Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 6

Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 6
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ MESTO úðabrúsar Made in Germany síðan 1919 Mesto 3565P Ferrox Plus 6 lítra 28.990 Fyrir Byggingariðnað (einnig til 10 lítra) Mesto 3232R 5 lítra í garðinn 5.990 Mesto 3552 Back Pack Pro RS125 12 lítra 19.990 Mesto 3130G úðabrúsi Universal 1,5 líter 1.990 Mesto 3270 Profi 10 lítrar 15.990 12.792 20% afsláttur LÖGREGLUMÁL „Ef ummerki sýna að einstaklingur hafi verið beitt- ur líkamsmeiðingum þá gerum við allt til þess að tryggja öryggi fólks. Við getum þó illa bjargað fólki sem vill ekki láta bjarga sér,“ segir Alda Hrönn Jóhannesdóttir aðstoðaryfirlögreglustjóri um það hvers vegna einstaklingur sem beitir maka sinn ofbeldi sé ekki alltaf fjarlægður af heimilinu. Svokölluð austurrísk leið er laga- úrræði sem gerir lögreglu kleift að fjarlægja ofbeldismann af heimili sínu og banna komur hans þangað um tiltekinn tíma. Fréttablaðið ræddi við nágranna heimilis þar sem heimilisofbeldi hefur verið við lýði í nokkurn tíma. Að sögn nágrannanna heyrast læti og högg oft í viku frá íbúð fólks- ins. Þá heyrist reglulega í konunni hrópa á hjálp. Einn nágrannanna segist hneykslaður á vinnubrögðum lög- reglunnar. Í hvert skipti sem lög- regluna beri að á heimili fólksins snúi hún til baka án þess að aðhaf- ast neitt. Ástæðan sem lögregla gefi sé sú að konan þiggi ekki hjálp lögreglunnar. Nágrannarnir hafi þó útskýrt fyrir lögreglunni að skömmu áður hafi konan hrópað á hjálp og að maðurinn væri að fara að drepa hana. „Þegar aðstæðurnar eru svona þá snýst starf lögreglunnar um að tala um fyrir þeim sem beitt- ur er ofbeldi,“ segir Alda Hrönn og bætir við að heimildir lögreglu til þess að fjarlægja ofbeldismann af heimili séu takmarkaðar þegar einstaklingurinn sem verður fyrir ofbeldinu vill ekki aðstoð. „Á tveggja vikna fresti förum við yfir hvert einasta svona mál, skoðum söguna og hvað við getum gert næst. Þannig að þegar lög- reglan fer af vettvangi í svona aðstæðum er ekki þar með sagt að við séum hætt að skoða málið. Það kunna alveg að vera úrræði þó að nágrannarnir sjái það ekki,“ segir Alda Hrönn. „Við fáum oft til okkar konur sem segja að lögreglan hafi oft verið búin að koma á heimilið og reyna að hjálpa þeim en þær hafi alltaf sagt ósatt þegar lögregl- una bar að,“ segir Sigþrúður Guð- mundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. „Þegar þær koma til okkar þá hafa þær loksins fengið kjarkinn til þess að þiggja aðstoð.“ Sigþrúður segir að þolandi ofbeldisins verði að samþykkja það að ofbeldismaðurinn sé tekinn af heimilinu. „Annars virkar þessi heimild lögreglunnar ekki. Ef lög- reglan úrskurðar um brottvísun af heimili þá er enginn sem hefur eftirlit með því hvort ofbeldis- maðurinn fer aftur á heimilið nema konan.“ Að sögn Sigþrúðar hefur lög- reglan í auknum mæli boðið ein- staklingum sem verða fyrir ofbeldi upp á úrræðið. „Við fögn- um því þó að það er aukin meðvit- und hjá lögreglunni. Við vitum líka að lögreglan hvetur konurnar til þess að þiggja aðstoð og útskýrir fyrir þeim hvað felst í aðstoðinni.“ nadine@frettabladid.is Þolandi verður að samþykkja brottvísun ofbeldismanns Aðstoðaryfirlögreglustjóri segir ekki unnt að fjarlægja ofbeldismann af heimili án samþykkis þess sem verður fyrir ofbeldinu. Nágrannar heimilis þar sem heimilisofbeldi á sér stað eru hneykslaðir á vinnubrögðum lögreglu. HEIMILISOFBELDI Svokölluð austurrísk leið er lagaúrræði sem gerir lögreglu kleift að fjarlægja ofbeldismann af heimili sínu. NORDICPHOTOS/GETTY ALDA HRÖNN JÓHANNES- DÓTTIR SIGÞRÚÐUR GUÐMUNDS- DÓTTIR STJÓRNSÝSLA Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, og Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknar- stjóri eru meðal þeirra sem sækj- ast eftir nýju embætti héraðs- saksóknara. Auglýst var eftir umsækjendum í embætti hæsta- réttardómara, héraðssaksóknara og varahéraðssaksóknara í júlí. Fimm vilja verða héraðssak- sóknarar. Ásamt þeim Ólafi og Bryndísi sóttu þau Björn Þor- valdsson, saksóknari hjá sér- stökum saksóknara, Hulda Elsa Björgvinsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara, og Jón H.B. Snorrason varalögreglustjóri um starfið. Þrír sóttu um embætti hæsta- réttardómara, þau Davíð Þór Björgvinsson, Ingveldur Einars- dóttir og Karl Axelsson. Fimm sóttu um stöðu vara- héraðs saksóknara; áðurefndur Björn Þorvaldsson og Arnþrúður Þórarinsdóttir, saksóknarar hjá embætti sérstaks saksóknara, og Daði