Fréttablaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 110
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 54
LAUGARDAGUR
„Það er ekkert sjálfsagt að fá allt
upp í hendurnar eins og mörg börn
á Íslandi þannig að mér fannst
bara gott að geta gert eitthvað,“
segir Ragnhildur Katla Jónsdóttir.
Ragnhildur er sextán ára gömul
og hefur upp á síðkastið verið að
gera bókamerki sem hún mun
selja á Fiskideginum mikla sem
fer fram á Dalvík um helgina og
mun allur ágóði af sölunni renna
til UNICEF.
Hún segist alltaf hafa haft
gaman af því að föndra og meðal
annars gert ýmiss konar tæki-
færis kort sem hún selur á Face-
book.com/Rokkrós. „Svo sá ég
hugmynd að svona bókamerkjum
og fannst þau svo sæt að ég ákvað
að prófa að búa þau til. Þetta er
einmitt svona stærð sem er gott að
selja, ekkert of dýrt og er bara svo
sætt eitthvað,“ segir hún og bætir
við: „Svo datt mér í hug að reyna
að hjálpa og gera eitthvert gagn.
Það er mjög takmarkað hvað 16
ára stelpa getur gert til að hjálpa
heiminum en mig langaði samt til
að gera eitthvað.“ Bókamerkin eru
gerð úr pappír og koma meðal ann-
ars í formi uglu, flugdreka og refs.
Ragnhildur komst í kynni við
UNICEF þegar barnahjálparsam-
tökin sóttu Dalvík heim á dögun-
um og ákvað í framhaldi af því að
athuga hvort hún gæti ekki lagt
eitthvað til samtakana og ákvað í
kjölfarið að hana langaði til þess
að láta gott af sér leiða.
Hún hlakkar til að standa vakt-
ina og vonast til að salan muni
ganga vel. „Ég vona að þetta gangi
svo vel að ég þurfi að gera fleiri.
Ég vona að ég geti safnað heilum
hellingi fyrir börnin úti í heimi.“
- gló
Selur bókamerki og lætur gott af sér leiða
Ragnhildur Katla Jónsdóttir hefur alltaf haft gaman af því að föndra og ætlar að selja bókamerki á Fiski-
deginum mikla til styrktar UNICEF. Hún vonast til að geta safnað heilum hellingi fyrir börnin úti í heimi.
HUGSJÓNAKONA Ragnhildur Katla
hefur alltaf haft gaman af því að
föndra. Bókamerkin eru í hinum ýmsu
myndum, meðal annars ís, ugla, refur og
flugdreki. MYND/ELÍNINGA
N á n a r i u p p l ý s i n g a r á h e i m a s í ð u V M
w w w . v m . i s
VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna - Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 Landsfélag í vél- og málmtækni
FÉLAGSFUNDUR VM
>> Þriðjudaginn 11. ágúst í Reykjavík
VM húsinu, Stórhöfða 25, 3. hæð. kl. 20:00
Fundurinn verður sendur út
í beinni á heimasíðu félagsins, www.vm.is
>> Miðvikudaginn 12. ágúst á Akureyri
Skipagötu 14, í sal Einingar-Iðju 2. hæð. kl. 17:30
Dagskrá fundarins:
1. Staðan í kjaraviðræðum
2. Önnur mál
Félagsfundir VM verða haldnir í Reykjavík og
á Akureyri vegna kjaraviðræðna VM við SA
SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
8. ÁGÚST 2015
Tónleikar
12.00 Andreas Liebig leikur á tón-
leikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hall-
grímskirkju í dag. Miðaverð er 2.000
krónur.
16.00 Hljómsveitin Vára heldur
hinsegin tónleika í Lucky Records í dag.
Aðgangur ókeypis.
17.00 Hljómsveitin Reykjavík Swing
Syndicate leikur á sumardjasstón-
leikaröð Jómfrúarinnar við Lækjargötu.
Hljómsveitina skipa Haukur Gröndal
á klarinett, Jóhann Guðmundsson og
Ásgeir J. Ásgeirsson á gítar og Gunnar
Hrafnsson á kontrabassa. Aðgangur er
ókeypis.
20.30 Jónína Aradóttir spilar á tónleikum
í gróðurhúsinu í Friðheimum, Reykholti.
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir syngur
bakraddir. Miðaverð er 1.500 krónur.
21.00 Hljómsveitin Low Roar spilar á
tónleikum á Húrra í kvöld. Miðaverð er
1.500 krónur.
21.00 Lára Rúnars spilar á tónleikum í
Bræðraborg á Ísafirði í kvöld. Miðaverð
er 1.500 krónur.
22.00 Svavar Knútur spilar á tónleikum
á Café Rósenberg í kvöld. Svavar Knútur
mun frumflytja tvö ný lög og leynigestir
fara á svið á undan tónleikunum. Miða-
verð er 1.500 krónur.
23.00 Ingvar Grétarsson og félagar leika
og syngja á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka-
stíg 8. Aðgangur er ókeypis.
