Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.12.2014, Side 51
28.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Morgunblaðið/Ómar „Björk ruddi brautina, opnaði dyr út í heim fyrir íslenska listamenn, og vonandi er ég að gera eitt- hvert gagn í kvikmyndagerðinni. Þetta er mjög spennandi, það eru engin höft fyrir unga fólkið. Þegar ég var að alast upp í Kópavoginum vorum við um margt eins og austantjaldsþjóð. Velgengni í útlöndum var fjarlægur draumur,“ sagði Baltas- ar Kormákur kvikmyndaleikstjóri í viðtali 23. febrúar. Morgunblaðið/Ómar „Ég hef verið að skoða hagtölur frá öðrum löndum og sé að bólumyndun er á ýmsum stöðum. Hins vegar finnst mér að við Íslend- ingar höfum í of miklum mæli litið svo á að kreppa hafi einungis orðið á Íslandi en þetta var alþjóðleg fjármálakreppa og ef hún skellur á aftur mun hún bitna á litla Íslandi eins og öðrum,“ sagði Brynja Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Norvikur, 23. mars. Morgunblaðið/Kristinn „Knattspyrna er í eðli sínu karllægt sport. Þeir sterkustu lifa af. Með því að ljóstra því upp að ég sé haldinn geðsjúkdómi þykir örugglega ein- hverjum ég vera að gefa höggstað á mér. Það staðfestir meira en allt annað að þörf er á þessari um- ræðu,“ sagði Ingólfur Sigurðs- son knattspyrnumaður í viðtali 23. mars um eigin kvíðaröskun. Morgunblaðið/Kristinn „Þótt kuðungsígræðslan heppnist og barnið fái ein- hverja heyrn sanna dæmin að ekki er hægt að stóla á þá heyrn út lífið. Og hvað ef hún tapast síðar á lífsleið- inni? Hvaða tungumál á ein- staklingurinn þá? Það er að segja hafi hann ekki lært táknmál,“ sagði Jevgenija Kukle sem er heyrnar- laus í viðtali 30. mars. Hún og eiginmaður hennar ákváðu að börn- in þeirra, sem öll eru heyrnarlaus, færu ekki í kuðungsígræðslu. Morgunblaðið/Golli „Ég talaði við rúmlega sextuga manneskju sem sótti um starf og var langhæfasti umsækjandinn en fékk ekki starf- ið. Ég hef talað við eldra fólk sem finnst talað niður til sín og verður fyrir dónaskap í verslunum, þar á meðal var maður sem fór í fatabúð í Kringlunni og var hreytt í hann að þarna væru ekki seld föt á gamalt fólk,“ sagði Erna Indriðadóttir 6. apríl. Hún stofnaði vef- tímaritið Lifðu núna, ætlað fólki 55 ára og eldra. Morgunblaðið/Eggert „Ef einhverjum á Íslandi finnst að vegna fortíðar minnar eigi ég ekk- ert erindi þangað – ekki koma! Það er til meira en nóg af fólki í heiminum sem vill koma og hlusta á mig tala. Ég reyni ekki að sann- færa neinn um að hann verði að koma og hlusta á mig,“ sagði Jordan Belfort 6. apríl, dæmdur svikahrappur sem kom til að kenna Íslend- ingum sölutækni. Kvikmynd- in The Wolf of Wall Street er byggð á ævi hans. Morgunblaðið/Golli „Ég segi að það sé gott fyrir konur að vera frumkvöðlar, en ég veit að það er erfiðara fyrir þær tölfræðilega að afla fjár- magns heldur en karla. Það er viðurkennt að karlmenn fjár- festa frekar í ungum karl- mönnum en konum,“ sagði Ás- laug Magnúsdóttir, athafnakona í New York, í viðtali 13. apríl. Tímaritið Vogue hefur kallað hana „guðmóður tískunnar“. „Börn og unglingar geta séð svona lag- að í ljóma, ég vil alla vega ekki að mín börn lesi um menn sem stæra sig af af- brotum og ofbeldisverkum í fjöl- miðlum. Þetta er ábyrgðarhlutur hjá fjölmiðlum. Þeir hafa mikið vald,“ sagði Aldís Hilmarsdóttir, aðstoðaryf- irlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og yfirmað- ur R-2, sem rannsakar fíkniefna- mál og skipulagða glæpastarf- semi, 27. apríl. Hún vísaði í það sem kallað hefur verið „stjörnu- væðing glæpamanna“. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.