Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 52

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1990, Síða 52
Eða skefjalausa gimdina í þessu versi: Kærðu þig ekki neitt um neitt þó nú sé farið að verða heitt brenndu mig upp til agna Augun raunar eru þín upplitsdjarfa stúlkan mín, hitagler ef hlýna; sólargeislum innan að, eg er búinn að reyna það, safna þau, svo brímabað brennir vini þína. (I, 210) Hér er miðlað losta og í La Belle er líkams- fegurðinni svo til skila haldið að jaðrar við gláp, svo við sjáum að það er ekki tepru- skapur sem hamlar skáldinu í að lýsa ástar- fundum ferðarinnar frægu. Hvað er þá að brjótast um í honum? Umfram allt: hvers vegna ferðalok? Eftir hlátur og glaðværð og krakkalega leiki með blómin kemur skyndilegur skuggi, hæg þögn breiðist yftr sviðið, fyrir- varalaust breytist náttúran og verður döpur og hnipin, einmitt þegar hæst stendur leik- urinn, einmitt meðan allt leikur í lyndi. Hlógum við á heiði, himinn glaðnaði fagur á Qallabrún; alls yndi þótti mér ekki vera utan voru lífi lifa. Og nú kemur allt í einu þetta erindi í skrýtnu framhaldi, skrýtnu orsakasamhengi: Grétu þá í lautu góðir blómálfar, skilnað okkam skildu; [...] — sem er þá meira en við gerum sem lesum, því ekki skildist okkur annað en að allt léki í lyndi, vel færi á með þeim og pilturinn vildi alltaf hafa þetta svona, lifa lífí sínu með henni af því þá er svo glatt á hjalla og gaman. Hvað er að gerast? Þetta: Hélt ég þér á hesti í hörðum straumi og fann til fullnustu, blómknapp þann gæti ég borið og varið öll yfir æviskeið. Greiddi ég þér lokka við Galtará vel og vandlega; brosa blómvarir, blika sjónstjörnur, roðnar heitur hlýr. Þau snertast — þetta er ný snerting. I henni er nýtt samband. Eitthvað tekur að krauma. Hann skynjar allt í einu að hann vill vernda hana alla æ vina og fer að strjúka hár hennar undir því yfirskini að hann sé að greiða henni og hún endurgeldur með brosi nývak- innar ástar, sem minnir skáldið á allt það sem honum var kærast, blóm og stjömur. En af hverju ferðalok þama? Hvers vegna hljóta þau að skilja þegar þetta gengur allt svona ljómandi vel? Af því að háa skilur hnetti himingeimur og blað skilur bakka og egg? Af því bara að þannig er það? Svona er lífið? Forlögin? Nei — vættimar halda með þeim, og guð hefur velþóknun á þeim. Nei — það er ástin sem skilnaðinum veldur, því að þegar hún kviknar tapast sakleysið, þá geta þau ekki lengur verið „bara vinir“, geta ekki lengur verið saman, draumurinn um systurina er brostinn. Þetta er saga ástar 50 TMM 1990:4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.