Fréttablaðið - 08.08.2015, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN
FJÖLBREYTT LAGAVAL „Kórinn flytur líka mjög fjölbreytt efni
og meðlimir hans eru opnir fyrir hvers konar tónlist. Enda verður
efnisvalið fjölbreyttara með hverju árinu,” segir Helga Margrét.
MYND/PJETUR
Enda verður efnisvalið fjölbreyttara með hverju
árinu þar sem getan verður bæði meiri og kórmeð-
limir verða forvitnari og metnaðarfyllri. Á vortón-
leikunum sungum við allt frá íslenskum þjóðlögum
og íslenskri samtímakóratónlist til Queen og Tinu
Turner.“
MIKILVÆG TÍMASETNING
Í gær hélt kórinn vel heppnaða tónleika í
Fríkirkjunni í Reykjavík fyrir fullu húsi. „Eins og
venjulega var efnisvalið fjölbreytt og stemningin
var virkilega góð. Undanfarin ár höfum við
fengið góða gesti til liðs við okkur og í gær söng
karlakórinn Esja með okkur. Esja er ungur kór en
þeir hafa verið að gera það gott og slá í gegn hvar
sem þeir syngja.“ Hún segir mikilvægt fyrir kórinn
að halda tónleika á þessum tíma og taka þannig
þátt í glæsilegri dagskrá Hinsegin daga. Um leið
sé skemmtilegt að fá gesti á tónleikana sem eru
sérstaklega í Reykjavík vegna hátíðarhaldanna.
„Til að mynda höfum við fengið erlendan gest á
tónleika okkar sem hefur svo heimsótt okkur á
æfingar í kjölfarið. Hann íhugar nú að dvelja lengri
tíma á landinu ár hvert til þess eins að geta fengið
að syngja með okkur á tónleikum. Það þykir okkur
ekki leiðinlegt.“
JAFNVEL SUNGIÐ OG DANSAÐ
Sem fyrr segir hefur kórinn gengið með í
gleðigöngunni frá stofnun en Helga Margrét segir
mikilvægt fyrir kórinn að sýna sig og kynna starfið
fyrir sem flestum. „Við göngum og spilum tónlist
sem tekin hefur verið upp á tónleikum okkar og
syngjum jafnvel og dönsum smá í þeim lögum þar
sem það á við. Enda er eitt af markmiðum kórsins
að dreifa gleði í gegnum söng. Við viljum einnig
meina að þátttaka okkar í göngunni hjálpi til með
að uppfylla þau markmið sem við setjum okkur, þ.e.
að vera fordómalaus vettvangur fólks til að hittast
og njóta söngs saman, vinna að þátttöku hinsegin
fólks í menningarlífinu, vera jákvæð fyrirmynd og
stuðla að sýnileika hinsegin fólks.“
ÓGLEYMANLEG FERÐ
Þrátt fyrir að hafa starfað í nokkur ár hefur kórinn
ferðast víða og um leið fengið góðar heimsóknir
erlendis frá. „Eftir fyrsta starfsárið okkar fórum
við í heimsókn til Færeyja og tókum þátt í fyrstu
gleðigöngunni sem Færeyingar héldu í mörg ár.
Þetta var ógleymanleg ferð því gangan tókst
vonum framar og við fundum að við gátum lagt
baráttunni lið og vorum í raun að upplifa stórt
skref í hinsegin baráttunni í Færeyjum. Það var
ljúf stund að ganga niður í miðbæ Þórshafnar
þann dag.“
Síðastliðið sumar tók kórinn þátt í Hinsegin
kóramóti í Dublin ásamt um 1.500 manns. „Ungi
kórinn frá Íslandi fékk þar frábærar móttökur
og söng meðal annars fyrir fullum 1.200 manna
sal. Þetta var auðvitað mjög skemmtilegt og
móttökurnar ekki síður mikil viðurkenning á okkar
starfi.“
HEILMIKILL LÆRDÓMUR
Í sumar hélt kórinn til London og heimsótti vina-
kór sinn, Pink Singers, sem er elsti hinsegin kór
Evrópu. „Pink Singers heimsótti okkur sumarið
2013 og við héldum saman tónleika. Kórarnir náðu
einstaklega vel saman og þá var strax ákveðið að
við myndum hittast aftur fljótlega. Við héldum
síðan flotta tónleika með þeim í gamalli kirkju í
London fyrr í sumar.“
Helga Margrét segir mikilvægt að hitta aðra
kóra og kynnast því hvernig þeir starfa. „Við lær-
um heilmikið af öllum ferðunum og heimsóknum
sem við fáum. Kórstjóri Pink Singers er söngþjálf-
ari hjá Ensku þjóðaróperunni í London og fór ég
með honum þangað og fékk kynningu á starfsem-
inni. Um leið hefur verið virkilega gefandi fyrir mig
að komast í samband við reynslumikla kórstjóra
og raddþjálfara en allt skilar þetta auknum krafti
inn í starf okkar.“
ANNASÖM VIKA
Vikan er búin að vera annasöm hjá Helgu Mar-
gréti. „Kórinn æfði alla daga vikunnar sem endaði
með tónleikunum. Einnig söng ég og hlustaði á
frábæra Stellutónleika á þriðjudagskvöld í Iðnó.
Á fimmtudag sungum við í Hörpu á opnunarhátíð
Hinsegin daga en hún var afskaplega hátíðleg og
vel heppnuð. Stemningin var frábær og öll atriðin
líka. Í dag er auðvitað gangan sjálf en þar mun ég
ganga með kórfélögum, fjölskyldum þeirra og vin-
um. Seinni hluta dags mun ég svo eyða með vinum
og aldrei að vita nema maður endi á balli Hinsegin
daga sem haldið er í Iðnó í kvöld.“
Hún nær þó ekki að sofa lengi út á morgun enda
búin að ráða sig í tónlistarverkefni sem þarfnast
bæði vinnu og skipulags. „Þrátt fyrir þetta allt
vildi ég óska þess að ég gæti tekið meiri þátt í öll-
um fræðsluviðburðum Hinsegin daga. Ég vil meina
að dagskráin hafi aldrei verið eins glæsileg og í
ár. Stjórn Hinsegin daga á heiður skilinn fyrir og
ég vona að sem allra flestir mæti. Strax eftir helgi
fara svo fram raddprufur fyrir Hinsegin kórinn og
hvet ég alla áhugasama til að mæta. Nánari upp-
lýsingar má finna á Facebook-síðunni Raddprufur
Hinsegin kórsins.“ ■ starri@365.is
Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum
Nánari upplýsingar www.SUPERBEETS.is Umboð: vitex ehf - Upplýsingasími 896 6949
Betra blóðflæði
Rauðrófu kristall 100% náttúrulegt
Einstök virkni og gæði - þú finnur muninn
Nitric Oxide Superbeets
allt að 5 sinnum öflugri
1. dós superbeets jafngildir
30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa
Íslensk vottun á
virkni NO3
Sýni rannsóknarstofa - Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitri c Oxide framleiðslu strax. Bætt blóðflæði og aukin súrefnisupptaka hefur jákvæð
áhrif á alla starfsemi líkamans, þ.m.t. hjarta og æðakerfi.
ATH: Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide. (NO) byrjar í munni, þess vegna er
SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi.
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
E
-6
7
E
0
1
5
A
E
-6
6
A
4
1
5
A
E
-6
5
6
8
1
5
A
E
-6
4
2
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K