Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Side 15
Salka skynjar sterkt þetta valdamisvægi
Steinþórs og Sigurlínu sem kristallast í tök-
um þeirra á tungumálinu og „hún hataði
hann í þögn hennar“ (92).
Enn betra dæmi um vald tungumálsins er
píslarganga mæðgnanna milli ráðamanna
þorpsins í upphafi sögunnar. í umkomu-
leysi sínu leita þær á náðir kaupmannsins,
prestsins og læknisins í von um aðstoð. Alls
staðar er þeim úthýst en þó ekki vífilengju-
laust heldur með ótrúlegum málalenging-
um; þær eru talaðar í kaf, flæmdar burt með
orðskrúði.
Fyrst reyna þær fyrir sér í húsi kaup-
mannsins („tölugasta manns plássins“ eins
og Salka nefnir hann síðar (275)). Þar tekur
á móti þeim sonur kaupmanns, Angantýr
Bogesen. Þótt drengurinn sé ekki nema tíu
ára gamall veit hann vel til sín. Hann byrjar
á því að fræða þær mæðgur um hreysti sína
og vald: „Ég á hest (...). Ég á þúsund
krónur (...). Ég kann að reykja (...). Ég
get drukkið brennivín (...)“ og svo fram-
vegis (32—35). Þessi ræða hans, sem er
eins og skopfærsla á ræðu Steinþórs litlu
fyrr, endar síðan á fúkyrða- og formælinga-
flaumi sem hrekur þær mæðgur burt, Sölku
með hendur fyrir eyrum og Sigurlínu biðj-
andi fyrir sér.
í húsi prófastsins ganga þær fram fyrir
húsráðanda sem birtist þeim „einsog hann
kæmi ofan af háum prédikunarstóli (...)“
(36). Prófastur tekur til máls og „rödd hans
[var] öll í einum tóni, köld og hol, og virtist
koma einhversstaðar ofanúr höfðinu" (37).
Hann bókstaflega hellir yfir þær hinum að-
skiljanlegustu „rökum“ fyrir því að hann
geti þeim enga aðstoð veitt, og „Gagnvart
slíku flóði af virðulegu tali stóð konan al-
veg berskjölduð“ (39). Þær hörfa burtu frá
prófasti sem „stóð einnig á fætur í allri sinni
tign og öllum sínum virðuleik, og hann var
að minsta kosti þrjár álnir á hæð“ (40).
í húsi læknisins nær þessi grái leikur með
tungumálið þó hámarki þegar læknirinn
lætur algerlega óskiljanlegar setningar
dynja á mæðgunum og endar á latínusúpu:
Tinctura digitalis aetherea, Tinctura nucis
vomitae, Tinctura strophanti, Salicylas
physostigmicus, Chloretum ammonicum
sublimatum, Hexamethylentetraminum,
Acidum salicylicum, Acidum sulphuric-
um, Acidum nitricum. (...) Ég veit þér
skiljið mig alveg fullkomlega. (44)
Eftir hástemmda „ljóðræna" viðbót við
þessa ræðu læknisins er Sigurlínu allri lok-
ið.
Sigurlína hafði ekki staðið jafn gersamlega
ráðalaus uppi gagnvart neinu sem hún hafði
heyrt þennan morgun, einsog hún stóð nú.
Hér stóð hún sem sagt uppi alveg einsog
þvara. Málfæri þessa manns og hugs-
anagángur var að minsta kosti jafn óskilj-
anlegt og hin dularfulla lykt uppúr
krukkum hans. (44)
Sigurlína og Salka fara erindisleysu á fund
valdamanna þorpsins og eru þar með ofur-
seldar valdi og vilja Steinþórs sem þegar
öllu er á botninn hvolft er sá eini sem rey nist
fær um að hjálpa þeim. En hann vill líka fá
sitthvað fyrir sinn snúð.
Sektarkenndin
Steinþór Steinsson er sérlega flókin pers-
óna frá hendi höfundar. Samtímis því að
vera grófur og fráhrindandi hefur hann
seiðmagnað aðdráttarafl sem mæðgumar
TMM 1992:3
13