Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 2

Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 2
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 MANNRÉTTINDI „Hugmyndin er að taka þessi orð sem eru ekki til á íslensku, eins og femme og butch, non-binary, pansexual og fleira, og sjá hvort það er hægt að búa til ný orð,“ segir Unnsteinn Jóhanns- son, formaður trúnaðarráðs Sam- takanna ’78. Unnsteinn er einn þeirra sem hafa haldið utan um nýyrðakeppn- ina Hýryrði 2015 sem hefur það að markmiði að finna ný íslensk hugtök sem tengjast málefnum hinsegin fólks. Keppnin er líka hluti af fræðslu fyrir stærri hóp en samtökin hafa áður náð til. „Fólk þekkir orð eins og samkyn- hneigð og tvíkynhneigð en kannski ekki non-binary, asexual, pansex- ual og fleiri. Þetta eru orð sem eru ekki á allra vörum þannig að við erum að reyna að fá fólk til að kafa aðeins dýpra,“ segir hann. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, fyrrverandi fræðslu- stýra Samtakanna ’78, segir að fræðsla um hinsegin orðanotkun sé mikilvæg. „Þetta snýst um það að við sem samfélag séum að nota rétt orð og gerum það af virðingu. Það er svo ótrúlega mikilvægt af því að íslenskan er svo ríkt og fallegt tungumál en við erum að nota ýmis ensk heiti yfir þessa hópa í dag.“ Hún segir að tvíhyggja sé rík í íslensku samfélagi og marg- ir fastir í skilgreiningum um að kynvitund fólks nái bara til þess að vera karl eða kona en innan transsamfélagsins sé flóran mun meiri. „Það eru alls konar hlutverk eins og gender fluid og non-bin- ary og svoleiðis orð sem ekki eru til á íslensku,“ segir hún. Að sögn Uglu hefur myndast ákveðin hefð fyrir kynhlutlausri orðanotkun innan transsamfélags- ins, til dæmis að nota fornafnið hán í staðinn fyrir hann eða hún. „Þá hafa komið upp alls konar kynlaus orð eins og í staðinn fyrir vinur eða vinkona þá væri það vinið mitt. Og þessi orð eru ein- mitt hluti af keppninni að finna ný orð fyrir til dæmis frændi eða frænka.“ Hún segir transfólk meðvitað um að það sé erfitt fyrir fólk að til- einka sér kynhlutlaus orð en með tíma og æfingu trúir hún því að orðaforðinn gæti breyst. Þá segir hún að sumir leggi sig ekki fram við að nýta rétt hugtök og þannig upplifi transfólk oft fordóma. Margir misskilja það að vera hinsegin. Fólk telur oft að hug takið eigi bara við um samkynhneigð en fjölbreytnin innan hópsins er meiri en svo. „Margir hugsa að hinsegin standi bara fyrir samkynhneigð en það stendur fyrir samkynhneigð, tví- kynhneigð, transfólk, intersex fólk og alla þessa hópa.“ stefanrafn@frettabladid.is Íslenskan ekki bara fyrir karla og konur Hýryrði 2015 er nýyrðakeppni Samtakanna ’78. Markmið keppninnar er bæði að styrkja íslenska tungu og fræða fólk um fjölbreytnina innan hinsegin samfélags- ins. Að vera hinsegin einskorðast ekki við samkynhneigð líkt og margir halda. HINSEGIN DAGAR Mikil tvíhyggja þykir ríkja í íslensku samfélagi þegar kemur að orðanotkun. Margir eiga enn eftir að átta sig á því að kynvitund einskorðast ekki við það að vera karl eða kona. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM UNNSTEINN JÓHANNSSON UGLA STEFANÍA KRISTJÖNUDÓTT- IR JÓNSDÓTTIR Androgyny Kyntjáning eða kynvitund sem er sambland af karllægri og kvenlægri kyntjáningu. Butch og femme Hugtök sem tilgreina karlkyns eða kvenkyns kyntjáningu innan hinsegin samfélagsins. Agender Fólk sem skilgreinir sig án kyns eða kynhlutlaust. Bigender Fólk sem upplifir tvö kyn eða flakk á milli kynja. Gender fluid Fólk sem upplifir fljótandi kynvitund. Non-Binary Fólk sem upplifir sig fyrir utan tvíhyggjuskil- greininguna karl eða kona. Pangender Svipar til non-binary þar sem fólk upplifir margþætta kynvitund. Asexual Fólk sem hefur oft litla eða enga kynferðislega löngun. Aromantic Fólk sem laðast ekki rómantískt eða tilfinn- ingalega að öðrum. Ókyngreind