Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 25
í þessu húsi, sem nú er númer 20 við Storgade í Sórey á Sjálandi, bjó Jónas Hallgrímsson frá ágúst
1843 til maí 1844. Hann dvaldist þar hjá vini sínum, danska náttúrufræðingnum Japetusi Steenstrup,
sem þá var lektor við akademíuna í Sórey. Á þessum níu mánuðum í Sórey orti Jónas mörg af sínum
kunnustu ljóðum. Elsti hluti hússins er frá 17. öld en á dögum Jónasar hafði framhlið þess fengið á sig
þá mynd sem hún hefur nú í aðalatriðum, nema hvað gluggamir á neðri hæðinni eru mun yngri. Á fyrri
hluta 19. aldar var hús þetta oft nefnt Karen Schuttes Gaard og taldist árið 1845 vera númer 18 við
Realgade.
Breytingar á götuheitum og húsnúmerum í Sórey rannsakaði höfundur þessarar greinar haustið 1983
og fann þá þennan bústað Jónasar. Helstu heimildir sem leiða þá niðurstöðu í ljós er að finna í manntalinu
frá 1845, í ritgerð Johannesar Steenstrups sem birtist árið 1913 í minningarriti um föður hans, Japetus
Steenstrup, í bókinni Sor0s Bys Historíe gjennem 300 Aar eftir L.F. Lecune, sem út kom árið 1938, og
í bókinni Historiske Huse i Sor0, sem kom út 1982.
hin heiðraða félagsdeild hefir trúað mér
fyrir; ég hefi því skorað sitt á hvem, alla
vísindavini mína, íslendinga, svía og dani,
og hafa þeir, margur hver, bmgðist vel við
því.
... Ég ætla mérenn eitt ár til þessa starfs;
lengra get ég ekki lagt upp. Ég veit dável
að mörgu muni þá vera ábótavant og bið ég
yður fyrirfram að virða mér það til vor-
kunnar.
Eins ber mér enn að geta. Á uppdráttum
íslands frá herra Bimi Gunnlaugssyni hefir
ekki hingað til verið tekið fram landslagið.
Ég hefi að tilmælum forseta vors og riddara
Olsens ráðist í að tilgreina það eftir dag-
bókum mínum og minni. Verði nú, eins og
við er að búast, fundið að einhverju af því
seinna, þá tel ég mér til afsökunar að hafa
gert það í viðlögum og allt eins rétt og gat.
Kaupmannahöfn, 19. aprfl 1845
Jónas Hallgrímsson.
Þetta var þá síðasta greinargerð Jónasar um
íslandslýsinguna og þótt hægt gangi þá er
ljóst af henni að Jónas er ekkert að gefast
upp við verkefnið og ekki heldur búinn að
gefa upp á bátinn hugmyndina um sam-
eiginlegt ritverk þeirra Japetusar Steen-
TMM 1990:4
23