefur skilað þeim í
fremstu röð meðal lyftarafram-
leiðenda í heiminum. Í dag er Jung-
heinrich þriðji stærsti lyftarafram-
leiðandinn í heiminum og hefur
verið margverðlaunaður í gegnum
árin fyrir gæði, endingu og hönnun
lyftitækja.“
Hvað ber að hafa í huga þegar
nýir lyftarar eru keyptir?
„Það sem þarf að gera fyrst er að
skilgreina þörfina og því er gott að
ráðfæra sig við sérfræðinga okkar.
Meðal þess sem er gott að hafa í
huga er lyftihæð, lyftigeta, keyrslu-
lengd, gólffletir, hitastig og fleira.
Þá er nauðsynlegt að líta á gæðin.
Það er alltaf hægt að kaupa ódýr
tæki sem endast stutt en ef tæki
eiga að endast verða tveir þættir að
vera fyrir hendi, þ.e. vandað tæki og
reglulegt viðhald, hvort tveggja sem
Jungheinrich og Vélaborg hafa upp
á að bjóða.“
Hvað með notuð tæki?
„Við tökum notaða lyftara upp í
nýja lyftara og seljum aftur. Þá
hefur verið talsvert um það að við-
skiptavinir kaupi notuð lyftitæki
frá Evrópulöndunum í gegnum
Vélaborg. Jungheinrich rekur sér-
stakt verkstæði þar sem gerðir eru
upp notaðir lyftarar. Þaðan er hægt
að kaupa tvenns konar notuð tæki;
tæki með yfirförnum batteríum og
tæki sem eru algjörlega endurbyggð
og hafa fengið nýtt líf. Það er því allt-
af hægt að finna tæki við hæfi, notað
sem nýtt. Við eigum svo alltaf ein-
hver tæki til sölu hér á Járnhálsin-
um. Upplýsingar um notuðu tækin
má finna á vefsíðu okkar www.vela-
borg.is og Face book-síðu okkar
www.facebook.com/velaborg.“
Hverjir eru viðskiptavinir
Vélaborgar?
„Við þjónum allri vélaflórunni hjá
Vélaborg. Hjá Jungheinrich hafa
það alltaf verið vöruhúsatækin sem
seljast mest; brettatjakkar, staflar-
ar, tínslutæki og lyftarar. Það hefur
hins vegar bæst talsvert við af við-
skiptavinum úr sjávarútvegin-
um. Hann gerir sífellt meiri kröfur
um gæði og endingu og hefur því í
auknum mæli snúið sér að gæða-
merkjum eins og Jungheinrich.“
Ekki bara sérfræðingar í vöruhúsum
Lyftarar og vöruhúsatæki eru á meðal þess sem Vélaborg sérhæfir sig í. Fyrirtækið býður upp á gæðamerkið Jungheinrich sem
byggir á 60 ára reynslu og er í fremstu röð lyftaraframleiðenda í heiminum í dag. Vélaborg er einnig með öfluga varahlutaverslun.
„Í lyfturum og lyftitækjum erum við með þýska gæðamerkið Jungheinrich,” segir Ingimar
Ingimarsson, sölumaður lyftara og lyftitækja hjá Vélaborg. MYND/GVA
Ég setti upp nokkrar þraut-ir og bjó til stóran veltipét-ur á gaffalinn, þar sem kepp-
endur áttu að velta legukúlu gegn-
um ákveðna leið og í mark. Í þeirri
þraut voru keppendur á rafmagns-
lyftara með snúningi en þegar átti
að stafla upp körum á sem stystum
tíma voru keppendur á dísillyft-
ara. Þrautirnar voru auðvitað dálít-
ið tengdar fiskiðnaðinum, enda fór
keppnin fram í Grindavík,“ segir
Magnús Jón Björgvinsson hjá Kraft-
vélum en hann stóð að lyftararallýi
á bæjarhátíðinni Sjóaranum síkáta
í Grindavík í fyrra.
Keppnin vakti stormandi lukku
þrátt fyrir leiðindaveður. „Við þurft-
um að færa keppnina inn og fækk-
uðum þrautunum eitthvað.“
Um tuttugu manns skráðu sig
til leiks, frá flestum fyrirtækjum á
svæðinu og allir skemmtu sér vel.
