Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 8

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 8
bandalaginu, Nýjum vettvangi og Kvenna- lista, látum nú líklega yfir aukinni alþjóða- hyggju, rétt eins og Guðmundur Magnús- son og Hannes Hólmsteinn, en vitum samt ekki fyrir víst hvemig hægt er að samræma hana þeim grundvallarsjónarmiðum sem við teljum réttust. Það er eitthvað bogið við það að sitja sömu megin við borðið og þessir tveir fóstbræður. Við höldum nefni- lega enn í þá hugmynd að þjóðfélagið beri sameiginlega ábyrgð á velferð þegnanna og vitum sem er að launafólk verður hér eftir sem hingað til að beijast fyrir launum sín- um og rétti gagnvart atvinnurekendum sem sækjast hér eftir sem hingað til eftir há- marksgróða. Eðli auðvaldsins hefur ekkert breyst þó að jámtjaldið sé fallið. Þess vegna hefur gildi félagshyggju í stjórnmálum ekk- ert minnkað. Og við megum ekki sofna á verðinum um lýðræði, almenna velferð og mannréttindi í þeirri falstrú að heilbrigð skynsemi hafi skyndilega tekið völdin í Evrópu og menntaðir embættismenn muni í framtíðinni sjá um öll okkar mál í fijálsu markaðskerfi. Við höldum nefnilega enn í þá hugmynd að þjóðfélagið beri sameiginlega ábyrgð á velferð þegnanna og vitum sem er að launafólk verður hér eftir sem hingað til að berjast fyrir launum sínum og rétti gagnvart atvinnu- rekendum sem sœkjast hér eftir sem hingað til eftir há- marksgróða. Þess vegna höfum við ekki fulla trú á því að nú sé kominn tími til að leggja niður lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt þjóða og fela okkur samevrópskri markaðshyggju á vald. Frjáls markaður hlýtur alltaf að valta yfir launafólk en hampa atvinnurekendum og hjálpa svokölluðum fjármagnseigend- um til að frílysta sig í heimsreisum fyrir rentumar sínar. Enn sem fyrr er þörf á að halda á loft öðrum lífsgildum, styðja við mannréttindabaráttu og efla menningar- starfsemi sem skilar ekki mælanlegum hag- vexti strax í dag. Af aldalangri reynslu ætti líka að vera nokkuð ljóst að það hentar ekki smáþjóð sem er bara til af sérvisku að taka við tilskipunum og náðargjöfum frá vald- höfum utanlands. Annað áhyggjumál smáþjóðar út við ysta haf er hvernig hún og hennar menning getur lifað af þegar sameiginleg menningar- neysla í ljósvakamiðlum verður ráðandi; þegar fólk í íslenskri sveit fer að horfa beint á sendingar Breska útsendingarfélagsins eða himnarásarinnar án þess að hirða um hvað landsfeðumir í Reykjavík kvaka í Sjónvarpinu eða hvort einhverjir gróða- og auglýsingapungar í borginni eru að reyna að senda út þriðja flokks myndbönd sem þeir hafa leigt frá útlöndum. Ef menningar- miðstöð landsmanna flyst þannig úr landi er stutt í endalok sjálfstæðrar menningar. Og þá er von að við spyijum hvort eitthvað sé til ráða. Jaðarmenning er víðar en á íslandi í alþjóðlegri umræðu er menningu okkar jafnan skipað á bekk sem jaðarmenningu. Okkur líkar að vonum slík hugsun illa en þó er ráðlegt að athuga hana ögn nánar. í 6 TMM 1990:4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.