Fréttablaðið - 08.08.2015, Qupperneq 32
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Sólin hlær á himni og eykur á fegurð hins frjósama Mosfellsdals þegar ég bruna að appelsínugula tónlistarbýlinu Túnfæti. Raddir og hlátur berast úr
skógi fyrir neðan húsið og ég geng
á hljóðið. Ljósmyndarinn Pjetur er
þar að stilla húsráðendum, Kela
og Diddú, upp fyrir myndatöku
og pressa á Kela að setja upp köfl-
ótta húfu. „Já, það er skoskt þema,“
segir Diddú og hlær sínum smit-
andi hlátri en Keli er ekki alveg eins
kátur í fyrirsætuhlutverkinu. Eftir
tökuna göngum við til bæjar um
víðáttumikla palla sem Diddú segir
meðal annars nýtast vel til veislu-
halda. „Við vorum hér með grill um
síðustu helgi og auðvitað var sungið
eins og ævinlega þegar fólk kemur
hér saman. Það er alltaf brostið í
söng.“ Í frekara spjalli kemur í ljós
að Keli er stjórnandi Smalakórs
Mosfellsheiðar og lúðrasveitar dals-
ins sem heitir Brak og brestir. Er
hann kannski líka í karlakór? „Nei,
en ég gæti hugsað mér það í ellinni
ef mér leiðist,“ svarar hann kankvís.
Heldur upp á afmælið í Eldborg
Diddú á sextugs afmæli 8. ágúst
(í dag) og mun verja því í faðmi
fjölskyldunnar en ætlar að halda
ærlega sönghátíð í tilefni þessara
tímamóta þann 13. september og þá
dugar ekkert minna en Eldborgar-
salur Hörpu. Áður en við ræðum
það gigg frekar langar mig að vita
meira um þau hjón, til dæmis hve-
nær þau fundu hvort annað og fóru
að ganga í takt. „Við hittumst á balli
í Þjóðleikhúskjallaranum um ára-
mótin 1974/75 svo þetta eru orðin
rúm fjörutíu ár,“ upplýsir Diddú
brosandi. Keli minnist þess þó að
hafa séð hana áður og þau giska á að
það hafi verið meðan hún var í MR
og hann í Versló því þá hafi verið
steinsnar á milli þeirra, þó að hún
ætti heima við Sólvallagötu en hann
í Mosfellsdal.
Keli hefur verið hornleikari í Sin-
fóníuhljómsveitinni síðan 1980 og
spilað í ýmsum öðrum hljómsveit-
um. „Ég var svolítið í dansmúsík
til 1975, þá vildi ég einbeita mér að
klassíska náminu og seldi trommu-
settið – sem ég sá alltaf eftir. En
félagar mínir gáfu mér trommu-
sett í fimmtugsafmælisgjöf og ég
er búinn að hamast á því síðan, mér
til mikillar ánægju en heimilisfólk-
inu til ama.“
Ein sveitin sem Keli var í hét
Gaddavír en breyttist í Moldrok,
hann kom við í Logum og nú er hann
í hljómsveitinni Blek og Byttur. „Við
leikum á þorrablótum og árshátíð-
um og um daginn spiluðum við á
Siglufirði á hippaballi Fljótakvenna.
Það var mikið fjör.“
Diddú var líka í dægurlögunum
fyrst, gerði það gott með Spilverki
þjóðanna og mörgum var brugðið
þegar hún var allt í einu á leið úr
landi að læra óperusöng. „Það var
nú eiginlega mér að kenna, hún elti
mig til London í Guildhall School,“
segir Keli afsakandi. „Já, fólk rak
upp ramakvein þegar það vissi að
ég ætlaði í klassísku deildina en það
sættist við mig þegar ég kom heim
og debúteraði í hlutverki dúkk unnar
í Ævintýrum Hoffmanns,“ rifjar
Diddú upp. Hún kveðst enn bregða
fyrir sig dægurlagasöng þegar svo
ber undir. „Það er einmitt það sem
ég ætla að gera á afmælistónleikun-
um 13. september. Þá verð ég fyrir
hlé með aríur og klassíska músík
með stórri hljómsveit og karlakór
og eftir hlé vendi ég kvæði mínu í
kross, fer í gömlu hippamussuna og
Spilverkið kemur á svið með mér
ásamt öðrum gestum. Þá tek ég
fyrir poppferilinn.“
Opnaðist nýr hljóðheimur
Spurð hversu lengi sópransöng-
konur geti búist við að halda sinni
háu rödd svarar Diddú: „Það er
mjög einstaklingsbundið, sumar
eiga mjög stuttan feril. Þetta bygg-
ist, held ég, á því hvers konar tækni
maður temur sér í upphafi og ræðst
mikið af í hvaða höndum maður
lendir í sígildu söngnámi. Ég lærði
bel canto-söngtækni, hún er í eðli
sínu náttúruleg og án átaka, bara
þroskar röddina út frá því sem til
staðar er. Svo þarf maður að vera
skynsamur og velja hlutverk við
hæfi til að ofgera ekki röddinni. Ég
hef verið passasöm og held að það
sé ástæðan fyrir því að ég er enn
syngjandi. Kollegarnir sem ég lærði
með, og eru töluvert yngri, eru
eigin lega allir hættir að syngja.“
„Ég held að endingin tengist því
hvernig raddböndin og skrokkur-
inn eru og svo skiptir andlega hliðin
miklu máli. Diddú virðist hafa stál-
taugar og finnst allt svo skemmti-
legt, þá endist hún betur því hún
hlakkar alltaf til,“ segir Keli. Diddú
tekur undir það. „Þegar mér líður
vel í söngnum fæ ég svo mikið til
baka og það nærir mig.“
Eflaust hefði Diddú getað átt
glæstan feril hjá stórum óperuhús-
um úti í heimi en kveðst aldrei sjá
eftir að hafa varið kröftum sínum
að mestu á Íslandi. „Ég hef verið svo
lánsöm að hafa fullt að gera gegn-
um tíðina og er ekkert viss um að
það hefði verið þannig þótt ég hefði
fengið stöðu við óperuhús erlend-
is. Mér hefði örugglega ekki verið
boðið að syngja með Carreras á
Íslandi ef ég hefði verið úti í heimi.