Kristjánsson, Hulda Elsa Björgvinsdóttir og Kolbrún Bene- diktsdóttir, öll saksóknarar hjá embætti ríkissaksóknara. Nýr héraðssaksóknari tekur til starfa 1. janúar og verður embætti sérstaks saksóknara þá lagt niður. Innanríkisráðherra hefur falið nefnd að fara yfir umsóknirnar og á hún að skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. - fbj Fimm sóttu um að verða héraðssaksóknarar, þrír sækjast eftir embætti hæstaréttardómara: Sérstakur vill verða héraðssaksóknari ÓLAFUR ÞÓR HAUKSSON BRYNDÍS KRIST- JÁNSDÓTTIR ➜ Ásamt Ólafi og Bryndísi sóttu Björn Þorvaldsson, Hulda E. Björgvinsdóttir og Jón H.B. Snorrason um. BANDARÍKIN Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt ályktun þess efnis að rannsakað verði hverjir stóðu fyrir efnavopnaárásum í Sýrlandi árið 2013. Áætlun um upprætingu á efna- vopnum Sýrlendinga var gerð eftir að þeim var beitt rétt fyrir utan Damaskus í ágúst árið 2013. Í fyrra var 1.180 tonnum af efna- vopnum Sýrlands eytt. Kosið var um tillöguna eftir að Rússar og Bandaríkjamenn sam- mældust um efni hennar en hún var samþykkt mótatkvæðalaust. - srs Árásir við Damaskus 2013: Rannsaka efna- vopnaárásir BAN KI-MOON Aðalritari Sameinuðu þjóðanna mun koma að rannsókninni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP FERÐAÞJÓNUSTA Gistinætur á hót- elum í júní voru 285.100. Það er 19 prósenta aukning miðað við júní 2014, samkvæmt Hagstofu. Gistinætur erlendra gesta voru 90 prósent af heildarfjölda allra gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 20 prósent frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um tæp 10 pró- sent. Flestar gistinætur á hótelum í júní voru á höfuðborgarsvæðinu eða 162.800, sem er 16 prósenta aukning frá því í fyrra. - fbj Útlendingar með 90 prósent: Gistinóttum á hótelum fjölgar LÖGREGLUMÁL Fjölmennt lið lög- reglu var ræst út um tvöleytið í gær eftir að fangi slapp úr haldi fangavarða í Reykjavík. Verið var að flytja fangann til tannlæknis nærri Hlemmi þegar hann tók á rás og flúði. Páll Winkel fangelsismála- stjóri staðfestir í samtali við Vísi að fanginn hafi sloppið en svo fundist nokkrum mínútum síðar, sem betur fer. Hann sagðist enn þá vera að taka saman upplýs- ingar vegna flóttans. Honum væri samt létt að fanginn hefði fundist jafnfljótt og varð raunin. „Þetta er maður sem maður hefði ekki viljað sjá lausan mjög lengi,“ segir Páll. „Lögregla brást skjótt við og þetta gekk upp.“ Stutt er síðan tveir fangar flúðu af Kvíabryggju og vakti flóttinn nokkra athygli í fjölmiðlum enda ekki algengt að föngum takist að strjúka. Flóttinn nú var annars eðlis. Um fanga úr lokuðu fang- elsi, Litla-Hrauni, var að ræða og var verið að flytja hann til borg- arinnar í skoðun hjá tannlækni. Maðurinn var ekki í hand- járnum og segir Páll að tekin sé ákvörðun hverju sinni hvort not- ast eigi við hand- og fótjárn eða ekki. „Við gætum að mannvirðingu eins og við getum þannig að menn eru ekki fluttir í hand- og fótjárn- um hverju sinni,“ segir Páll. Málið verði nú yfirfarið og reynt að búa svo um hnútana að svona endur- taki sig ekki. Flótti sem þessi sé sjaldgæfur en komi þó fyrir. Fanginn hefur setið inni í nokkra mánuði og á einnig mán- uði eftir af afplánun. Flóttinn mun ekki lengja afplánun hans en getur þó haft áhrif á reynslulausn. Þá fái menn sem strjúka ekki að afplána í opnum fangelsum. „Það græðir enginn á þessu, allra síst fanginn.“ - ktd Fjölmennt lið lögreglu leitaði fanga sem strauk um miðjan dag í gær: Strauk úr ferð til tannlæknis Á HLEMMI Verið var að flytja fangann til tannlæknis nærri Hlemmi þegar hann tók á rás og flúði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONPÁLL WINKEL SAMGÖNGUR Lokað vegna Gleðigöngu Götum verður lokað í kringum göngu- leið Gleðigöngunnar og hátíðarsvæðið frá klukkan 12 á hádegi í dag og þar til hátíðardagskrá við Arnarhól lýkur. Gangan leggur af stað frá Vatns- mýrarvegi klukkan 14, fram hjá Umferðarmiðstöðinni, eftir Sóleyjar- götu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu. Að göngunni lokinni hefst hátíðardagskrá við Arnarhól sem stendur til klukkan 17.30. Í frétt á vef Reykjavíkurborgar eru íbúar Reykjavíkur og gestir beðnir að sýna umburðarlyndi og eru hvattir til að nýta sér þjónustu Strætó. 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 1 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 A E -1 8 E 0 1 5 A E -1 7 A 4 1 5 A E -1 6 6 8 1 5 A E -1 5 2 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 1 2 8 s C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.