Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 50

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Page 50
Samantekt 50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.12. 2014 Morgunblaðið/RAX „Það er mín skoðun að á meðan íslenska er töluð á Íslandi þá sé tungumálið ekki í hættu. Tungu- málið verður hins vegar í alvarlegri hættu þegar farið verður að huga að því, eins og menn töluðu um í bólunni, að taka upp ensku sem fyrirtækja- mál í landinu vegna hnattvæðingarinnar og al- þjóðlegheitanna í fyrirtækjarekstri,“ sagði Guðni Kolbeinsson þýðandi í viðtali 9. febr- úar, aðspurður hvort íslensk tunga væri í hættu. „Það er líka mín trú að maður komist lengra á því að vera almennileg mann- eskja en fífl.“ Sagði Ólafur Darri Ólafsson leik- ari 5. janúar. Tilefnið var frumsýn- ing á Hamlet í Borgarleikhúsinu en Ólafur Darri fór með hlutverk krónprinsins. Morgunblaðið/Kristinn Viðmælendur Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins voru ótal- margir á árinu sem er að líða, þeir komu úr fjölbreyti- legum áttum, voru á öllum aldri og höfðu ólíkar, for- vitnilegar, fræðandi, spennandi og oft skemmtilegar sögur að segja sem og álit að gefa. Sunnudagsblað Morg- unblaðsins fór yfir blöð ársins 2014 tók saman nokkur eftirminnileg ummæli sem höfð voru eftir nokkrum af þessum frábæru viðmælendum og eru þó óteljandi margir ónefndir enn úr þessum góða hópi. Orð ársins 2014 í Sunnudags- blaði Morgunblaðsins FÓLKIÐ SEM BLAÐAMENN SUNNUDAGSBLAÐ MORGUNBLAÐSINS TÖLUÐU VIÐ ÁRIÐ 2014 HLEYPUR Á ÞÚSUNDUM. Á NÆSTU SÍÐUM MÁ LESA NOKKUR AF EFTIRMINNILEGRI UMMÆLUM ÁRSINS. Samantekt: Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ég tel að það sé allt öðruvísi fyrir mig, kom- andi frá átakasvæðum, að fá að tilheyra Íslandi af öllum þjóðum. Í fyrsta lagi þykir mér til þess koma af því að Ísland hefur engan her. Þá tekur Íslandi ekki að neinu marki þátt í heims- valdastefnu stórveldanna og landið stendur í framlínu fyrir mannréttindabaráttu.“ Sagði rithöfundurinn Mazen Maarouf 5. janúar, þá glænýr íslenskur ríkisborgari. Morgunblaðið/Kristinn„Bull er svo frelsandi. Sjáðu til dæmis bara fólk í sértrúarsöfnuðum sem talar tungum. Á eftir þakkar það guði og hrópar: „Já! Andinn kom yfir mig! Mér líður svo vel.“ En þetta fólk var einfald- lega bara að prófa hvernig það er að bulla í nokkrar mínútur,“ sagði Þor- steinn Guðmundsson grínisti 12. janúar. Morgunblaðið/Ómar „Ég átti 10 systkini og ekkert þeirra var eins á litinn. Ég vil meina að litirnir standi fyrir hæfileikana. Ég get oft á tíð- um séð á hvaða línu fólk er á út frá litn- um, hvers konar starf hentar því,“ sagði Bíbí Ísabella Ólafsdóttir miðill 16. febrúar í viðtali um miðlastörf. Morgunblaðið/Kristinn „Við vissum að þér leið illa og vorum hrædd um þig. Einmitt þess vegna var mikilvægt að tala um það en ekki breiða yfir. Það er enginn sem lifir bara eftir beinni braut og stígur aldrei út af sporinu. Ég er rosa- lega stolt af þér, Högni,“ sagði leikkonan Arndís Hrönn þegar hún ávarpaði bróð- ur sinn, Högna Egilsson tónlistarmann, í viðtali sem tekið var við þau sam- an 2. febrúar. „Fjölmiðlar vilja ekki bera neina samfélags- lega ábyrgð á því hvernig konur eru kynntar og settar fram. En það er ekki gott að benda á og saka konurnar sjálfar um. Þær hafa alist upp í samfélagi sem er gegnsýrt af þessum staðalímyndum,“ sagði Lára Rúnarsdóttir tónlistarkona 9. febrúar um klám- væðingu í tónlistar- myndböndum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.