Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 23
Kjartan Ólafsson
Síðustu 40 dagar
Jónasar Hallgrímssonar
Jónasar Hallgrímssonar hefur hingað til umfram allt verið minnst sem
skálds og náttúrufræðings. í þessari grein um síðasta vorið sem Jónas
lifði er dregin upp mynd af starfi hans að stjórnmálum, sem var meira en
margir gera sér grein fyrir. Oft hefur verið gert mikið úr drykkjuskap
Jónasar en heimildir um mikla þátttöku hans ífélögum Hafnaríslendinga
vorið 1845 benda til annars. í lok greinarinnar er sagt frá skjölum um útför
Jónasar.
Þann 16. aprfl árið 1845 voru fjórir dagar
liðnir frá því Jónas Hallgrímsson kom í
síðasta sinn á fund í Fjölnisfélaginu. Hann
skrifar þennan dag seðil til Finns Magn-
ússonar, forseta Hafnardeildar Hins ís-
lenska bókmenntafélags. Erindi Jónasar
við Finn var að biðja hann að borga sér
marsgreiðsluna af þeim 200 ríkisdala styrk
á ári, sem Jónas naut hjá Bókmenntafé-
laginu vegna starfa sinna að fyrsta hluta
fyrirhugaðrar íslandslýsingar.
A seðilinn skrifar Jónas m.a.: ,£g er nú
sem óðast að flytja mig í St. Pétursstræti
140, 3. hæð og á ekki mjög gott þvf allir
kalla að mér sem geta.“
Skuldimar voru víða og kreditoramir að-
gangsharðir við félítinn mann. Þegar Jónas
skrifar þennan seðil eru dagar hans uppi,
allir nema þeir 40 síðustu. A seðlinum þeim
ama sjáum við meðal annars að í húsinu við
St. Pétursstræti, sem var síðasti bústaður
Jónasar, hefur hann ekki búið nema í rúman
mánuð en þar geymir minningarplata á
vegg nafn hans. Hann er að flytja þangað
þann 16. apríl á sínu hinsta vori.
Manntal frá 1. febrúar 1845 sýnir að Jón-
as átti þá heima á efstu hæð í Lille Lars-
bjömsstræde 181, húsi sem enn stendur
örskammt frá hinsta bústað Jónasar og ber
nú númerið 19 við stræti Larsbjöms.1 Ætla
má að þaðan hafi Jónas verið að flytja þann
16. apríl er hann hripaði á miðann til Finns.
Á þessu foma húsi er enginn minningar-
skjöldur en frá götunni kynni langt að kom-
inn vegfarandi að sjá fyrir sér mann sem
stendur þar innan við gluggann hinn
skemmsta dag ársins 1844. Hann er gildur
meðalmaður á hæð, þrekvaxinn, feitlaginn
nokkuð en limaður vel, herðamikill en bar-
axlaður og nokkuð hálsstuttur, jarpur á hár
TMM 1990:4
21