Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 38

Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 38
FÓLK|HELGIN FJÖLBREYTT LAGAVAL „Kórinn flytur líka mjög fjölbreytt efni og meðlimir hans eru opnir fyrir hvers konar tónlist. Enda verður efnisvalið fjölbreyttara með hverju árinu,” segir Helga Margrét. MYND/PJETUR Enda verður efnisvalið fjölbreyttara með hverju árinu þar sem getan verður bæði meiri og kórmeð- limir verða forvitnari og metnaðarfyllri. Á vortón- leikunum sungum við allt frá íslenskum þjóðlögum og íslenskri samtímakóratónlist til Queen og Tinu Turner.“ MIKILVÆG TÍMASETNING Í gær hélt kórinn vel heppnaða tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík fyrir fullu húsi. „Eins og venjulega var efnisvalið fjölbreytt og stemningin var virkilega góð. Undanfarin ár höfum við fengið góða gesti til liðs við okkur og í gær söng karlakórinn Esja með okkur. Esja er ungur kór en þeir hafa verið að gera það gott og slá í gegn hvar sem þeir syngja.“ Hún segir mikilvægt fyrir kórinn að halda tónleika á þessum tíma og taka þannig þátt í glæsilegri dagskrá Hinsegin daga. Um leið sé skemmtilegt að fá gesti á tónleikana sem eru sérstaklega í Reykjavík vegna hátíðarhaldanna. „Til að mynda höfum við fengið erlendan gest á tónleika okkar sem hefur svo heimsótt okkur á æfingar í kjölfarið. Hann íhugar nú að dvelja lengri tíma á landinu ár hvert til þess eins að geta fengið að syngja með okkur á tónleikum. Það þykir okkur ekki leiðinlegt.“ JAFNVEL SUNGIÐ OG DANSAÐ Sem fyrr segir hefur kórinn gengið með í gleðigöngunni frá stofnun en Helga Margrét segir mikilvægt fyrir kórinn að sýna sig og kynna starfið fyrir sem flestum. „Við göngum og spilum tónlist sem tekin hefur verið upp á tónleikum okkar og syngjum jafnvel og dönsum smá í þeim lögum þar sem það á við. Enda er eitt af markmiðum kórsins að dreifa gleði í gegnum söng. Við viljum einnig meina að þátttaka okkar í göngunni hjálpi til með að uppfylla þau markmið sem við setjum okkur, þ.e. að vera fordómalaus vettvangur fólks til að hittast og njóta söngs saman, vinna að þátttöku hinsegin fólks í menningarlífinu, vera jákvæð fyrirmynd og stuðla að sýnileika hinsegin fólks.“ ÓGLEYMANLEG FERÐ Þrátt fyrir að hafa starfað í nokkur ár hefur kórinn ferðast víða og um leið fengið góðar heimsóknir erlendis frá. „Eftir fyrsta starfsárið okkar fórum við í heimsókn til Færeyja og tókum þátt í fyrstu gleðigöngunni sem Færeyingar héldu í mörg ár. Þetta var ógleymanleg ferð því gangan tókst vonum framar og við fundum að við gátum lagt baráttunni lið og vorum í raun að upplifa stórt skref í hinsegin baráttunni í Færeyjum. Það var ljúf stund að ganga niður í miðbæ Þórshafnar þann dag.“ Síðastliðið sumar tók kórinn þátt í Hinsegin kóramóti í Dublin ásamt um 1.500 manns. „Ungi kórinn frá Íslandi fékk þar frábærar móttökur og söng meðal annars fyrir fullum 1.200 manna sal. Þetta var auðvitað mjög skemmtilegt og móttökurnar ekki síður mikil viðurkenning á okkar starfi.“ HEILMIKILL LÆRDÓMUR Í sumar hélt kórinn til London og heimsótti vina- kór sinn, Pink Singers, sem er elsti hinsegin kór Evrópu. „Pink Singers heimsótti okkur sumarið 2013 og við héldum saman tónleika. Kórarnir náðu einstaklega vel saman og þá var strax ákveðið að við myndum hittast aftur fljótlega. Við héldum síðan flotta tónleika með þeim í gamalli kirkju í London fyrr í sumar.“ Helga Margrét segir mikilvægt að hitta aðra kóra og kynnast því hvernig þeir starfa. „Við lær- um heilmikið af öllum ferðunum og heimsóknum sem við fáum. Kórstjóri Pink Singers er söngþjálf- ari hjá Ensku þjóðaróperunni í London og fór ég með honum þangað og fékk kynningu á starfsem- inni. Um leið hefur verið virkilega gefandi fyrir mig að komast í samband við reynslumikla kórstjóra og raddþjálfara en allt skilar þetta auknum krafti inn í starf okkar.“ ANNASÖM VIKA Vikan er búin að vera annasöm hjá Helgu Mar- gréti. „Kórinn æfði alla daga vikunnar sem endaði með tónleikunum. Einnig söng ég og hlustaði á frábæra Stellutónleika á þriðjudagskvöld í Iðnó. Á fimmtudag sungum við í Hörpu á opnunarhátíð Hinsegin daga en hún var afskaplega hátíðleg og vel heppnuð. Stemningin var frábær og öll atriðin líka. Í dag er auðvitað gangan sjálf en þar mun ég ganga með kórfélögum, fjölskyldum þeirra og vin- um. Seinni hluta dags mun ég svo eyða með vinum og aldrei að vita nema maður endi á balli Hinsegin daga sem haldið er í Iðnó í kvöld.“ Hún nær þó ekki að sofa lengi út á morgun enda búin að ráða sig í tónlistarverkefni sem þarfnast bæði vinnu og skipulags. „Þrátt fyrir þetta allt vildi ég óska þess að ég gæti tekið meiri þátt í öll- um fræðsluviðburðum Hinsegin daga. Ég vil meina að dagskráin hafi aldrei verið eins glæsileg og í ár. Stjórn Hinsegin daga á heiður skilinn fyrir og ég vona að sem allra flestir mæti. Strax eftir helgi fara svo fram raddprufur fyrir Hinsegin kórinn og hvet ég alla áhugasama til að mæta. Nánari upp- lýsingar má finna á Facebook-síðunni Raddprufur Hinsegin kórsins.“ ■ starri@365.is Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949 Betra blóðflæði Rauðrófu kristall 100% náttúrulegt Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn Nitric Oxide Superbeets allt að 5 sinnum öflugri 1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa Íslensk vottun á virkni NO3 Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi. ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi. 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 A E -6 7 E 0 1 5 A E -6 6 A 4 1 5 A E -6 5 6 8 1 5 A E -6 4 2 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 1 2 8 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.