Fréttablaðið - 08.08.2015, Side 94
8. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
Það styttist óðum í eina stærstu
tónleika ársins hér á landi, þegar
ein vinsælasta rokkhljómsveit
heims, Kings of Leon, stígur á
svið í Nýju Laugardalshöllinni
þann 13. ágúst næstkomandi. Það
hefur sjálfsagt verið fjarlæg hugs-
un hjá bræðrunum Caleb Followill,
Nathan Followill, Jared Followill
og frænda þeirra Matthew Foll-
owill að þeir væru á leið til Íslands
árið 2015 þegar þeir stofnuðu
Kings of Leon í Nashville í Tenn-
essee í Bandaríkjunum árið 1999.
Hefur alltaf elskað Sigur Rós
Bræðurnir og frændinn hafa farið
sigurför um heim allan en eru þó á
leið til Íslands í fyrsta sinn. Blaða-
maður Fréttablaðsins tók upp tólið
og heyrði í aðalgítarleikara sveit-
arinnar, Matthew Followill, og fór
yfir ýmis mál. „Ég held að þetta
verði alveg geggjað, ég hlakka
mikið til og hef heyrt að Íslending-
ar séu frábært fólk. Ég skal samt
alveg viðurkenna það að ég veit nú
ekki mikið um Ísland en fólk hefur
sagt mér að þar séu álfar og fossar
og svoleiðis. Ég veit ekki mikið en
er séns á að sjá álfa þarna?“ segir
Matthew og hlær. Suðurríkjarokk-
arinn hefur þá heyrt af þjóðsögum
okkar og telur sig eiga möguleika
á að sjá álfa en við hlógum dátt að
þeirri staðreynd að það gæti verið
erfitt að finna álfana blessuðu.
Í kjölfarið förum við að ræða
íslenska tónlist en í fyrstu var
Matthew ekki með á hreinu hvað
okkar helstu tónlistarmenn og
hljómsveitir heita sem hafa gert
það gott á erlendri grundu. „Ég
þekki Björk, hún er fábær. Ég
þekki líka Sigur Rós, ég hef alltaf
elskað Sigur Rós frá því ég heyrði
í henni fyrst,“ segir Matthew eftir
að blaðamaður hafði farið yfir
þekktustu nöfnin.
Er eins og einn af bræðrunum
Sú staðreynd að meðlimir hljóm-
sveitar eru svona náskyldir er
ekki svo algeng í tónlistarheimin-
um þó að vissulega séu þær hljóm-
sveitir til. Hvernig er það, rífast
meðlimir Kings of Leon meira
en „venjulegir“ hljómsveitarmeð-
limir gera? „Ég veit það ekki, því
ég þekki margar hljómsveitir þar
sem meðlimir eru ekki skyldir og
þeir rífast mikið. Í gamla daga
rifumst við kannski meira, við
vorum svo mikið hver í kringum
annan en núna er þetta frábært,
við erum fjölskylda og bestu
vinir. Ef það hitnar í kolunum þá
eru kannski meiri líkur á því að
maður hiki ekki við að segja eitt-
hvað heldur en ef við værum ekki
svona náskyldir,“
útskýrir Matt-
hew.
Þar sem
gítarleik-
a r i n n er
frændinn í hópnum en ekki bróð-
ir, hefur það haft einhver áhrif
á samskiptin í hljómsveitin, er
frændinn aldrei hafður út undan?
„Alls ekki, mér finnst ég frekar
hafa þá út undan,“ segir Matthew
og skellihlær. „Mér hefur aldrei
liðið þannig, mér hefur alltaf liðið
eins og ég sé einn af bræðrunum.“
Svona varð Sex on Fire til
Hljómsveitin Kings of Leon hefur
gefið út sex breiðskífur og gefið
út tónlist sem spiluð er úti um
allan heim. Spurður út í lagasmíð-
ar Kings of Leon hefur Matthew
þetta að segja: „Við semjum mikið
af lögum saman en við leyfum
samt Caleb að sjá um textana, því
hann þarf auðvit að að syngja þá.
