Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Page 126

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Page 126
Flóttinn til vorlandsins Steinunn Sigurðardóttir: Hjartastaður. Mál ogmenning 1995. 371 bls. Skriftin Frasinn „vel skrifað" segir ákaflega lítið um þá eiginleika sem gera skáldsögur Steinunnar Sigurðardóttur að jafn eftir- minnilegri lesningu og þær eru. Hann er tilgangslaus þegar tala á um skriftarmáta sem ekki byggir á að sæmilega sé stílað heldur á hljómi og ísmeygilegri hrynj- andi í setningum sem samt taka sig aldrei of alvarlega. Skriftarmáti sem er jafn upptekinn af sjálfum sér og þessi, jafn upptekinn af því að vera skrift og ekki fyrst og fremst vísun til hluta og verka er aldrei eitthvað „vel skrifað“. Sá texti sem er „vel skrifaður'1 er fyrst og ffemst safn mælskubragða en ekki sú ferð í orðum sem skrift Steinunnar er. Hinn „vel skrifaði" texti er þegar orðað- ur texti, ffamsetning á hugtökum sem falin eru með hæfilegu millibili í textan- um án þess að reyna um of á þefskyn lesanda. En viðhorfið til tungumálsins í skrift Steinunnar er flóknara en svo. Það er ekki aðeins að setningarnar séu tví- bentar, þær eru margbentar, þær breyta sífellt viðhorfi lesandans til þess sem les- ið er. Því eins og segir í Hjartastað: „Orð- ið tvíbenter ófullkomið orð og lýsir því ekki hvernig hægt er að hafa margskonar afstöðu til hluta“ (bls. 286). Að baki þessum setningum liggur aldrei allegórískt laumuspil, hálffalinn boðskapur sem látið er glitta í líkt og yfir hann hafi verið kastað lúnu teppi. Setn- ingarnar setja merkinguna ekki í hand- hægar umbúðir sem grípa má með sér á meðan lesið er, heldur viðhalda þeirri skapandi spennu sem er á milli vitund- arinnar um að skrift sé ekkert nema skrift og pókerfésins á þeim sem veit það, en lætur það aldrei uppi, og lýgur því í staðinn að orðin séu afþrykkingar af „raunveruleikanum". Af þessum felu- leik sprettur ekki hvað síst þetta ill- höndlanlega í textanum; erfiðleikarnir á því að finna orð yfir það sem þegar allt kemur til alls knýr lestur sögu eins og Hjartastaðar áfram. Því þéttleiki skrift- arinnar kemur upp um í hve ríkum mæli skriftin snýst um sig sjálfa. Þéttleikinn snýst fyrst og fremst um hljóm, um hrynjandi sem í Hjartastað grundvallast á löngum málsgreinum sem ítrekað eru rofnar með kommum svo að textinn virðist „anda“ í gegnum lestrarmerkin. Hver síða opnar nýja möguleika þessar- ar orðlistar sem þegar allt kemur til alls er aðall textans en ekki hvernig hann er byggður upp ffá sjónarmiði söguþráðar og sennileika. Og því eru hugleiðingar sögumannsins, Hörpu Eirar, um ást, einstæðingsskap og eilífa þrá ekki hvað síst svo magnaðar vegna þess að þær eru settar á vogarskálar með köldum orðum og snörpum, með hörku og íróníu. Sjálfur dans skriftarinnar er sífellt í for- grunni, hoppin sem hún tekur á milli þess að vera sjálfri sér næg sem listaverk, sett saman úr hljómum og hrynjandi, og þess að vera boðskiptatæki sem vill segja okkur eitthvað um heiminn. Það er ekki hvað síst vegna þess hve óvæntar myndir þessi dans tekur á sig, og hve lengi hann dunar sem gerir Hjartastað að óumdeil- anlegu „opus magnum" Steinunnar Sig- urðardóttur. Aldrei fyrr hefur hún sýnt jafn vel hvers hún er megnug sem rithöf- undur. Á vegum úti Sagan greinir frá ferð mæðgnanna Hörpu Eirar og Eddu Sólveigar austur á land í fylgd með flautuleikaranum og glæsipíunni Heiði, vinkonu Hörpu. Til stendur að þær mæðgur hafi vetursetu austurfrá svo unglingurinn Edda komist aftur á réttan kjöl í lífinu eftir að hafa 116 TMM 1996:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.