Fréttablaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 46
8. ÁGÚST 2015 LAUGARDAGUR6 ● Fréttablaðið ● Enski boltinn
Gylfi í búningi Hoffenheim að taka á Marco Reus.
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON Í GEGNUM ÁRIN
Gylfi Þór Sigurðsson verð-ur eini Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni í
vetur. Hann þarf að fylgja eftir
frábæru tímabili hjá sér í fyrra.
Þá skoraði Gylfi sjö mörk
fyrir Swansea og gaf tíu stoð-
sendingar. Hann var í þriðja til
fimmta sæti á lista yfir þá leik-
menn sem gáfu flestar stoðsend-
ingar í deildinni sem er ansi vel
af sér vikið.
Stoðsendingarnar hefðu ef-
laust orðið fleiri ef hann hefði
haft Wilfried Bony í liði með sér
allt tímabilið.
HÉLT MEÐ MAN. UTD
Swansea hafnaði í áttunda sæti
í deildinni á síðustu leiktíð og
náði þess utan að vinna báða
sína leiki gegn Man. Utd og
Arsenal. Swansea varð þriðja
liðið í sögu úrvalsdeildarinnar
sem afrekar það.
„Þar sem ég var stuðnings-
maður Man. Utd þegar ég var
yngri þá var auðvitað mjög sér-
stakt að skora á Old Trafford,“
sagði Gylfi Þór er hann rifjar
upp leikinn eftirminnilega á Old
Trafford í fyrra.
„Það var líka mjög skemmti-
legt að vinna Arsenal á útivelli
þó að við værum í vörn í 85 mín-
útur. Það var mjög sérstakt að
vinna þann leik.“
GETUM GERT BETUR
Swansea ætlar að byggja á þess-
um góða árangri frá síðustu
leiktíð og Gylfi er sannfærður
um að liðið geti gert enn betur
í ár.
„Ef maður horfir yfir tímabil-
ið í fyrra þá komu leikir þar sem
við hefðum getað fengið meira
út úr. Ég er á því að við getum
gert enn betur þó svo tímabil-
ið í fyrra hafi verið mjög flott,“
segir okkar maður.
ÞURFUM AÐ TAKA NÆSTA SKREF
Liði Swansea er stýrt af hinum
36 ára gamla Garry Monk og sá
sannaði í fyrra að hann kann
ýmislegt fyrir sér í fræðunum.
„Nú þurfum við að taka næsta
skref. Mér fannst við vera frá-
bærir í fyrra og tókum þá stórt
skref fram á við. Ég er metn-
aðar fullur og vil taka annað
stórt skref í viðbót. Sem þjálf-
ari þá verður maður alltaf að
vilja meira. Maður á aldrei að
vera sáttur,“ segir Monk.
Til þess að bregðast við brott-
hvarfi Bony þá hefur Monk feng-
ið framherjana Eder, sem kom
frá Braga, og svo Andre Ayew
frá Marseille í Frakklandi.
„Ég var búinn að ákveða
snemma hvaða framherja ég
vildi fá og við gengum frá kaup-
unum snemma. Þá koma þeir
strax í hópinn og geta tekið full-
an undirbúning. Mér finnst það
skipta máli. Liðið er nánast full-
mótað en það gætu fleiri komið
á lokasprettinum.“
ENGIN VIRÐING FYRIR CHELSEA
Tímabilið byrjar með látum hjá
Swansea því liðið sækir meist-
ara Chelsea heim á morgun.
„Við munum mæta óhrædd-
ir og gera allt sem við getum
til þess að gefa þeim leik. Við
munum reyna að trufla þeirra
leik og nýta þau tækifæri sem
við fáum. Við erum ekki lið
sem gefur neitt eftir og förum í
þennan leik til þess að taka þrjú
stig eins og alltaf.“
Framtíðin virðist vera björt
hjá Swansea. Unglingalið félags-
ins er að spila í hærri styrk-
leikaflokki og svo stendur til að
stækka heimavöll félagsins.
„Þetta er félag í uppbygg-
ingu og við reynum að gera allt
í réttum skrefum. Við verð-
um að flýta okkur hægt. Inn-
viðirnir verða að vera sterkir
sem og grunnurinn svo hægt sé
að fljóta áfram í rétta átt. Tak-
markið er að félagið verði sterk-
ara með hverju árinu,“ segir
Garry Monk.
Sérstakt að skora á Old Trafford
● Swansea kom skemmtilega á óvart í ensku úrvalsdeildinni og félagið er staðráðið í að fylgja þeim árangri eftir. Það er metnaður hjá félaginu og það ætlar að
klifra ofar í töfluna. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson verður í lykilhlutverki hjá félaginu í vetur og ætlar sér að gera enn betur en í fyrra.
Gylfi er hér með Reading í baráttu við Lucas, leikmann Liverpool. Rooney reynir að hægja á Gylfa er hann lék með Spurs.
Ný tækifæri. Gylfi Þór er hér í æfingaleik með Swansea um síðustu mánaðamót. Hann verður í lykilhlutverki hjá Swansea.
Ég er
á því að
við getum gert
enn betur þó
svo tímabilið í
fyrra hafi verið
fl ott.
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
E
-4
F
3
0
1
5
A
E
-4
D
F
4
1
5
A
E
-4
C
B
8
1
5
A
E
-4
B
7
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K