Við komum allir
með hugmyndir
o g s e mj u m
saman og það
hefur verið svo
síðan á annarri plötunni
okkar. Ég kem kannski með
gítar riff eða gítarlínu og við byrj-
um að djamma á henni saman og
svo semjum við annan part og svo
framvegis.“ Eitt vinsælasta lag
sveitarinnar, Sex on Fire, varð
einmitt til með slíku djammi.
„Mig minnir að Caleb hafi komið
með gítarlínuna í byrjun og svo
fórum við að djamma á henni. Svo
fór Caleb að raula með henni og þá
spurði Jared bassaleikari, varstu
að segja Sex on fire? og þá svar-
aði Caleb, nei, ég sagði það ekki,
og þá sagði Jared, þú ættir að
segja það og framhaldið er
alþekkt,“ útskýrir Matthew
spurður út í hvernig eitt vin-
sælasta lag sveitarinnar varð til.
Innblástur alls staðar að
Tónlist hljómsveitarinnar hefur
þróast í gegnum árin og segir
Matthew að þriðja plata sveitar-
innar, Because of the Times, sé
hans uppáhaldsplata með hljóm-
sveitinni. „Það er tilfinningin
og hljómurinn sem gerir hana
að minni uppáhaldsplötu. Þarna
vorum við að finna okkur, vorum
að breytast og þróast,“ segir Matt-
hew en eldri tónlist hefur ávallt
veitt honum mestan innblástur.
„Gamla efnið frá Thin Lizzy sem
er frábært hefur veitt mér mik-
inn innblástur og svo hljómsveitir
eins og Led Zeppelin. Ég heyri oft
lög, lagabúta eða gítarriff hér og
þar hjá hljómsveitum sem ég veit
ekki einu sinni hvað heita sem
veita mér innblástur og þá tek
ég upp gítarinn og spila í nokkra
klukkutíma. Þetta kemur úr öllum
áttum. Ætli ég sé ekki mest hrifinn
af þessari eldri tónlist, hljómnum,
tilfinningunni,“ útskýrir Matthew,
spurður út í áhrifavaldana.
Höfum alltaf haldið áfram
Sveitin hefur selt milljónir platna
um allan heim og unnið fjölda verð-
launa eins og til að mynda fern
Grammy-verðlaun. Hver er lykillinn
á bak við þessa velgengni ykkar?
„Við höfum alltaf haldið áfram
og aldrei stoppað í lengri tíma. Við
höfum alltaf unnið rosalega mikið
og sérstaklega þegar við vorum
yngri og hættum aldrei. Það hefur
örugglega sitt að segja um hvað
gerðist í framhaldinu. Við pössuð-
um að láta fólk ekki gleyma okkur
og gáfum út plötu eftir plötu eftir
plötu. Það var ekki fyrr en eftir að
við gáfum út plötuna Come Around
Sundown sem við tókum okkur smá
frí, sem var sirka eitt ár. Það var
svolítið skrítið en samt gott, allir
eignuðust börn og svoleiðis. Við
höfum gaman af því sem við erum
að gera og þess vegna höldum við
áfram.“
Kings of Leon gaf síðast út plöt-
una Mechanical Bull árið 2013, er
ekki kominn tími á nýja plötu? „Það
er ekkert planað í þeim efnum en
við erum alltaf að vinna að nýju
efni og hugmyndum en það er ekk-
ert ákveðið. Ætli við byrjum ekki
að semja fyrir nýja plötu í haust,
vonandi náum við að gefa út nýja
plötu næsta sumar,“ segir Matthew.
