Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 106
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 66
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
Lögðu undir sig heimavistarskóla
Hljómsveitin Sniglabandið er um þessar mundir að vinna að nýrri plötu sem ber nafnið Íslenskar sálarrannsóknir. Nýja platan kemur út í
byrjun október en þá fagnar hljómsveitin einnig þrjátíu ára afmæli sínu. Útgáfunni verður fagnað með tónleikum í Eldborg í 3. október.
Hljómsveitin Sniglabandið er um
þessar mundir að gera nýja plötu,
sem hlotið hefur nafnið Íslenskar
sálarrannsóknir. Meðlimir sveitar-
innar hafa undanfarna daga dvalið
á Núpi í Dýrafirði þar sem þeir hafa
verið við upptökur og í eins konar
sálarrannsóknavinnu.
„Þetta hefur gengið rosalega vel.
Við vorum búnir með fjögur lög
áður en við fórum vestur og náðum
svo að klára önnur fjögur lög á Núpi.
Þetta er það besta sem hljómsveit-
ir geta gert þegar þarf næði og ein-
beitingu til að vinna og tengjast
saman, menn eru ekki að skjótast
hingað og þangað eins og oft vill
verða í amstri dagsins í borginni,“
segir Pálmi Sigurhjartarson, píanó-
leikari Sniglabandsins.
Gamli heimavistarskólinn á Núpi
hefur því verið notaður sem hljóð-
ver að undanförnu. „Þetta er frábær
staður, við vorum með gömlu heima-
vistina fyrir okkur, settum magnar-
ana í tóma sundlaugina og trommu-
settið í leikfimisalinn. Ég fékk að
nota gamalt upright Baldwin-píanó
í einu laganna, píanóið stóð einsam-
alt úti í horni matsalarins og gaf frá
sér magnaðan hljóm sem á eftir að
gefa laginu Þú bíður allavega eftir
mér, eftir Megas, nýjan og í senn
eldgamlan tón. Við unnum svo frá
níu á morgnana til eitt á næturnar,
þetta var alveg frábært,“ útskýrir
Pálmi en þeir félagar voru nýkomn-
ir í höfuð borgina þegar blaðamaður
náði tali af honum.
Platan sem sveitin vinnur nú að
kemur út í byrjun októbermánaðar
í tilefni af þrjátíu ára afmæli Snigla-
bandsins. Sveitin ætlar að halda upp
á afmælið með heljarinnar tónleik-
um í Eldborgarsal Hörpu 3. október.
„Við erum að endurútsetja íslensk
alþýðulög frá ýmsum tímum. