Fréttablaðið - 30.04.2015, Page 44
KYNNING − AUGLÝSINGLyftarar FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 20154
FORKLIFTCUP HALDIN Í ÞÝSKALANDI Í HAUST
Heimsmeistarakeppni í lyftara-
fimi, ForkliftCup, verður haldin
þann 17. september í Aschaffen-
burg í Þýskalandi. Þar munu etja
kappi færustu lyftaraökumenn
heims en þann 1. mars hófust
keppnir innan hvers lands sem tekur
þátt. Þrír bestu lyftaraökumenn
hvers lands munu keppa um heims-
meistaratitilinn í haust.
ForkliftCup hefur verið haldin ár
hvert síðan 2005. Keppendur fara í
gegnum þrautabraut og leysa verk-
efni sem reyna á nákvæmni, hraða
og stjórn. Þá reynir þrautabrautin
einnig á þekkingu keppenda á
reglum um öryggi.
Stjórnendur Fork liftCup segja
tilgang keppninnar ekki einungis
að verðlauna þá bestu í faginu
heldur einnig að lækka tíðni slysa á
lyfturum.
Þýskaland hefur oftast unnið titilinn
frá árinu 2007 eða sex sinnum.
Spánn vann 2012 og Kína árið 2007.
www.staplercup.com
Á vef Vinnueftirlitsins er að finna
upplýsingar um frumnámskeið
sem þarf að sækja til að fá próf
á lyftara. Frumnámskeiðið veit-
ir bókleg réttindi fyrir lyftara
með 10 tonna lyftigetu og minni
en einnig fyrir einhverjar gerðir
dráttarvéla, körfukrana, valtara
og álíka vinnuvélar.
Námskeiðið er 29 tímar, hald-
ið á þremur dögum, og yfirleitt á
dagvinnutíma.
Fyrsti dagur á frumnámskeiði
kallast fornám og fjallar um
vinnuverndarmál, eðlisfræði,
vökvafræði, vélfræði, rafgeyma
og öryggi við skurðgröft. Dagar
2 og 3 fjalla um einstaka flokka
vinnuvéla og fleira þeim tengt.
Frumnámskeiði lýkur með
skriflegu krossaprófi.
Verkleg þjálfun
Standist nemendur prófið geta
þeir hafið verklega þjálfun hjá
atvinnurekanda. Verkþjálfun
skal fara fram undir leiðsögn
leiðbeinanda sem hefur réttindi
til kennslu.
Að því loknu er óskað eftir
prófdómara frá Vinnueftirlitinu
til að taka verklegt próf.
Aldurstakmörk
Það er 16 ára aldurstakmark til
að geta setið frumnámskeið en
þremur mánuðum fyrir 17 ára af-
mælisdaginn getur viðkomandi
farið að æfa sig á tæki undir leið-
sögn einstaklings með kennara-
réttindi. Til að fá vinnuvélarétt-
indi verður viðkomandi að vera
orðinn 17 ára og hafa bílpróf.
Lært á lyftara
Frumnámskeið er 29 tímar sem kennt er á þremur dögum. NORDICPHOTOS/GETTY
Stephan Theissen lyftarameistari World
Campionship single 2014.
UPPHAF LYFTARANS
Þróun lyftarans má rekja aftur til
miðrar 19. aldar og fram á upphaf
þeirrar tuttugustu. Forveri hans
var handknúinn lyftibúnaður sem
notaður var til að lyfta þungum
hlutum stuttar vegalengdir.
Árið 1906 kynnti lestafyrirtækið
Pennsylvania Railroad nokkurs
konar lestarpall sem knúinn var
áfram með rafhlöðu. Hann hafði
það hlutverk að flytja farangur
við lestarstöð félagsins. Fyrri
heimsstyrjöldin átti stóran þátt í
þróun lyftarans en í Englandi ýtti
mikill skortur á vinnuafli undir
þróun hans. Þróunin hélt áfram
árin eftir fyrri heimsstyrjöld, bæði
í Evrópu og Bandaríkjunum.
Smátt og smátt varð útbreiðsla
þeirra meiri og undir lok fjórða
áratugar síðustu aldar tók hún
stökk fram á við þegar settir voru
staðlar yfir brettastærðir. Seinni
heimsstyrjöldin átti síðan stóran
þátt í frekari þróun en þá voru
stór vöruhús komin til sögunnar
sem þörfnuðust stærri og öflugri
lyftara.
Lyftarar og vörubretti hófu
innreið sína fyrir alvöru í ís-
lenskt atvinnulíf við Sundahöfn
í Reykjavík undir lok annars
áratugar síðustu aldar. Þá voru
það lyftarar sem leystu vörubílana
af hólmi og fluttu vörur á brettum
inn í skemmur sem stóðu við
hafnarbakkann.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Heildarlausnir í lyfturum
- Dísellyftarar
- Rafmagnslyftarar
- Vöruhúsatæki
- Skotbómulyftarar
- Varahlutir
Bjóðum allar tegundir Crown lyftara!
Hillulyftarar, brettatjakkar, rafmagnstjakkar,
staflarar, þrönggangalyftarar, tínslutæki,
dráttartæki, vinnulyftur, gaslyftarar...
Quick remote
bylting í tínslutækni!
Sjá nánar á www.crown.com
Rými ehf. | Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík | s. 511 1100 | www.rymi.is | rymi@rymi.is
Rafmagnslyftari
Skoðið tilboðin okkar á rymi.is og á fac
ebook
Hillulyftari
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
D
-8
5
5
C
1
6
3
D
-8
4
2
0
1
6
3
D
-8
2
E
4
1
6
3
D
-8
1
A
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
8
0
s
_
2
9
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K