Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 34
Notaleg stund við kertaljós í sófunum rétt áður en Íris bauð vinkonunum að gjöra svo vel.
Jólaskraut Írisar er sérlega fínt og takið eftir hnotubrjótunum á borðinu upp við vegginn.
Ólöf Baldursdóttir leggur línurnar fyrir næsta ár og vinkonurnar gefa henni gott hljóð.
Unnur Lára Bryde, Þóra Lind og Ebba Særún Brynjarsdóttir bera saman bækur sínar.
Þess má geta að Íris mun slá upp öðrum hring af svona veitingum núna um helgina á gamlárskvöld.
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014
Matur og drykkir
(einnig mætti nota baguettebrauð
eða annað brauðkyns ef vill í stað-
inn)
Saxið tómatana smátt sem og rauðlauk og
kóríander. Blandið öllu vel saman og
bragðbætið með pipar, salti, chiliflögum og
sítrónu eftir smekk.
Salsasósa í skeljum
6 tómatar
1 rauðlaukur
½ búnt kóríander, ferskt
pipar eftir smekk
chiliflögur eftir smekk
safi úr 1 sítrónu
gróft salt eftir smekk
brauðskeljar sem Íris fékk í Kosti
Sashimi
300 g lax
3 vorlaukar
sesamolía
sesamfræ eftir smekk
gróft salt eftir smekk
Hreinsið laxinn og skerið í litla munn-
bita. Saxið vorlaukinn. Hrærið öllu saman í
skál og bragðbætið með salti, sesamolíu
og -fræjum eftir smekk. Geymið í kæli í
um 6 klst. áður en borið er fram.
500 g döðlur
250 g smjör
120 g púðursykur
5 bollar Rice Crispies
300 g rjómasúkkulaði
100 g appelsínurjómasúk-
kulaði
2 pokar lakkrískurl
Saxið döðlurnar smátt og
bræðið smjörið í potti og setjið döðl-
urnar út í. Setjið púðursykurinn þá út í
pottinn og látið malla við vægan hita þar
til döðlurnar eru orðnar mjúkar. Blandið
Rice Crispies og lakkrískurli saman við.
Setjið í stórt form og látið vera í frysti í
um hálftíma. Skerið í mátulega stóra bita.
Fallegt er að skreyta með því að sletta
bráðnu súkkulaði yfir bitana.
Döðludásemd