Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 86

Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 86
8. ÁGÚST 2015 LAUGARDAGUR10 ● Fréttablaðið ● Enski boltinn TOBY ALDERWEIRELD Tottenham 26 ára Belgi 187 sm Kom frá Atletico Madrid á 11,5 milljónir punda Sterkur belgískur varnarmaður sem þekkir enska boltann vel eftir að hafa verið á láni hjá Southampton á síðustu leik- tíð. Getur spilað bæði sem miðvörður og bakvörður. Kemur úr hinum margrómaða knattspyrnuskóla Ajax og vann þrjá meistaratitla með Ajax áður en hann fór til spænska stórliðsins Atletico Madrid. Hjá Ajax mynduðu hann og Jan Vertonghen saman miðvarðarpar og eru nú sameinaðir á ný hjá Spurs. Á fyrsta tímabili hjá Atletico varð hann spænskur meist- ari og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hann var svo lánaður til Southampton sem átti að geta keypt hann í sumar en Atletico sleit samkomulaginu, seldi til Spurs og sér ekki fyrir endann á því máli. Hann hefur verið fastamaður í belgíska landsliðinu síðan 1998 og er búinn að spila yfir 40 landsleiki fyrir firnasterkt landslið Belga. ROBERTO FIRMINO Liverpool 23 ára Brasilíumaður 181 sm Kom frá Hoffenheim á 29 milljónir punda Stuðningsmenn Liverpool bíða mjög spenntir eftir því að sjá þennan sókndjarfa miðjumann á Anfield. Þetta er brasilísk- ur landsliðsmaður sem sló í gegn hjá Hoffenheim í Þýska- landi. Þar var hann í fjögur og hálft ár eftir að hafa spilað með Figueirense í heimalandinu þar á undan. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Brasilíu í nóvem- ber á síðasta ári og hefur síðan verið fastamaður í brasilíska hópnum. Hann spilaði með Brössum á Copa America í sumar. Firmino getur spilað í holunni og einnig á vængnum eða sem framherji. Fjölhæfur og hæfileikaríkur. Hjá Hoffenheim spilaði hann með fyrrverandi leikmanni Liverpool, Ryan Babel, en Hollendingurinn ber honum vel söguna. Segir að hann geti hlaupið með boltann, sé með frá- bær skot og að stungusendingar hans séu einnig í hæsta gæðaflokki. Hann ætti að hafa allt til þess að slá í gegn á Anfield í vetur. RAHEEM STERLING Man. City 20 ára Englendingur 170 sm Kom frá Liverpool á 49 milljónir punda Fór úr því að vera dýrkaðasti maðurinn í Liverpool í að vera sá hataðasti. Þessi vonarstjarna Rauða hersins fór fram á sölu hjá Liverpool þar sem hann vildi vinna titla. Ummæli sem eru ekki líkleg til vinsælda. Hann fékk sitt fram og Liverpool fékk heldur betur vænan skilding fyrir hann. Hvort þeir nái að nýta þann pening til þess að ná í sömu hæfileika er svo allt annar handleggur. Það hefur ekki alltaf gengið hjá félögum sem selja góða menn fyrir vænan skilding. Þó svo að Sterling sé ungur að árum er pressa á honum, enda afar stór fjárfesting fyrir City. Hann hefur farið vel af stað með liðinu og litið vel út á undirbúningstímabilinu. Það er eitt og enska úrvalsdeildin er svo annað. Hann hefur þó reynsluna og getuna í að gera það gott. Það verður síðan afar áhugavert er hann snýr aftur á Anfield í vetur. Þar fær hann tæplega hlýjar móttökur. MEMPHIS DEPAY Man. Utd 21 árs Hollendingur 176 sm Kom frá PSV Eindhoven á 25 milljónir punda Það er þegar byrjað að líkja hollenska undrabarninu Memphis Depay við Cristiano Ronaldo þó svo að hann hafi ekki enn spilað sinn fyrsta alvöru leik fyrir Man. Utd. Ronaldo kom til Man. Utd ungur að aldri og blómstraði í að verða besti knattspyrnumaður heims. Margir sjá fyrir sér að Memphis geti fetað sömu slóð. Hæfileikarnir eru svo sannarlega til staðar en það verður pressa á stráknum. Miðað við hans orð er hann alls óhræddur við pressu og ætlar sér stóra hluti. Hann hefur vaxið með hverju árinu hjá PSV og varð markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar á síðustu leiktíð. Hann er einnig lykil maður í hollenska landsliðinu. Memphis mun koma með hraða, ákveðni og hæfileika til að brjóta upp leiki í lið Man. Utd. Stjörnur í nýjum hlutverkum í vetur ● Við skoðum tvo nýja leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og tvo sterka leikmenn sem ákváðu að bregða sér í nýja keppnistreyju í sumar. NJÓTTU www.ora.is GRILLUM SAMAN Í SUMAR GRILLAÐU AF ÁSTRÍÐU 0 7 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :0 5 F B 1 2 8 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 A E -6 7 E 0 1 5 A E -6 6 A 4 1 5 A E -6 5 6 8 1 5 A E -6 4 2 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 1 2 8 s C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.