Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 118
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 78
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís
Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Fyrir þínar
bestu stundir
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
Þú finnur
bæklinginn á dorma.is
Boogie
hægindastóll
Aðeins 43.900 KR.
Slitsterkt áklæði.
Margir litir.
Fullt verð: 54.900 kr.
KLASSÍSK
hönnun
Boogie
hægindastóll
Aðeins 79.900 KR.
Slitsterkt áklæði í mörgum litum.
Hægri og vinstri tunga. Stærð: 186 x 77 cm, H: 85 cm.
Fullt verð: 99.900 kr.
TORONTO
rafmagnslyftistóll
tvær stærðir
139.900 kr.
Stillanlegur hægindastóll.
Svart standart leður.
Fullt verð frá: 179.900 kr.
Dormaverð í ágúst frá:
Íslandsmót í hrútadómum verður
haldið á Sauðfjársetrinu á Hólma-
vík sunnudaginn 16. ágúst og þar
munu aðalleikarar kvikmyndar-
innar Hrútar, Sigurður Sigurjóns-
son og Theodór Júlíusson, heygja
einvígi í hrútaþukli.
Hrútum þykir fátt skemmtilegra
en að stangast á og því má vænta
þess að baráttan verði hörð og ekk-
ert gefið eftir. „Ég tapaði náttúru-
lega fyrir Tedda í myndinni, en
það var auðvitað bara skáldskap-
ur, hið sanna mun koma í ljós núna
á sunnudaginn,“ segir Siggi Sigur-
jóns sigurviss.
Jafnan er góð þátttaka í hrúta-
dómunum, bæði í flokki þaul-
reyndra hrútadómara og líka í
flokki óvanra hrútaþuklara. Óhætt
er að segja að félagarnir hafi öðl-
ast töluverða reynslu í meðhöndl-
un hrúta við gerð myndarinnar.
„Siggi á ekki séns, hann hefur bara
ekki sömu næmni og ég. Það verð-
ur skemmtilegt að rúlla honum
upp,“ segir Theodór.
Keppnin hefst klukkan 14.00. - glp
Frá Cannes til Hólmavíkur
Hrútaþuklseinvígi á milli leikaranna Sigga Sigurjóns og Theodórs Júlíussonar.
EINVÍGI Siggi Sigurjóns og Theodór
Júlíusson etja kappi í hrútaþukli.
Hljómsveitin Kaleo fékk gott hrós
frá Caleb Followill, söngvara Kings
of Leon, þegar Kaleo hitaði upp
fyrir sveitina á tónleikum í Laug-
ardalshöllinni á fimmtudagskvöld-
ið. Þegar leið á tónleikana þakkaði
Caleb Kaleo fyrir spilamennsk-
una og sagðist hafa heyrt mikið í
henni í bandarísku útvarpi. „Þetta
er sífellt að aukast. Ég held að All
the pretty girls sé spilað á rúmlega
fimmtíu útvarpsstöðvum í dag,“
segir Jökull Júlíusson, söngvari og
gítarleikari Kaleo, spurður út í vin-
sældir hljómsveitarinnar í banda-
rísku útvarpi.
Sveitin gerir út frá Austin í
Texas og hafa hljómsveitarmeð-
limir verið búsettir í Bandaríkjun-
um síðastliðna mánuði. Hún hefur
talsvert komið fram í úrvarps-
stöðvum vestanhafs, annars vegar
í svokölluðum „live sessionum“ og
hins vegar viðtölum. Nú síðast kom
sveitin fram í live session á Sirius
XM, sem er ein stærsta gervihnat-
taútvarpsstöðin í Bandaríkjunum.
Jökull segir að sveitirnar hafi
ekki hist formlega í kringum tón-
leikana á Íslandi. „Við hittum þá
ekki formlega en ég reyndar fór
inn til þeirra þegar ég ruglaðist
óvart á búningsherbergjum,“ segir
Jökull og hlær. Hann segir þó að
Suðurríkjarokkararnir hafi tekið
vel í heimsókn Jökuls í búnings-
herbergið. „Annars náðum við því
miður ekkert að hitta þá eftir tón-
leikana enda vorum við að fara í
flug snemma um nóttina.“
Liðsmenn Kaleo eru aftur komn-
ir til Bandaríkjanna og fram undan
er þétt tónleikadagskrá víða um
Bandaríkin og upptökur.
Kings of Leon og Kaleo eru hjá
sömu bókunarskrifstofu í Banda-
ríkjunum, WME, og ef marka má
tónleikana á Íslandi virðast þær
mynda gott teymi. Er Kaleo að fara
að deila sviði með Kings of Leon á
næstunni? „Ja, hver veit? Það hefur
reyndar ekkert verið minnst á það
en það væri gaman í framtíðinni,“
segir Jökull.
Tónleikagestir í Laugardalshöll-
inni voru augljóslega mjög hrifn-
ir af Kaleo og vildu heyra meira
þegar sveitin kláraði sitt pró-
gramm. „Stemmingin var frábær
og það var mjög gaman að sjá að
fólk var mætt snemma,“ segir Jök-
ull alsæll eftir Íslandsferðina.
gunnarleo@frettabladid.is
Tónlist Kaleo spiluð
á 50 útvarpsstöðvum
Söngvari Kings of Leon fór fögrum orðum um Kaleo og sagðist oft hafa heyrt í
henni í bandarísku útvarpi. Lagið All the Pretty Girls spilað víða um Bandaríkin.
VINSÆLIR Vinsældir hljómsveitarinnar Kaleo aukast sífellt í Bandaríkjunum og fór söngvari Kings of Leon fögrum orðum um
sveitina á tónleikunum á fimmtudagskvöldið. MYND/STROUD ROHDE
Þóra Tómasdóttir
MAKI Arnar Ásgeirsson
Þóra Tómasdóttir hefur komið víða við í
fjölmiðlageiranum á Íslandi. Hún var meðal
annars í Kastljósi, ritstjóri Nýs Lífs og hefur
tekið að sér ýmis fjölmiðlaverkefni
enda fær í því sem hún gerir. Hún
stendur fyrir Festival of Failure um
helgina en í þetta sinn verður
áherslan lögð á tónlistarsviðið.
Kristín Tómasdóttir
systir
Hún er ótrúlega mikill töffari
en í senn mjög viðkvæm.
Alltaf með mörg járn í eldinum og er
rosalega fylgin sér og trygglynd.
Sóley Tómasdóttir
systir
Ég mundi segja að hún væri
það frökk að það jaðrar
stundum við ósvífni. Hún hikar ekki
við að taka áskorunum og tekst oft
vel upp en kann að meta lærdóminn
sem hún dregur af klúðri. Hún er
líka sjúklega fyndin, kaldhæðin og
skemmtileg.
Guðrún Jónsdóttir
móðir
Hún er stundum eins og fugl
sem tyllir niður fæti og er svo
floginn fljótt burt hvort sem það varðar
búsetu eða vinnu. Hún vill hafa frelsi
til þess að gera það sem henni dettur
í hug og vera það sem henni dettur í
hug. Hún puntar upp á matarborðið
með skemmtilegum umræðum.
NÆRMYND
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-5
3
E
0
1
5
C
8
-5
2
A
4
1
5
C
8
-5
1
6
8
1
5
C
8
-5
0
2
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K