frændsemisorð Frænka/frændi, kærasti/ kærasta, mamma/pabbi, sonur/dóttir, vinkona/vinur. Hýryrði ársins Í dag gengur hann í austan 5 til 10 metra á sekúndu, en hvassari vindstrengur verður með suðurströndinni. Það mun rigna sunnan- og síðar austanlands, en um landið norðanvert lyftist brúnin því þar léttir til og hlýnar. VEÐUR SJÁ SÍÐU 50 ➜ Björn Teitsson og samstarfsfélagar hans hjá Rauða krossi Íslands skoða hvort koma eigi upp hjálparsíma fyrir þolendur, aðstandendur og gerendur kyn- ferðis- brota. Einar Guðmundsson, formaður Brautarinnar, bindindisfélags öku- manna, hefur áhyggjur af hjólaöryggi eftir að skýrsla Brautarinnar leiddi í ljós að einungis fjórtán prósent nýrra reiðhjóla væru seld með skyldubúnaði áföstum. Þorbjörg Þorvaldsdóttir hjá Samtökunum ’78 er einn aðstandenda hýryrða- samkeppni. Markmiðið er að finna íslensk nýyrði yfir ýmis hinsegin hugtök. Annþór Kristján Karlsson og samfangi hans, Börkur Birgisson, hyggjast höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu eftir að hafa verið vistaðir á öryggisgangi á Litla-Hrauni í átján mánuði vegna gruns um að hafa valdið dauða samfanga síns. Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir dagforeldrakerfið til- raun til að leysa óþolandi ástand eftir að foreldrar fara úr fæðingarorlofi og bíða eftir plássi á leikskóla. FRÉTTIR VITA er lífið VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is Tilboðsverð frá 59.900 kr.* á mann m.v. 2 í herbergi í 4 nætur. Vikuferð frá 79.900 kr.* á mann m.v. 2 í herbergi í 7 nætur. *Gist á Hótel Rosamar með hálfu fæði. ÍS LE N SK A SI A .I S V IT 7 56 09 08 /1 5 Löng helgi á Spáni Alicante 21.–25. ágúst FIMM Í FRÉTTUM DÆGURMÁL OG DAGFORELDRARGLEÐIFRÉTTIN Regnbogi á Skólavörðustíg Hinsegin dagar voru settir á hýrum sumardegi í miðborg Reykjavíkur síðast- liðinn þriðjudag. Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður Hinsegin daga, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri settu há- tíðina. SKIPULAGSMÁL Landsbankinn hefur ákveðið að fresta hönn- unarsamkeppni um fyrirhugaða nýbyggingu bankans sem hefjast átti síðar í þessum mánuði. Í tilkynningu á vef bankans segir að það sé meðal annars gert til að fara yfir þau sjónarmið sem fram hafa komið á síðustu vikum. Þá segir að nánar verði gerð grein fyrir framhaldinu opinber- lega þegar frekari ákvarðanir liggja fyrir. Fyrirhuguð bygging bankans við Austurhöfn í Reykja- vík hefur verið gagnrýnd harð- lega, meðal annars af þingmönn- um. - jhh Fresta hönnunarsamkeppni: Bankinn skoð- ar gagnrýnina SAMGÖNGUR Vetraráætlun Strætó á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hefst 16. ágúst. Á Norður- og Norðurausturlandi hefst hún hálfum mánuði seinna og á Suðurlandi og Vestur- og Norðurlandi 13. september. Helstu breytingar á vetrar- áætlun Strætó á höfuðborgar- svæðinu verður sú að leiðir 2, 5, 11, 12, 13, 14, 15, 18, 24, 28 og 35 fara á korters fresti á annatíma. Í tilkynningu frá Strætó er notendum bent á að nálgast frekari upplýsingar á vefnum straeto.is. - jhh Ellefu leiðir á korters fresti: Vetraráætlun hefst 16. ágúst Indverskur karlmaður heldur á sjónvarpinu sínu og reynir að forða því úr flóði í Howrah-héraði í Vestur-Bengal í gær. Þar hefur rignt gríðarlega og ár hafa flætt yfir bakka sína og flætt inn í hérað í Manipur sem hefur orðið til þess að vegir og brýr hafa farið í sundur. - jhh Íbúar í Vestur-Bengal leggja hart að sér við að bjarga eigum: Flóð eyðileggja innviði á Indlandi Á HAUSNUM Þessi maður mátti hafa sig allan við til þess að bjarga sjónvarpinu sínu frá því að eyðileggjast í vatnselginum. NORDICPHOTOS/AFP 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 A D -F 1 6 0 1 5 A D -F 0 2 4 1 5 A D -E E E 8 1 5 A D -E D A C 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 1 2 8 s C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.