Fréttablaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 64
Á fljúgandi ferð
Vegna sífellt vaxandi flugumferðar og umsvifa á Keflavíkurflugvelli og víðar
óskar Isavia eftir öflugu fólki á ýmsum sviðum.
Þjónustuliði
Við leitum að glaðlyndum og sérstaklega þjónustulunduðum
einstaklingum með góða samskiptahæfileika til starfa í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Þjónustuliðar veita farþegum bestu
þjónustu sem mögulegt er með því að vera þeim innan handar,
veita upplýsingar og greiða fyrir för þeirra með réttum
úrræðum.
Meðal helstu verkefna er þjónusta við farþega, umsjón og eftirlit
með þjónustuborðum, eftirlit með búnaði sem farþegar nota og
önnur tilfallandi verkefni sem snúa að aðstoð við farþega. Unnið
er á dag- og næturvöktum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Aldurstakmark 20 ár
• Sjálfstæð vinnubrögð og lipurð í samskiptum
• Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
• Góð kunnátta í ensku og íslensku – þriðja tungumál er kostur
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst
Rafeindavirki
Við óskum eftir að ráða rafeindavirkja í eignaumsýsludeild
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Meðal helstu verkefna eru
uppsetning, viðgerðir og eftirlit með rafeindabúnaði.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafeindavirkjun
• Reynsla af viðgerðum á stafrænum og hliðrænum rafeindabúnaði
• Góð tölvukunnátta
• Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á aðgangsstýringum
og öryggiskerfum
• Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst
Hópstjóri þjónustuliða
Hópstjóri leiðir teymi þjónustuliða og sinnir sjálfur daglegum
verkefnum þjónustuliða í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gerð er
krafa um góða samskiptafærni og sjálfstæð vinnubrögð.
Unnið er á dag- og næturvöktum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi er kostur
• Starfsreynsla sem nýtist
• Stjórnunarhæfileikar
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 23. ágúst
Sérfræðingur í rekstri farangurskerfa
Við óskum eftir að ráða sérfræðing í rekstri farangurskerfa
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Meðal helstu verkefna er dagleg
umsjón með virkni, viðhaldi og viðhaldsáætlunum
farangurskerfa, ábyrgð á gæðakerfi, gerð og eftirfylgni
rekstraráætlana ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði vélaverkfræði, véltæknifræði eða
sambærileg menntun sem nýtist í starfi er skilyrði
• Reynsla eða menntun á sviði framleiðslu- eða
færibandakerfa er æskileg
• Góð tækni- og tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli
Umsóknarfrestur er til 13. september
Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015. Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við stefnu
fyrirtækisins um að vinna að jafnréttismálum og hvatning til að halda áfram á þeirri leið.
Umsóknum skal skilað inn á rafrænu formi á www.isavia.is/atvinna
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
E
-4
5
5
0
1
5
A
E
-4
4
1
4
1
5
A
E
-4
2
D
8
1
5
A
E
-4
1
9
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K