23.00 Steed Lord, Duo-Raw
og dj Siggi Gunn verða á
Reykjavík Pride Dance í
Iðnó í kvöld. Miðaverð við
hurð er 3.500 krónur.
Opnanir
13.00 Alþjóðlegi listahópur-
inn Wiolators opnar
sýningu í Kunstschla-
ger Stofu, Listasafni
Reykjavíkur í dag.
Hópurinn var
saman í námi
í Hollandi en
býr nú víðs
vegar um
heiminn en
heldur árlega
sýningar í
heimalöndum
meðlima.
Sýningin
endar þann
21. ágúst.
Sýningar
20.00 Leikhópurinn Patriciu Pardo sýnir
Marx Fandango í Frystiklefanum á Rifi
í kvöld. Sirkus, trúðaleikur, fimleikar og
tónlist blandast saman í leikhúsupplifun
fyrir alla fjölskylduna. Áhorfendur ráða
miðaverði sjálfir.
Uppákomur
14.00 Gleðigangan hefst á Vatnsmýrar-
vegi og endar við Arnarhól þar sem fjöldi
tónlistarmanna koma fram á Regnboga-
hátíð. Meðal tónlistarmanna sem koma
fram eru AmabAdamA, Steed Lord,
Agent Fresco og Páll Óskar.
Dansleikir
23.00 Sálin hans Jóns míns spilar
á Sumar á Selfossi dansleiknum
sem fram fer í Hvíta húsinu á
Selfossi. Aldurstakmark er 18 ár og
miðaverð er 3.000 krónur.
Tónlist
22.00 Dj Hrönn þeytir
skífum á Frederiksen
Ale House í kvöld.
22.00 Dj Ísar Logi
þeytir skífum á
Bravó í kvöld.
22.00 Dj Margeir
þeytir skífum á
Kaffibarnum í
kvöld.
Markaðir
13.00 Regnboga-
hátíð á götu-
markaðnum
KRÁS í Fógeta-
garðinum í dag.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
9. ÁGÚST 2015
Tónleikar
14.00 Tenórinn Eyjólfur Eyjólfs-
son, baritóninn Hugi Jónsson og
organistinn Kári Allansson leika á
tónlistarhátíðinni Englar og menn í
Strandarkirkju í Selvogi. Yfirskrift tón-
leikanna er Baðstofan og kirkjuloftið.
Miðaverð er 1.500 og ekki er tekið við
greiðslukortum.
15.00 Dúettinn Singimar sem skip-
aður er píanóleikaranum Inga Bjarna
Skúlasyni og kontrabassaleikaranum
Sigmari Þór Matthíassonar kemur
fram á Pikknikk tónleikum í Norræna
húsinu.
17.00 Andreas Liebig leikur á lokatón-
leikum Alþjóðlegs orgelsumars. Verk
eftir Liszt, J.S. Bach, Reger, Franck og
Duruflé fá að hljóma. Miðaverð er
2.500 krónur.
20.00 Tónlistarmaðurinn Vlad Dimu-
lescu spilar á tónleiknum í Salnum
í Kópavogi. Tónleikarnir eru hluti
af Tónlistarhátíð unga fólksins. Á
efnisskránni eru verk eftir Brahms og
Enescu. Miðaverð er 2.200 krónur.
21.30 Búðarbandið kemur fram á
sérstökum Hinsegin daga tónleikum
á skemmtistaðnum Kiki Queer Bar.
Miðaverð er 1.000 krónur.
Sýningar
20.00 Leikhópurinn Patriciu Pardo
sýnir Marx Fandango í Frystiklefanum
á Rifi. Áhorfendur ráða miðaverði
sjálfir.
Tónlist
21.00 Dj Krystal Carma þeytir skífum á
Kaffibarnum.
21.00 Dj Madame Melancolique þeytir
skífum á Bravó.
Leiðsögn
14.00 Helga Vollertsen leiðir gesti
í gegnum sýninguna Hvað er svona
merkilegt við það? sem stendur yfir í
Bogasal Þjóðminjasafnsins. Aðgangur
ókeypis.
Listamannaspjall
14.00 Claudia Hausfeld og Pétur Thom-
sen ræða um verk sín á sýningunni
Enginn staður– íslenskt landslag sem
stendur yfir í aðalsal Hafnarborgar.
Á sýningunni eru verk eftir átta ljós-
myndara, auk Claudiu og Péturs eiga
þau Björn Árnason, Daniel Reuter,
Edda Fransiska Kjarval, Ingvar Högni
Ragnarson, Katrín Elvarsdóttir og Stuart
Richardsson verk á sýningunni.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
Svo datt mér í hug
að reyna að hjálpa og
gera eitthvert gagn.
Ragnhildur Katla Jónsdóttir.
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
E
-0
A
1
0
1
5
A
E
-0
8
D
4
1
5
A
E
-0
7
9
8
1
5
A
E
-0
6
5
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K