Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Page 29
mátt verða ráðsnjall stjómmálamaður úr
Jónasi ef hann hefði notið lengri lífdaga.
En hvaða kröfur voru þetta nú, sem Jónas
og meðnefndarmenn hans mótuðu í helstu
málum er hið fyrsta endurreista Alþingi
hafði um að fjalla? Það væri freistandi að
gera ítarlega grein fyrir þeim en rýmið leyf-
ir það ekki hér. Grípum aðeins stuttlega
niður í þeirri bænaskrá sem Jónas hafði
sjálfur framsögu fyrir — það er um skóla-
málin en þar segir m.a. svo:
. . . Því almennari sem menntun verður
meðal allra sténa því nær verður komist
aðaltilgangi mannlegs félags, sem er að
sérhver einstakur maður nái þeirri full-
komnun og farsæld sem mest má verða og
allir eiga frá upphafi jafna heimting til að
öðlast.
Síðar í bænaskránni segir:
Enn fremur vantar oss alla menntun handa
sjómannaefnum, kaupmannaefnum og iðn-
aðarmönnum og er þjóð vorri að því mikill
söknuður nú þegar og verður óðum meiri
eptir því sem landinu verður meir framfara
auðið. Auk þess vantar og alla menntunar-
skóla handa almúgastéttinni; því þó bama-
kennsla sé í góðu lagi og vonanda sé hún
verði það, ef þjóðin spillist ekki úr því sem
nú er, þá er hún samt hvergi nærri einhlít til
að koma upp tápmikilli og velmenntaðri
almúgastétt.
Og enn segir þar:
Þjóðlíf vort er að vakna að nýju og nýr
hugur vex og nýtt fjör; það verður að frjófg-
ast af menntuninni til þess að bera góða
ávöxtu. Vér vonum því að vér berum fram
innilega og samhuga ósk allrar þjóðar vorr-
ar, er vér biðjum Alþingi að flytja fram þá
bæn af íslands hálfu fyrir konung vom:
Að settur verði þjóðskóli á Islandi sem
veitt geti svo mikla menntun sérhverri stétt
sem nægir þörfum þjóðarinnar.
Vér köllum skóla þenna þjóðskóla, með-
fram vegna þess að vér æskjum að öll
kennsla renni af þjóðlegri rót, það er að
skilja menntun þeirri sem íslendingum er
eðlileg og þar hefur lifað í landinu frá alda
öðli.
Hér verður ekki þulið frekar úr þessari
bænaskrá um þjóðskóla, sem Jónas Hall-
grímsson mælti fyrir á „Almennum fundi
íslendinga" skömmu fyrir dauða sinn. Það
skal þó tekið fram að í bænaskránni er
einnig borin fram krafa um stofnun háskóla
á íslandi þar sem boðið verði upp á kennslu
í forspjallsvísindum, guðfræði, lögfræði og
læknisfræði — og er þetta 66 árum fyrir
stofnun Háskóla íslands. Hafa verður í
huga að þegar Jónas talar fyrir þessum til-
lögum þá er aðeins einn skóli starfræktur á
íslandi, Bessastaðaskóli sem ætlað var að
búa menn undir prestsstörf innanlands eða
háskólanám í Kaupmannahöfn. Tillögumar
em stórhuga og sá þjóðskóli sem fyrir Jón-
asi vakir að koma á fót mætti á nútímamáli
kallast samtengt menntakerfi, og hugsunin
sú að allt væri það grundvallað á þjóðlegri
rót. Markmiðið var að manna Islendinga og
mennta en þó umfram allt að hjálpa þjóð-
inni til að vera áfram hún sjálf, að ávaxta
fornan arf og flytja svo þær gullnu töflur frá
einni kynslóð til annarrar.
Já, þeir vita sæmilega vel hvers biðja ber
þessir fullhugar íslands um miðja 19. öld.
Skyldi krafa þeirra um þjóðskóla ekki geta
átt erindi til okkar einmitt nú — máske enn
frekar nú en þá — þótt undarlegt kunni
einhverjum að virðast?
Og það er einmitt 2. maí vorið 1845 sem
þessi bænaskrá frá Kaupmannahöfn um
TMM 1990:4
27