Við völdum að vera hér. Ég var þrí-
tug þegar ég var að byrja minn feril
og við vorum með unga tvíbura.
Tímarnir eru mikið breyttir því nú
þurfa allir að vera svo ungir og nett-
ir að þeir sem byrja þrítugir fá ekki
sömu tækifæri í þessu fagi.“
Diddú fór í misheppnaða eyrna-
aðgerð árið 1980 en segir heyrn-
ina standa í stað. „Það er „status
quo“, ég heyri alveg nóg til að geta
sinnt mínum söng. Ég áttaði mig
samt ekkert á því hversu slæm
ég var fyrr en ég fékk heyrnar-
tækin, þá opnaðist mér nýr heim-
ur og allt breyttist í kringum mig.
Það var árið 1992, ég var að syngja
í Þrándheimi í Brúðkaupi Fígarós
og Keli kom út með stelpurnar og
fyrsta heyrnartækið. Ég skildi ekki
hvernig ég hafði farið að áður, því
á þeim tólf árum sem liðin voru frá
aðgerðinni hafði ég farið í gegnum
allt mitt söngnám í London og árið
á Ítalíu. Fyrstu verkefnin sem söng-
kona voru líka að baki því ég debú-
teraði 1988 í Þjóðleikhúsinu.“
„Heyrnarleysið getur verið kost-
ur líka,“ segir Keli glettinn. „Ef ég
er leiðinlegur þá bara skrúfar hún
fyrir tækið – og ef ég er að æfa mig
á hornið eða trommurnar!“
Á ekki séns í litla bróður
Margt ber á góma, svo sem óþolandi
hæg lög sem festast í höfðinu á Kela
og draga úr gönguhraða, viðfangs-
efni dætranna þriggja, jafnvel póli-
tík, og þar sem gleðigangan er um
helgina og Páll Óskar er litli bróðir
Diddúar verð ég að spyrja hvort hún
hafi uppgötvað samkynhneigð hans
snemma.
„Besti vinur minn í menntaskóla
var hommi og ég kannaðist fljótt við
taktana hjá Palla. Ég tók hann líka
dálítið að mér þegar hann var lítill
því ég var fimmtán ára þegar hann
fæddist og mér fannst móðir mín
svo skelfilega gömul, hún var 36 ára
þegar hún átti hann en var búin að
eiga sex börn þrítug. Palli setti í sig
tíkarspena til að líkjast Línu Lang-
sokk, teiknaði fína kjóla á prins-
essur í ævintýrum og bjó til dúkku-
lísur þannig að ég sá alveg merkin,
benti mömmu á þau en sagði henni
að óttast ekki því samkynhneigt fólk
væri síst verra en annað. Nú hefur
margt breyst, sem betur fer, í mál-
efnum samkynhneigðra og Palli á
sinn þátt í því.“
„Mér hefur samt aldrei fundist
Palli kvenlegur en hann klæðir sig
skrautlega, það er partur af djobb-
inu,“ segir Keli. „Já, og fer alla leið
í því, ég á ekki séns í hann,“ segir
Diddú og hlær.
Keli ljóstrar því upp að Coco Vikt-
orsson sem hannar flest föt Palla
sé nú að sauma kjóla á Diddú fyrir
afmælistónleikana, þannig að stóra
systir sé farin að herma eftir litla
bróður. „Mig langaði að prófa eitt-
hvað nýtt. Sviðið í Eldborg er stórt
og Coco hefur góða tilfinningu fyrir
fatnaði sem hentar sjóbísniss,“ segir
Diddú sem ekki vill ljóstra upp litn-
um á skrúðanum heldur segir hann
frumsýndan á tónleikunum.
Þar sem lífið snýst um tónlist
Í Túnfæti í Mosfellsdal búa hjónin Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona, vel þekkt sem Diddú, og Þorkell Jóelsson hornleikari,
sem líka gegnir gælunafninu Keli. Diddú er sextug í dag og áreiðanlega verður kröftugur afmælissöngur kyrjaður í dalnum.
Heyrnarleysið getur
verið kostur líka. Ef ég er
leiðinlegur þá bara skrúfar
hún fyrir tækið – og ef ég er
að æfa mig á hornið eða
trommurnar!
Keli
Fólk rak upp
ramakvein þegar það vissi
að ég ætlaði í klassísku
deildina.
Diddú
INNI Í STOFU „Þetta eru orðin rúm fjörutíu ár,“ segir Diddú um samband þeirra Kela en þau hafa búið í Túnfæti í tæp þrjátíu ár og alið þar upp dætur sínar þrjár. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
D
-F
6
5
0
1
5
A
D
-F
5
1
4
1
5
A
D
-F
3
D
8
1
5
A
D
-F
2
9
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K