Fréttablaðið - 15.08.2015, Síða 4

Fréttablaðið - 15.08.2015, Síða 4
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4 18 PRÓSENT LÆKKUN hefur orðið á heimsmarkaðsverði á áli frá nóvember 2014. 8.8.2015 ➜ 14.8.2015 LEIÐRÉTTING Í frétt Fréttablaðsins þann 8. júní síðastliðinn var haft eftir Páli Björgvin Guðmundssyni, bæjarstjóra Fjarða- byggðar, að um umtalsverðar fjárhæðir væri að ræða varðandi vilyrði Eykon Energy um aðgang að hafnarmann- virkjum Fjarðabyggðar vegna leitar og rannsókna á Drekasvæðinu. Það er rangt. Beðist er velvirðingar á þeim mistökum. Ranglega var farið með nafn forstjóra Móbergs ehf. í blaðinu í gær. Hann heitir Skorri Rafn Rafnsson. Beðist er velvirðingar á þeim mistökum. YFIR 200 SLÖSUÐUST eftir fall úr hæð 46% kvenna vilja að hægt sé að refsa fyrir sölu á vændi á móti þrjátíu prósentum karla. 660 nemendur eru skráðir í Melaskóla en fyrir tveimur árum voru 560 nemendur í skólanum. 630 milljónum króna var eytt í kaup á fötum á netinu í fyrra. 23.000 ökutæki komu við á Dalvík helgina þegar Fiskidagur- inn mikli fór fram. 13 KÍLÓ AF HERÓÍNI voru haldlögð á sama tíma og íslensk kona var handtekin í Englandi á dögunum. 11 0. 00 0 m an ns b úa í bo rg in ni V äs te rå s í S ví þj óð þ ar s em tv ei r v or u st un gn ir til b an a ÁBENDING Blaðinu hefur borist ábending um að ranglega sé farið með staðreyndir þar sem vélarbilnun ber á góma í viðtali við smábátasjómanninn Hilmar F. Thorarensen í Fréttablaðinu 8. ágúst. Veldu f lot tustu Guðrúnartúni 10, Reykjavík og Tryggvabraut 10, Akureyri. Opið mánudaga til föstudaga frá 8 til 17 Skoðaðu úrvalið af floum DELL tölvum fyrir skólann á advania.is/skoli, verð frá 69.990 kr. una UTANRÍKISMÁL „Miðað við þær tölur sem ég hef séð ef við berum saman áhrif á Ísland annars vegar og Evr- ópusambandið hins vegar með tilliti til landsframleiðslu þá eru þau tutt- ugu sinnum meiri fyrir okkur en ESB,“ segir Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra um við- skiptabann Rúss- lands gagnvart Íslandi. Ríkis- stjórnin fundaði vegna málsins í gær. „ Þ et ta er u margar hverj- ar vörur sem við erum að flytja út en á meðan til dæmis Þjóðverjar flytja enn út ýmiss konar iðnvarning á borð við bíla, verkfæri og fleira.“ Sigmundur átti símafund með Dímitrí Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, í gær. „Rússar leggja áherslu á að þeir hafi ekki verið fyrri til að innleiða þvingunaraðgerðir,“ segir Sigmund- ur. „Á móti minnti ég á að mikill munur væri á áhrifunum af Íslands hálfu annars vegar og Rússlands hins vegar.“ Ríkisstjórnin fundaði meðal ann- ars um hugsanlegar leiðir til að bæta útflutningsaðilum skaðann og allra leiða er leitað. „Við erum að leita allra leiða til að koma þeim til aðstoðar sem fyrir þessu verða. Hvort sem það er að leita nýrra markaða og við höfum jafnvel verið tilbúin að skoða það að bakka fólk upp með tryggingu eða slíku.“ Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sagði í lok ríkisstjórnarfund- ar í dag að þar sem Ísland væri að taka á sig mikið högg vegna þeirra þvingunaraðgerða sem Ísland tekur þátt í með Evrópusambandinu gegn Rússum væri eðlilegt að sambandið opnaði markaði sína fyrir innflutn- ingi á íslenskum sjávarútvegsvörum. Sigmundur segir að slíkar þreifingar séu þegar farnar af stað. „Utanríkisráðherra hefur verið í sambandi við Evrópusambandið og átt símafundi út af þessum tolla- málum. Okkur þykir það eðlilegt í ljósi þess hve þungt þetta bitnar á Íslandi að Evrópusambandið endur- skoði þessa háu tolla sem það leggur á þessar vörur.“ Þá fundaði Sigmundur með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, og meðal annars var viðskiptabann Rússa rætt. Landssamband smábáta- eigenda hefur meðal annars lagt til að Ólafur beiti tengslum sínum við Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að aflétta viðskiptabanninu. „Forseti metur það sjálfur hvort og hvernig hann beitir sér í þessu máli. Þessi forseti og raunar for- verar hans hafa iðulega beitt sér fyrir því að liðka fyrir milliríkja- viðskiptum. Það hefur oft haft tölu- verð áhrif,“ segir Sigmundur. Ekki náðist í forseta Íslands þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Margir hagsmunaaðilar í sjávar- útvegi hafa gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að grípa ekki nógu snemma inn í og að ríkisstjórnarfundir hafi ekki verið haldnir í sumar. Sig- mundur er ekki sammála þeirri gagnrýni en hann bendir á að hvorki ríkisstjórnin né hagsmuna- aðilar hafi frétt af þessu fyrr en í lok júní og að ráðherrar ríkisstjórn- arinnar hafi unnið í málinu allan tímann. Hann segir að ríkisstjórnin hafi ekki rætt hvort Ísland ætti að hætta þvingunaraðgerðum sínum gagnvart Rússum. stefanrafn@frettabladid.is Skoða hvort ESB sé tilbúið að lækka tolla á fiskafurðir Forsætisráðherra segir aðgerðir Rússa bitna tuttugu sinnum meira á Íslandi en Evrópusambandinu. Utanríkis- ráðherra hefur þegar haft samband við ESB vegna hugsanlegra tollalækkana á sjávarafurðum. DÍMITRÍ MEDVEDEV FARGA MATVÆLUM Rússar hafa fargað hundruðum tonna af innfluttum matvælum. Frosinn makríll gæti endað undir beltum jarðýtunnar. NORDICPHOTOS/AFP Okkur þykir það eðlilegt í ljósi þess hve þungt þetta bitnar á Íslandi að Evrópusam- bandið endurskoði þessa háu tolla sem það leggur á þessar vörur. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. LÖGREGLUMÁL „Eigum við þá að leyfa síbrotamönnum að halda áfram í glæpum og gera ekki neitt?“ spyr Akeem Cujo, fram- kvæmdastjóri fjölmenningar- setursins Ísland Panorama Center, Helga Hrafn Gunn- arsson alþingis- mann. Helgi sagði í samtali við Fréttablaðið að óskynsam- legt væri að loka fyrir haturs- áróðursspjallborð þar sem þau myndu bara spretta upp annars staðar. Akeem er einnig ósammála spjallborðsgesti sem Frétta- blaðið talaði við er sagði engan hatursáróður á spjallinu heldur svartan húmor. Akeem segir spjallborðsgesti kynþáttahat- ara. - þea Vilja loka hatursspjallborði: Er ósammála Helga Hrafni AKEEM CUJO 1 4 -0 8 -2 0 1 5 2 1 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 1 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 C 8 -5 8 D 0 1 5 C 8 -5 7 9 4 1 5 C 8 -5 6 5 8 1 5 C 8 -5 5 1 C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 1 2 0 s C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.