Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014 Ferðalög og flakk Sigmar hefur ferðast vítt og breitt um Suður-Ameríku. Hér er hann staddur í Perú. Þ egar Sigmar Örn Alexandersson, sölu- stjóri hjá Tækjasölunni, var staddur í Colombo, stærstu borg Sri Lanka um jólin 2006 vék lögreglan sér óvænt að honum úti á götu og bað hann kurt- eislega að fylgja sér á lögreglustöðina. Sig- mar leit svo á að hann væri handtekinn sem kom honum í opna skjöldu, þar sem hann kannaðist ekki við að hafa brotið nokkurn skapaðan hlut af sér. Sigmari varð ekki um sel enda ekkert grín að vera tekinn höndum í framandi landi. Þegar á stöðina var komið reyndist tölva laganna varða vera í ólagi og beiðnin til Sig- mars var einföld: Getur þú lagað þetta? Sig- mari létti að vonum mikið og tók til óspilltra málanna. „Þetta var eitthvert netvandamál og ég var snöggur að finna út úr því enda menntaður tölvunarfræðingur,“ rifjar hann upp brosandi. Sigmari þykir ólíklegt að lög- reglan í Colombo hafi búið að þeim upplýs- ingum. „Ætli ég sé ekki bara svona tölvunör- dslegur!“ Hann hlær. Svo því sé til haga haldið kunni lögreglan í Colombo Sigmari bestu þakkir fyrir. Gerði vel við sig um jólin Sigmar fór einn síns liðs í ferðalag þessi jól og áramót. Flaug utan til Lundúna og þaðan áfram til Sri Lanka. „Ég var reyndar að spá í að fara til Indlands en þegar ég kom til London sá ég að hagstæðara var að fara til Sri Lanka,“ segir Sigmar sem lét það ekki trufla sig að borgarastyrjöld geisaði í landinu og mönnum ekki ráðlagt að fara þangað nema erindið væri brýnt. Sigmar gerði vel við sig um jólin, gisti á fínu hóteli í Colombo og borðaði góðan mat. Allt var hefðbundið nema hvað stór byssu- turn reis upp úr hversdagsleikanum í grenndinni. Annars varð Sigmar ekki var við átök en talsvert var um að bílar væru stöðv- aðir, væntanlega til að leita að vopnum. Milli jóla og nýárs tók hann lest upp í fjöll- in og átti þar náðuga stund í nokkra daga. Andaði að sér fjallaloftinu. „Mig langaði síðan að komast í meira fjör og hitta fólk um ára- mótin, leigði mér því bíl og tók stefnuna á strandbæinn Arugam Bay sem er frægur fyr- ir mikið fjör. Þar var hins vegar ekkert um að vera vegna stríðsástandsins og engir ferðamenn. Heimamenn urðu mjög hissa að sjá mig,“ segir hann. Íslendingur tók á móti honum Sigmar snaraði sér inn á fyrsta hótelið sem hann sá. Og hver haldiði að hafi tekið á móti honum þar? Annar Íslendingur. „Þetta var ótrúlegt. Hann hafði unnið þarna í nokkur ár sem kokkur og áttaði sig þegar ég skrifaði nafnið mitt í bókina hjá þeim. Maður reiknar ekki alveg með því að Íslendingur taki á móti manni á þessum slóðum en svona getur lífið verið skemmtilegt.“ Sigmar fékk gistingu í strákofa við strönd- ina og til öryggis var settur vörður fyrir utan um nóttina. Hann snæddi áramótasteikina með starfsfólki hótelsins, en konan sem átti það og rak hafði misst manninn sinn í flóð- bylgjunni miklu tveimur árum áður. Að sögn FERÐAST UM FRAMANDI SLÓÐIR Hvati til að kynnast fólki SIGMAR ÖRN ALEXANDERSSON VAR UM ÞAÐ BIL EINI FERÐAMAÐ- URINN Í HINU STRÍÐSHRJÁÐA LANDI SRI LANKA UM JÓLIN 2006. HEIMAMENN VORU AÐ VONUM STEINHISSA AÐ SJÁ HANN EN BÁRU HANN EIGI AÐ SÍÐUR Á HÖNDUM SÉR. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Leiðin sem Sigmar ferðaðist á Sri Lanka. Ströndin í Arugam Bay.Sigmar ásamt dóttur sinni, Rósu Marí, á ferðalagi í Perú. Sigmar í Guatemala ásamt syni sínum, Alexander Þór.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.