Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 15

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 15
út fyrir Ásgarð, út í óvissuna til jötna, gegna líku hlutverki. Ef ekki væru þessar sam- göngur á milli reiðu og óreiðu með þeirri togstreitu sem þeim fylgir þá væri fremur tíðindasnautt og leiðigjamt í heimi goða og manna. Sams konar ftjóvgandi áhrif vegna samspils við ytri öfl urðu til þess á miðöld- um að okkar hefðbundna, innlenda sagna- og kvæðamenning nýttist til hámenningar- sköpunar við ritun bókmennta með tilkomu skipulegrar menntunar rómversku kirkj- unnar. Veggjasmiðir sem vilja byggja utan um mannlífið em á rangri leið. Þeir em óvinir menningarinnar í dulargervi eins og smið- urinn sem kemur til Ása og býðst til að reisa þeim traustan borgvegg. Æsir taka tilboð- inu en þegar þeim verður ljóst að smiðnum ætlar að takast að ljúka verkinu á tilsettum tíma og múra þá inni í Ásgarði þá fer allt upp í loft því að Loki hefur heitið honum að fá að launum Freyju, sólina og tunglið — og hvað gagnast þeim að lifa innan traustra veggja ef þeir hafa misst það sem gefur lífinu gildi? Annað áþreifanlegt dæmi um drepandi innilokun sem menn hafa þó brot- ist út úr áður en þeir drápust alveg er vita- skuld Berlínarmúrinn. Veggjasmiðir sem vilja byggja utan um mannlífið eru á rangri leið. Þeir eru óvinir menningarinnar í dulargervi eins og smiðurinn sem kemur til Asa og býðst til að reisa þeim traustan borgvegg. Spumingin um múrveggi og alþjóðleg samskipti er efst á baugi fyrir þá sem telja sig til jaðarmenningar. Og hún skiptir máli fyrir okkur þegar við stöndum frammi fyrir hugsanlegri inngöngu í Evrópubandalagið eða sérsamningum við það. Eigum við að styrkja múrana og varðveita okkar menn- ingu eins og safngrip eða eigum við að treysta á lífsmátt hennar í fjörugu samspili við menningu annarra þjóða? Má kannski að einhverju leyti bera miðaldakirkjuna saman við Evrópubandalagið? Hvort tveggja eru yfírþjóðlegar valdastofnanir sem fara um löndin og breiða út sína eigin menningu en verða jafnframt til þess að efla menningarstarf á hveijum stað. Og hvemig hefði farið fyrir okkur íslendingum ef við hefðum ákveðið að hafna kristninni á Alþingi forðum og rækta í staðinn innlenda menningu og ásatrú? Þá hefðum við þurft að beina viðskiptum okkar vestur á bóginn, til norrænu byggðanna á Grænlandi, og halda áfram landkönnun á Vínlandi. Hugs- anlega hefðum við þá orðið herraþjóð í Norður-Ameríku fimm hundruð ámm áður en Kólumbus fann álfuna! Nú er leiðin í vesturátt ekki opin lengur en okkur gefst kostur á að fljúga yfir norðurpólinn og selja afurðir okkar á Japansmarkaði ef Græn- ingjar og Evrópubandalög vilja úthýsa Is- Iendingum. Vandi jaðarmenningarsvæða er því hvemig hægt er að halda opnum samskipta- leiðum við stærri menningarsvæði án þess að ganga einhverri einni stórþjóð á hönd sem gleypir smáþjóðina fyrr en varir. En er það hægt? TMM 1990:4 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.