Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 112

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Page 112
hann dreymir nótt eftir nótt. „Uppvakningur“ dregur mynd hins nafnlausa af mestri fyrirlitn- ingu, biturðin blæs í hann lífi og hatrið hnoðar hjartað. Og þó hefur hann ekki yfir neinu að kvarta, „á villuráfi um auðnir áhyggjuleysis og værðar“. Bráðum kemur hún af vaktinni. Það birtir en hugsun mín fellir engan skugga og sami botninn rímar við alla mína fyrriparta: Þegar mest ég þurfti við þá var ég sjálfur hvergi. Þetta em oft mögnuð ljóð, þó að sum þeirra hefðu orðið ennþá betri við styttingar. Tónninn í þeim minnir stundum á íronískustu ljóð Steins Steinars, en jafnvel hann var ekki eins miskunn- arlaus við persónur sínar og Anton Helgi. Eins og áður sagði býr Anton Helgi erlendis. Ekki er mikið um beinar myndir frá útlöndum í Ljóðaþýðingum úr belgísku, en í lokaljóðinu, „Aðfaranótt“, erum við stödd í borg sem mér finnst ekki vera Reykjavík. Maðurinn situr í kólnandi vatni og er smeykur. „Það var gengið um forstofudymar. En það / var ekki gengið um forstofudymar. /(...)/ Var hlaupið upp? Var hlaupið niður stigann?" Hann heimsækir kon- una sem lifir í öðmm heimi og tíminn snýst við. Hvað er fram og hvað aftur? Hann vill burt — „En hvaðan? Og hvurt?“ Staðir vegprestarnir benda eitthvert framávið. Nú er að bíta á jaxl og velktar tuggur: Það liggur engin leið til baka. Það liggur engin leið úl baka. Þá veistu allt; þarft ekkert að misskilja lengur. Hér gerist það sem var undirbúið í fyrsta hluta bókarinnar. Nafnlausi maðurinn klofnar í tvennt undan álagi einsemdarinnar. Það eina sem getur gert hann heilan er málið (skáldskap- urinn), og kenndin (ástin). En borgin gefur ekki von um slíkt: Og aftur er sírena hljóðnuð. Og aftur borg. Og nótt. Púlsinn blár og hraður slær á andlitum vitna. En þig og heima þína dagar uppi í ljóði. Það verður smám saman ljóst að þessi nafnlausi uppvakningur hefur séð um útgáfúna á Ljóðaþýðingum úrbelgísku. Fingraför hans em á allri bókinni. Það er til dæmis í anda hans að hafa ekkert blaðsíðutal — honum fínnst þetta skammarlega lélegur kveðskapur og lesandinn getur ekki haft svo mikinn áhuga á Ijóðunum að hann vilji beinlínis finna þau aftur, eða hvað? Þó að persónan sé ekki þægileg í viðkynningu gerir þessi afneitun bókina djúpa og áleitna. Silja Aðalsteinsdóttir Athugasemdir við ritdóm Tímarit Máls og menningar, annað heftið á þessu ári, hefur meðal annars inni að halda ritdóm um bók mína „Þörfin knýr.“ Upphaf verkakvennahreyfingar á Islandi. Ingólfur V. Gíslason er höfundur ritdómsins, sem hann nefnir: „Af verkakonum“. Við íyrsta yfirlestur var mér að vissu leyti skemmt, því greinin er skrifuð í hita, nánast í glímuskjálfta sem berþví vitni að höfundurinn telji sér efnið nákomið. Ekki var það þó saga verakvennafélaganna sem Ingólfur varð svo upptendraður af, heldur eink- um þáttur Iðju í Reykjavík, en hann mun hafa tekið að sér að rita sögu þess félags. Það er svo að sjá að honum hafi fundist ég vera komin í hans rófugarð, þar sem hann verður næsta við- skotaillur. Þama er þó mikið svigrúm og rit um samtök iðnverkafólks gætu orðið fleiri, án þess að einn eða annar beinlínis eigi það efni. En allt um það þá mun ég nú víkja að gagnrýni ritdóm- arans. Fyrst vil ég vekja athygli á fullyrðingu sem sett er fram í fyrstu málsgrein og byggir á huglægu mati, sem er mjög nægjusamt. Þar segir (leturbreyting ÞM): „Ekki er það síst verkalýðshreyfimgin sem mikið hefurverið ritað um.“ Um þetta má segja líkt og í vísunni: „... 110 TMM 1992:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.