Fréttablaðið - 08.08.2015, Síða 62
| ATVINNA |
TRÉSMIÐIR / RAFVIRKJAR
TÆKJAMENN / VERKAMENN
ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta
verktakafyrirtæki landsins sem byggir
á áratuga reynslu í mannvirkjagerð.
Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum
byggingariðnaðar hvort sem um er að
ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði,
opinberar byggingar eða aðra mann-
virkjagerð sem og jarðgangagerð og
jarðvinnuframkvæmdir bæði hérlendis
og erlendis.
Við leggjum mikla áherslu á að ráða
til okkar kraftmikla og framsækna
einstaklinga, með góða hæfni í
mannlegum samskiptum.
Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu
og erum stolt af starfsandanum og
þeim metnaði sem hjá okkur ríkir.
ÍAV er eina verktakafyrirtækið á
Íslandi sem hefur bæði ISO 9001
gæðavottun og OSHAS 18001 öryggis-
vottun.
Vegna aukinna verkefna á suðurnesjum óskar ÍAV
eftir að ráða metnaðarfulla starfsmenn til starfa
á eftirfarandi sviðum.
• Rafvirkjar og nemar
ÍAV óskar eftir að ráða rafvirkja og nema til starfa á
suðurnesjum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
• Trésmiðir og nemar
ÍAV óskar eftir að ráða trésmiði og nema til starfa á
suðurnesjum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
• Tækjamenn
ÍAV óskar eftir að ráða fólk með vinnuvélaréttindi til
starfa á suðurnesjum. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
• Byggingaverkamenn
ÍAV óskar eftir að ráða byggingaverkamenn til starfa
á suðurnesjum. Kostur að viðkomandi hafi minna vin-
nuvélaréttindin. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Fyrir rétta aðila eru í boði góð laun, góður starfsandi og
góð starfsaðstaða.
Nánari upplýsingar veitir Magni Helgason mannauðsstjóri
í síma 530-4200.
Upplýsingar vegna rafvirkja veitir Ásgeir Gunnarsson fag-
stjóri raflagna í síma 693 4310.
Umsóknir má finna á heimasíðu ÍAV, www.iav.is
OHSAS
18001
Occupational
Health and Safety
Management
OHS 606809
ISO
9001
Quality
Management
FM 512106
Við breytum vilja í verk
Flóaskóli leitar að þroskaþjálfa
í 100% starfshlutfall
Starf í Flóaskóla grundvallast af því lífsviðhorfi að mæta
hverjum einstaklingi þar sem hann er svo hann fái tækifæri
til þess að vaxa og dafna og vera besta útgáfan af sjálfum
sér. Skólinn styðst við uppbyggingarstefnuna og vinnur eftir
Olweus áætlun gegn einelti. Í skólanum er góður starfsandi
og starfsfólk vinnur markvisst að skólaþróun og er því
Flóaskóli góður staður fyrir einstaklinga með áhuga á að
vinna áhugavert starf með börnum í góðum skóla.
Í Flóaskóla eru 93 nemendur í 1.-10. bekk. Flóaskóli er stað-
settur á Villingaholti í Flóahreppi, (í u.þ.b. 15 mín. akstursf-
jarlægð frá Selfossi).
Helstu verkefni og ábyrgð
• Veitir fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks skólans og
forráðamanna eins og þurfa þykir.
• Vinnur með og aðstoðar nemanda/nemendur við að ná
markmiðum sínum.
• Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs innan skólans.
• Vinnur í nánu samstarfi við foreldra, kennarar og annað
starfsfólk skólans er viðkemur nemanda/nemenda.
• Hefur umsjón með skipulagningu og framkvæmd á
sérhæfðum verkefnum og sérhæfðri þjálfun nemanda/
nemenda
Hæfniskröfur
• Réttindi sem þroskaþjálfi (önnur menntun sem nýtist
í starfi ef ekki fæst einstaklingur með réttindi sem
þroskaþjálfi)
• Reynsla af starfi með einhverfum börnum kostur
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi
• Jákvæðni og áhugi
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitafélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Umsóknarfrestur: Framlengdur til 17. ágúst 2015.
Ráðningarform.: Tímabundin ráðning (frá 25. ágúst 2015
til 7. júní 2016). Nánari upplýsingar um starfið gefur Anna
Greta Ólafsdóttir skólastjóri í síma 859-3460.
Umsóknir skal senda á netfangið annagreta@floaskoli.is
WWW.FABRIKKAN.IS BORÐAPANTANIR Í SÍMA 575 7575
Fabrikkan
í Reykjavík
auglýsir
Vegna aukinna umsvifa leitum við að fólki
sem brosir meira en góðu hófi gegnir og hefur
brennandi þörf fyrir að láta öðru fólki líða vel.
ÞJÓNAR:
Við leitum að fólki sem nýtur þess að snúast
kringum aðra og geislar af þjónustugleði.
Sjarmatröllum sem sinna störfum sínum af
metnaði og ábyrgð. Fólki sem lítur á öll
afmæli sem sitt eigið afmæli.
ELDHÚSSTARFSMENN:
Við leitum að töffurum af báðum kynjum sem vilja
vinna „í hitanum“. Nöglum sem kalla ekki allt ömmu
sína. Töppum sem eru tilbúnir í hvað sem er til að skila
hinum fullkomna borgara á borð viðskiptavina okkar.
Ef þú heldur að þú sért með’etta, sendu þá umsókn
ásamt ferilskrá og mynd á atvinna@fabrikkan.is
merkt: „Fabrikkan Reykjavík — þjónn“
eða „Fabrikkan Reykjavík — eldhússtarfsmaður“.
www.facebook.com/fabrikkan www.youtube.com/fabrikkan. www.instagram.com/fabrikkan
SÁ SEM FANN UPP
HAMBORGARANN
VAR KLÁR.
„
“
Matthew McConaughey
Sá sem fann upp
ostborgarann
var snillingur.
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR16
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
E
-5
9
1
0
1
5
A
E
-5
7
D
4
1
5
A
E
-5
6
9
8
1
5
A
E
-5
5
5
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K