Skilaboðin frá gítarleikaranum
til ungra hljómsveita sem langar að
verða betri og stærri eru einföld:
„Gerðu það sem þú elskar að gera
og ekki gefast upp þó það gangi
ekki allt upp strax.“
Langar að synda í sundlaugum
Spurður út dvölina segir Matt-
hew sveitina ekki vera komna
með niðurneglda dagskrá meðan
á dvölinni stendur en að þá langi
að skoða landi. „Ég er ekki alveg
viss um hvernig planið er hjá
okkur. Það væri gaman að fara í
Bláa lónið, skoða landið og jafn-
vel skella sér í sund,“ segir Matt-
hew léttur í lundu eftir að blaða-
maður hafði tjáð honum hve góðar
sundlaugarnar eru á Íslandi.
Súpertilbúnir í tónleikana
Þeir sem hyggjast leggja leið sína í
Nýju Laugardalshöllina á fimmtu-
daginn mega búast við frábærum
tónleikum. „Við spilum lög af öllum
plötunum. Þetta verður skemmti-
legt, við erum súperspenntir og
súpertilbúnir fyrir tónleikana. Það
verður gaman að sjá hvernig aðdá-
endur okkar á Íslandi taka okkur,“
segir Matthew greinilega fullur
tilhlökkunar.
Eru ótrúlega spenntir fyrir Íslandi
Hljómsveitin Kings of Leon heldur tónleika þann 13. ágúst á Íslandi. Fréttablaðið heyrði í Matthew Followill, gítarleikara sveitarinnar.
Fullt nafn Kings of Leon. Hljóm-
sveitin var stofnuð 1999 í Nash ville
í Tennessee í Bandaríkjunum.
Plötur
● Youth & Young Manhood 2003
● Aha Shake Heartbreak 2004.
● Because of the Times 2007 og
var sett í 31. sæti yfir plötur hjá
tímaritinu Rolling Stone.
● Only by the Night 2008 Hún
var tilnefnd til Grammy-verð-
launa sem rokkplata ársins. Þá
fengu þeir verðlaunin fyrir tvö
lög af plötunni, Use Somebody
og Sex on Fire.
● Come Around Sundown 2010
Hún var ellefta mest selda
plata ársins í Bretlandi og var
tilnefnd til Grammy-verðlauna
sem rokkplata ársins.
● Mechanical Bull– 2013 var
tilnefnd til Grammy-verðlauna
sem rokkplata ársins.
Þekktustu lög On Call, Sex on
Fire, Use Somebody, svo nokkur
séu nefnd.
Um sveitina Meðlimir sveitar-
innar eru Caleb Followill, sem er
söngvari sveitarinnar og rytma-
gítarleikari, Nathan Followill
trommuleikari, Jared Followill
bassaleikari og Matthew Followill,
sem er aðalgítarleikari. Caleb,
Nathan og Jared eru bræður og
Matthew er frændi þeirra.
Hljómsveitin er nefnd í höfuðið
á föður bræðranna, Ivan Leon
Followill, en hann var predikari.
Hljómsveitin hefur undanfarið
verið aðalnúmerið á stærstu tón-
leikahátíðum heims, meðal annars
í Hróarskeldu og Glastonbury.
Sveitin heldur tónleika í Nýju
Laugardalshöllinni fimmtudaginn
13. ágúst en þetta er í fyrsta sinn
sem hún heimsækir landið.
KINGS OF LEON
SÚPER SPENNTIR Hljómsveitin Kings of Leon ætlar að spila lög af öllum plötunum sínum og segir Matthew Followill, gítarleikari sveitarinnar, þá vera súperspennta og
súpertilbúna í tónleikana á Íslandi. NORDICPHOTOS/GETTY
MATTHEW
FOLLOWILL
Mig minnir að Caleb
hafi komið með gítarlín-
una í byrjun og svo fórum
við að djamma á henni.
Svo fór Caleb að raula með
henni og þá spurði Jared
bassaleikari, varstu að
segja Sex on fire? og þá
svaraði Caleb, nei, ég sagði
það ekki, og þá sagði Jared,
þú ættir að segja það og
framhaldið er alþekkt.
0
7
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:0
5
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
E
-4
F
3
0
1
5
A
E
-4
D
F
4
1
5
A
E
-4
C
B
8
1
5
A
E
-4
B
7
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
2
8
s
C
M
Y
K