Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 79

Fréttablaðið - 08.08.2015, Page 79
| ATVINNA | __________Útboð ___________ Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið: Grandagarður 16 Lóðarframkvæmdir – 2.áfangi Verkið felur m.a. í sér upprif á núverandi yfirborði, endurnýjun á regnvatnslögnum, leggja nýja snjóbræðslu, hellulögn ásamt ýmsum öðrum yfirborðsfrágangi. Umfang verks: Framkvæmdasvæði 850 m2 Regnvatnslagnir 150 m Snjóbræðslulagnir 550 m Fræsing 300 m2 Hellulögn: 450 m2 Malbikun 150 m2 Útboðsgögnin verða afhent hjá Hnit verkfræðistofu h.f., Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 11. ágúst n.k. Gögnin verða afhent á geisladiski. Vettvangsskoðun fer fram þriðjudaginn 18.ágúst klukkan 10:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Faxaflóahafna s.f., Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík fyrir klukkan 11:00, þriðjudaginn 25. ágúst 2015. Tilboð verða opnuð á sama stað og tíma. Verklok eru 15. nóvember 2015. Innkaupadeild Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Flóðlýsing á gervigrasvelli Vals á Hlíðarenda. Útvegun á möstrum og lömpum , Útboð nr. 13579. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod ÚTBOÐ Útboð nr. 20137 - Sértækt greiningartæki fyrir einkristalla Ríkiskaup fyrir hönd Raunvísindastofnunar Háskólans leita tilboða í sértækt greiningartæki fyrir einkristalla (e. Single crystal X-ray diffractometer (SCXD) ). Nánari upplýsingar er að finna í útboðslýsingu á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Opnun tilboða 24. september 2015 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum. Breytingar á deiliskipulagi í Kópavogi. Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 5.8.1. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir Smárann vestan Reykjanesbrautar. Nánar tiltekið afmarkast deiliskipulagssvæðið, sem er um 14 ha. að flatarmáli, af Smárahvammsvegi í vestur, Fífuhvammsvegi norður, Reykjanesbraut í austur og Hæðasmára í suður. Á skipulagssvæðinu eru tvær skipulagsáætlanir í gildi; Verslunar- og þjónustusvæði í Kópavogsdal frá 1993 m.s.br. og tekur það til Hagasmára 1, 3, 5, 9 og 9A. Einnig er deiliskipulag Smárahvamms frá 1989 m.s.br. sem tekur til Hagasmára 2 og 4 og Hæðasmára 1-5, 7-13 og 7A. Núverandi byggð á svæðinu er liðlega 83.000 m² í verslunar- og þjónustuhúsnæði og áætlað nýtingarhlutfall fyrir svæðið er 1,3. Í kynntri tillögu eru ekki ráðgerðar breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hagasmári 3, 5, 9 og 9A. Í tillögu að breyttu deiliskipulagi á ofangreindu svæði er gerð grein fyrir fyrirhugaðri uppbyggingu á suðurhluta þess þ.e. á svæðinu sunnan Smáralindar, milli Reykjanesbrautar, Hæðasmára og Smárahvammsvegar. Í tillögunni er gert er ráð fyrir nýrri blandaðri byggð með verslunum, þjónustu og 500 íbúðum. Byggingarmagn er áætlað samtals um 84.000m² og að auki um 27.000 m2 í bílageymslum. Gert er ráð fyrir 2,5 íbúum að meðaltali á hverja íbúð og því áætlað að á svæðinu fullbyggðu komi til með að búa liðlega 1.200 íbúar. Samkvæmt tillögunni verða hæðir húsa á svæðinu frá þremur hæðum upp í sjö hæðir auk kjallara. Á norðvestur hluta svæðisins er gert ráð fyrir einu 14 hæða húsi. Í tillögunni er miðað við 1,0 – 1,2 bílastæði á íbúð og 1 stæði á hverja 35m² af atvinnuhúsnæði. Byggðin næst Smáralind verður að mestu verslunar- og þjónustubyggingar með möguleika á íbúðum á efstu hæðum. Hagasmára er breytt í „borgargötu“ en á jarðhæðum fyrirhugaðra bygginga við götuna eru ráðgerðar verslanir og þjónusta en á efri hæðum íbúðir. Vesturendi núverandi Hagasmára er sveigður til norðurs þannig að gatnamótin við Smárahvammsveg færast norðar. Hámarksumferðahraði í borgargötu og í húsagötum verður 30 km/klst. Áhersla er lögð á að gera öruggar göngu- og hjólaleiðir í hverfinu og tengja þær áfram út úr hverfinu. Megin göngu- og hjólaleið hverfisins liggur í austur-vestur stefnu og meðfram henni er gert ráð fyrir áningastöðum s.s. leiksvæðum, æfingasvæði og setsvæðum. Tillagan sem er dags. 22. júní 2015 er sett fram á uppdrætti í mkv 1:2000 ásamt greinar- gerð, skipulagsskilmálum, skýringarmyndum og fylgigögnum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ofangreind tillaga: „Smárinn vestan Reykjanesbrautar. Breytt deiliskipulag“, verður til sýnis á skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 10. ágúst 2015. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg 6, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 21. september 2015. Skipulagsstjóri Kópavogs. kopavogur.is HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is Ráðningarþjónusta RÁÐNINGARÞJÓNUSTA Leitar þú að starfsmanni? HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga. Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is Vinnusparnaður Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar, tökum forviðtöl og öflum umsagna. Markviss leit Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn. Þriggja mánaða ábyrgð Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er ráðning í hans stað án endurgjalds. Ekkert staðfestingargjald Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú ekkert ef ekki verður af ráðningu. Fjöldi hæfra umsækjenda Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn fyrir starfið. Fjölbreyttar þjónustuleiðir Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina hjá okkur. Reynsla og þekking Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna- mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og hagnýtri menntun. Sanngjarnt verð Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð! HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks. Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.: ÚTBOÐ TENGIVIRKI – VESTMANNAEYJUM Útboðsnúmer: VF030203001-001 Dagsetning opnunar: 8. september 2015 Verkfræðistofa Jóhanns Indriðasonar, f.h. HS Veitna, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við að byggja nýtt tengivirki á lóðinni Strandvegur 18a í Vestmannaeyjum. Húsið er samtals um 507 m² á þremur hæðum. Húsið er steinsteypt hús á steyptum sökkli með steyptum þakplötum sem á kemur þakdúkur og torf. Hluti veggja úti eru klæddir með sléttri plötuklæðningu og eða báruk- læðningu. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Að innan eru veggir og loft máluð og gólf máluð eða dúklögð. Helstu magntölur eru: Jarðvinna 2800 m³ Fyllingar 900 m³ Malbikun útisvæða 1105 m² Mótafletir 3070 m² Steinsteypa 575 m³ Þakflötur 336 m² Klæðning útveggja 334 m² Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 1. júní 2016. Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Verkfræðistofu Jóhanns Indriðasonar, Síðumúla 1, 108 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 11. ágúst 2015. Tilboðin verða opnuð hjá HS Veitum, Brekkustíg 36, 260 Reykjanes- bæ, miðvikudaginn 8. september 2015, kl. 14:00 að viðstöd- dum þeim bjóðendum sem þess óska. LAUGARDAGUR 8. ágúst 2015 33 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 A E -4 A 4 0 1 5 A E -4 9 0 4 1 5 A E -4 7 C 8 1 5 A E -4 6 8 C 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 1 2 8 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.