Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 28
ið til Helsíngjaborgar þar sem hann vissi vin sinn frá Laxnesi sitja í skáldlegum dýrðarljóma að búa til frægar bækur fyrir heiminn. Hann borgaði farið mitt til Kaup- mannahafnar og bar búslóð mína á sjálfum sér. (Úngureg var, bls. 180-182). Þetta þarf ekki mikillar útlistunar við: Stað- reyndum ber vel saman, vinna ísleifs á bú- garði, fiðlukonsertinn, blánkheitin, madd- aman sem leigir út herbergið, sameiginleg brottför og töskuburður. En Halldór færir til og þjappar í tíma bæði máltíðum og hljóm- leikum, lengir sumt og sleppir öðm, þannig að atburðirnir fá merkingu hver af öðrum, einsog lesendur geta fullvissað sig um sjálf- ir, frásögnin dettur ekki í stök atvik einsog hjá ísleifi. Við höfum á tilfinningunni að við höfum verið að lesa smásögu sem nálg- ast dæmisögu, sem við vitum að vísu ekki alveg hvað boðar, en er þó um matinn og skáldskapinn, og hvað allur matur bliknar hjá dásemdum heimslistarinnar, og svo kemur Isleifur einsog heilagur maður og frelsar sitt skáld, einsog ungum höfundi legst alltaf eitthvað til sem öllu hættir fyrir listina. Hér er til örlítill eftirmáli, sem sýnir okk- ur að Isleifur Sigurjónsson kunni líka að fella úr sögu, í þessu tilviki tilefni bréfs Halldórs, þótt fremur væri af háttvísi en skáldskap. Við höfum nefnilega stuttan en gagnorðan vitnisburð Ásgeirs Bjarnþórs- sonar málara, sem skaut skjólshúsi yfir Halldór í Kaupmannahöfn þegar hann kom þangað frá Svíþjóð. í bókinni sem Andrés Kristjánsson skráði eftir Ásgeiri, Aflífi og sál, segir svo (bls. 34-35): Nú er þess að geta að piltur að nafni Halldór Guðjónsson ífá Laxnesi hafði álpast félítill til Helsingjaborgarogláþarnú peningalaus í svelti. Hann skrifareinhverjum kunningja sínum í Höfn — ég man ekki lengur hver það var — og biður um aðstoð í vanda. Við skutum saman nokkrum krónum og send- um honum, svo hann kæmist til Hafnar. [...] Án þess að bama þessa sögu frekar held ég að af öllu persónugalleríinu í bókunum fjór- um megi sjá af þessu að eina er Halldór að skapa öðrum fremur; sjálfan sig, enda segir á einum stað að skrýtnastur sé maður sjálfur (Ungur eg var, bls. 67). Rétt er að geta þess að a.m.k. á einum stað ber meira á milli en hér. Það er í frásögnum Halldórs af kynnum sínum af fjölskyldu Einars Benediktssonar í Úngur eg var. Hann bregður þar upp minnisstæðri en dap- urlegri mynd af Svölu dóttur þjóðskáldsins, og lýkur með því að hann er einn til að fylgja henni á skip á hráslagalegum haust- degi. Afkomendur Einars andmæltu þessu í blaðagreinum, og birtast þau andmæli skýrt í endurminningabók Hrefnu systur Svölu, Dúfu töframannsins, sem Gylft Gröndal skráði. Þar segir hún meðal annars að Svala haft farið utan að vori en ekki hausti, brottförin verið glaðleg enda fylgdi henni fjöldi ættingja og vina á skip, allir nema Halldór Laxness, enda enginn kunn- ingsskapur með þeim. Ekki ætla ég að rifja upp þessar deilur frekar, en óneitanlega hef- ur maður á tilfinningunni að Hrefna fari nær staðreyndum málsins en Halldór, og stað- festist þá það sem hann hefur sagt um þess- ar bækur að nafnkunnar persónur verði honum þar kveikja skáldskapar, tilefni sögu (BLM 1981:5). Það er mórölsk spuming að hve miklu leyti slíkt er réttlætanlegt, sjálf- sagt myndu fæst okkar vilja vera kveikja skáldskapar annars manns, undir fullu nafni. Rétt er hins vegar að hafa í huga að 26 TMM 1992:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.