Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 10
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
BANDARÍKIN Níu repúblikanar
stóðu að mestu ráðþrota á sviðinu
gagnvart Donald Trump, sem að
venju sagði það sem honum sýndist
í fyrstu sjónvarpskappræðunum
fyrir forkosningar Repúblikana-
flokksins.
Digurbarkaleg ummæli hans
vöktu langmesta athygli áhorfenda
jafnt sem fjölmiðla víða um heim.
Mörgum fannst nóg um: „Þessi apa-
köttur ætlar að verða forseti Banda-
ríkjanna,“ sagði í fyrirsögn á frétta-
vef þýska tímaritsins Der Spiegel.
Mótframbjóðendurnir níu, sem
allir sækjast eftir því að verða for-
setaefni flokksins, reyndu flestir
að svara spurningum stjórnenda
umræðnanna af alvöru, en upp-
skáru fyrir vikið ekki sömu athygl-
ina.
Trump hefur undanfarnar vikur
borið höfuð og herðar yfir með-
frambjóðendur sína í skoðanakönn-
unum. Hann kemst þó ekki með
tærnar þar sem Hillary Clint on,
líklegasti frambjóðandi Demókrata-
flokksins, hefur hælana.
Í The New York Times fullyrðir
hins vegar dálkahöfundurinn Nate
Cohn að hvorki Donald Trump né
Jeb Bush, sem hefur næstmesta
fylgið í skoðanakönnunum, hafi
verið á meðal sigurvegara kvölds-
ins.
„Að sigra í forkosningaumræð-
um snýst ekki um að slá fram bestu
setningunum eða uppskera mesta
klappið. Fyrir frambjóðendur í
fremstu röð er þetta áheyrnarprufa
fyrir flokkseigendurna, fjársterka
stuðningsmenn,“ segir Cohn. „Tak-
markið er ekki að heilla fjöldann
eða ná langt í skoðanakönnunum,
heldur að vekja traust, að sýna
fram á getu þeirra til þess að sigra
og ráða við forsetaembættið.“
Enn sem komið er geta skoðana-
kannanir engan veginn gefið nein-
ar marktækar vísbendingar um
það hver úrslitin gætu orðið úr for-
kosningum flokkanna tveggja. For-
kosningarnar hefjast ekki fyrr en
Diguryrðin
yfirgnæfðu
Donald Trump tryggði sér mestu athyglina í sjónvarps-
kappræðum tíu repúblikana, sem allir keppa að því að
verða forsetaefni flokks síns á næsta ári.
FANGAÐI ATHYGLINA Donald Trump, til hægri, ásamt Scott Walker í kappræðun-
um á fimmtudagskvöld. NORDICPHOTOS/AFP
Donald Trump, auðkýfingur 24,3
Jeb Bush, fyrrv. ríkisstj. Flórída 12,5
Scott Walker, ríkisstj. Wisconsin 9,5
Mike Huckabee,
fyrrv. ríkisstjóri Arkansas 6,8
Ben Carson, fyrrv. heilaskurðlæknir 5,8
Ted Cruz, öldungadeildarþingm. 5,5
Marco Rubio, öldungad.þingm. 5,3
Rand Paul, öldungadeildarþingm. 4,5
Chris Christie, ríkisstj. New Jersey 3,5
John Kasich, ríkisstjóri Ohio 2,8
Heimild: Realclearpolitics.com
➜ Staðan í
skoðanakönnunum
Ég myndi segja að
hann sé óhæfur, en ég vil
ekki gera það. Það er ekki
kurteislegt.
Um Barack Obama Bandaríkjaforseta
Þið væruð ekki einu
sinni að tala um ólöglega
innflytjendur ef ekki væri
fyrir mig.
Um meðframbjóðendur sína
Bara Rosie O’Donnell.
Þegar hann er sakaður um að hafa kallað
konur „feit svín, hunda, subbur og við-
bjóðsleg kvikindi“
Satt að segja hef ég
ekki tíma fyrir pólitíska
rétthugsun.
Um pólitíska rétthugsun
Dell mælir með Windows
advania.is/skoli
Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri
Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17
í skólanum
an
Heitasta
Skoðaðu úrvalið af floum
DELL tölvum á vefnum okkar,
verð frá 69.990 kr.
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
RAFMAGNSVERKFÆRI
Ljós eik
1.655 kr. m2
Rafhlöðuborvél 12V
2 gíra Liion rafhlaða kr.
11.990
Rafhlöðuborvél 18V
2 gíra LiIon rafhl kr.
13.990
Bor / brotvél með
höggi SDS Plus
800W með meitlum
og borum kr.
13.990
Juðari kr.
5.390
255mm Gráðukúttsög 1880W kr.
23.900
Borðsög með
254mm blaði 1500W kr.
37.990
Bor / Brotvél 1200W SDS
MAX 0-500 mín kr.
23.990
Tækjadagar 20% afsláttur af Maxpro!
4.312
Rafhlöðuborvél 14,4V
2 hraða NI-CD kr.
12.990
19.192
9.592
11.192
11.192
30.392
19.192
10.392
Gildir til og með 15/8
Ekki afsláttur af slípirokkum
20%
afsláttur
20%
afsláttur
20%
afsláttur
20%
afsláttur
20%
afsláttur
20%
afsláttur
20%
afsláttur
20%
afsláttur
snemma á næsta ári og úrslit verða
ekki ljós fyrr en næsta sumar, en
forsetakosningarnar sjálfar eru svo
í byrjun nóvember.
Trump virðist hins vegar staðráð-
inn í að bjóða sig fram til forseta,
hvort sem hann verður fyrir valinu
sem forsetaefni Repúblikanaflokks-
ins eða ekki. gudsteinn@frettabladid.is
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
E
-2
7
B
0
1
5
A
E
-2
6
7
4
1
5
A
E
-2
5
3
8
1
5
A
E
-2
3
F
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K