Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 53
www.novomaticls.com/careers/
hjá alþjóðlega fyrirtækinu Novomatic Lottery Solutions (NLS) áður Betware
SPENNANDI TÆKIFÆRI
Novomatic Lottery Solutions (NLS), sem áður hét
Betware, hannar og þróar heildarlausnir fyrir lotterí.
NLS er ört vaxandi fyrirtæki og er fjöldi starfsfólks
kominn yfir 200, þar af 118 á Íslandi, en jafnframt er
fyrirtækið með starfsemi í Danmörku, Austurríki,
Serbíu og á Spáni. Mikil áhersla er lögð á metnað í
hugbúnaðargerð, góðan starfsanda, aðbúnað og þjálfun.
Boðið er upp á leiðbeinendakerfi (Mentoring) og sett er
fram þjálfunaráætlun fyrir nýtt starfsfólk.
Hljómar þetta tilvalið fyrir þig? Hikaðu þá ekki við
að senda okkur umsókn og ferilskrá á netfangið
applications@novomaticls.com fyrir 18. ágúst 2015
með heitið á stöðunni í viðfangi.
Hægt er að senda fyrirspurnir á
Bergþóru mannauðsstjóra á netfangið
applications@novomaticls.com.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á
http://www.novomaticls.com/careers/
Novomatic Lottery Solutions | Holtasmári 1 | 201 Kópavogur
+354 580 4700 | info@novomaticls.com
VERKEFNASTJÓRI
(PROJECT MANAGER/SCRUM MASTER)
Verkefnastjóri leiðir hugbúnaðarteymi NLS og vinnur
náið með vörustjórum fyrirtækisins. Við leitum
að verkefnastjóra sem hefur reynslu af stýringu
hugbúnaðarverkefna, þekkir vel til Agile og Scrum
og hefur nýtt aðferðafræðina við stjórnun verkefna.
Umsækjendur þurfa einnig að hafa brennandi áhuga
á að vinna með fólki og aðstoða meðlimi teymisins
við að styrkjast og eflast í starfi.
HUGBÚNAÐARSÉRFRÆÐINGAR
(SENIOR SOFTWARE DEVELOPERS)
Reynslumiklir Javaforritarar með brennandi áhuga á
nýjustu straumum í hugbúnaðargerð til að hanna og
þróa hugbúnaðarlausnir NLS, þar sem hár uppitími,
hraði, skalanleiki og öryggi eru lykilatriði. Hafa þarf
þekkingu á Service Oriented Architecture þar sem
notast er við REST (JAX-RS 2.0) þjónustur og AMQP
skeyti. Starfsreynsla og háskólanám sem nýtist í
starfi er skilyrði.
FORRITARAR
(SOFTWARE DEVELOPERS)
Snjallir forritarar með brennandi áhuga á nýjustu
straumum í hugbúnaðargerð til að hanna og þróa
hugbúnaðarlausnir í Java og JavaScript. Reynsla
af hönnun og notkun á REST-þjónustum er kostur.
Háskólanám sem nýtist í starfi er skilyrði.
TECHNICAL LEAD
Einstaklingur með brennandi áhuga á tækni og
hugbúnaðargerð í tækniteymi sem vinnur þvert
á fyrirtækið við að greina tæknilegar áhættur og
tækifæri til að stuðla að árangri í hugbúnaðarþróun
og innleiðingu á vörum fyrirtækisins til viðskiptavina.
Viðkomandi tekur þátt í hönnun kerfisins, sem
byggist á dreifðum þjónustum í Java og Node.js,
ásamt því að ná sem bestri nýtingu á núverandi tækni
og innleiða nýja tækni sem gerir kerfið öruggara og
öflugra. Reynsla af því að leiða hugbúnaðarteymi
og mjög góður skilningur á hugbúnaðargerð eru
nauðsynlegir eiginleikar fyrir þetta starf, sem og
BSc-gráða í tölvunarfræði eða sambærilegu fagi.
HUGBÚNAÐARPRÓFARAR
(SOFTWARE TESTERS)
Skipulagðir einstaklingar með brennandi áhuga
á hugbúnaðarprófunum og sér í lagi sjálfvirkum
prófunum í Agile umhverfi. Starfið krefst
haldgóðrar tækniþekkingar, forritunarkunnáttu og
framúrskarandi samskiptahæfileika. Glöggt auga,
frumkvæði og greiningarhæfni eru eiginleikar sem
við metum einnig mikils. Háskólanám sem nýtist í
starfi og/eða reynsla af hugbúnaðarprófunum er
skilyrði.
GAGNASÉRFRÆÐINGUR
(DATA MIGRATION ANALYST)
Öflugur gagnasérfræðingur sem sér um að
greina flutning gagna frá núverandi kerfum nýrra
viðskiptavina yfir í lausnir NLS, auk þess að bera
ábyrgð á þróun og sjálfvirkni í því ferli. Góðir
samskiptahæfileikar og frumkvæði eru nauðsynlegir
eiginleikar í þessu starfi þar sem samskipti við
þróunarteymi, sem og viðskiptavini, er veigamikill
þáttur starfsins. Viðkomandi þarf jafnframt að
búa yfir greiningarhæfni, gagnagrunnskunnáttu,
skipulagshæfni, þrautseigju og vera sjálfstæður í
vinnubrögðum.
VÖRUSTJÓRI
(PRODUCT MANAGER)
Skapandi einstaklingur til að leiða framþróun og
hönnun hugbúnaðar í vörulínu NLS. Vörustjóri vinnur
náið með þróunarteymi og markaðs- og söludeild.
Reynsla af smásöluumhverfi (e. retail) er kostur.
NODE.JS FORRITARAR
(NODE.JS DEVELOPERS)
Forritarar með reynslu af Node.js og brennandi áhuga
á nýjustu straumum í hugbúnaðargerð til að hanna og
þróa hugbúnaðarlausnir fyrir NLS. Þurfa að hafa mikla
reynslu af JavaScript. Háskólanám sem nýtist í starfi
er skilyrði.
SÉRFRÆÐINGUR Í
VIÐSKIPTAGREIND
Tæknilega sterkur sérfræðingur í viðskiptagreind til
að hanna og smíða fyrsta flokks skýrslur úr flóknum
gögnum. Jafnframt mun viðkomandi sjá um að
greina kröfur til að framleiða skýrslur, stjórnborð og
greiningargögn. Góður skilningur á viðskiptagreind,
greiningarhæfni og skipulag skipta máli í þessu
starfi. BSc-gráða í tölvunarfræði, upplýsingatækni
eða sambærilegu fagi er kostur.
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
E
-6
C
D
0
1
5
A
E
-6
B
9
4
1
5
A
E
-6
A
5
8
1
5
A
E
-6
9
1
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K