„Þetta var mjög skemmtilegt og
mikið fjör. Lyftararallýið í fyrra
var fyrsta keppnin sem við héld-
um en hún verður nú haldin ár-
lega. Ég ætla líka að fara hring-
inn um landið í sumar og setja upp
þrautabrautir og fá fólk sem vinn-
ur á lyftara til að lyfta sér aðeins
upp. Þetta er bara svo skemmti-
legt. Svona uppákomur krydda til-
veruna,“ segir Magnús.
Reynir á útsjónarsemi
Skilyrði til þátttöku í lyftararallýi
eru að sjálfsögðu lyftararéttindi en
Keyrðu niður keilur í bráðræði
Magnús Jón Björgvinsson stóð fyrir lyftararallýi á bæjarhátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík í fyrra. Hann segir keppnina hafa
reynt á þolinmæði og útsjónarsemi keppenda og bráðræði hafa helst orðið mönnum að falli. Allt var þó til gamans gert.
Kristinn Gunnarsson hjá Gjögri ehf. stóð uppi sem sigurvegari keppninnar í fyrra og fékk
afhentan bikar úr hendi Magnúsar Jóns Björgvinssonar sem setti þrautirnar saman.
MYND/KRAFTVÉLAR
Veltipéturinn
stóð í
mörgum
keppendum
en þrautin
reyndi
talsvert á
þolinmæð-
ina.
Magnús setti saman fjölbreytta þrautabraut sem keppendur fóru í gegnum, bæði á dísil-
og rafmagnslyfturum. Meðal þrauta var að stafla upp fiskikörum á sem stystum tíma.
Hvernig er háttað sölu á
aukabúnaði fyrir lyftara?
„Við seljum allan aukabúnað á lyft-
ara. Hjóldrifnir sópar framan á lyft-
ara frá Smart Sweep eru t.d. algjör
snilld. Þeir hafa engar vökvateng-
ingar en soga allt sem fyrir verð-
ur upp í skúffuna. Við erum til að
mynda nýkomnir með umboð fyrir
finnskar stafrænar vogir sem eru
tengdar við glussakerfi lyftara og
ámoksturstækja. Þetta eru ótrú-
lega nákvæmar vigtar og einfald-
ar í uppsetningu á nýja sem notaða
lyftara og á mjög sanngjörnu verði.
Við vorum líka að fá sendingu með
galvaníseruðum gámasliskjum sem
þola 6,5 tonna þunga og mannkörf-
um sem einfaldlega er rennt upp á
gafflana og rúma tvo menn.“
Hvernig þjónustu viljið þið veita?
„Við rekum mjög öfluga varahluta-
verslun sem hefur á að skipa ein-
vala liði með áratuga reynslu úr
varahlutabransanum. Enn frem-
ur rekum við mjög öflugt verkstæði
með sérþjálfuðum viðgerðarmönn-
um úr bæði vinnuvéla- og lyftara-
geiranum.
Hér á bæ leggja menn sig fram
um að aðstoða alla sem til okkar
leita hvort sem menn eru með tæki
frá okkur eða öðrum framleiðend-
um. Við búum yfir mikilli reynslu
hvort sem er á sviði varahluta- eða
viðgerðaþjónustu og viljum gjarn-
an miðla henni til þeirra sem þess
þarfnast.“
hvað þarf annars að hafa til brunns
að bera? „Þessi keppni reynir bæði á
tækin og ökumanninn. Keppendur
þurfa að búa yfir útsjónarsemi, þol-
inmæði og rökhugsun. Sérstaklega
þurfti mikla þolinmæði við veltipét-
urinn,“ segir Magnús.
„Bráðræði varð mönnum helst að
falli í rallýinu í fyrra, menn flýttu
sér of mikið og keyrðu niður keilur
í brautinni. Veltipéturinn reynd-
ist líka mörgum erfiður og sá sem
stóð uppi sem lyftarameistari eftir
keppnina var einmitt sneggstur
með þá þraut,“ segir Magnús sem
sjálfur er þaulreyndur á lyftara.
„Ég var vöruhússtjóri í fimmtán
ár áður en ég fór að selja lyftara og
þekki þetta út og inn. Nú vona ég
bara að veðrið verði gott í næstu
keppnum. Þá get ég sett saman fleiri
þrautir,“ segir hann glaðlega.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
3
D
-4
5
2
C
1
6
3
D
-4
3
F
0
1
6
3
D
-4
2
B
4
1
6
3
D
-4
1
7
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K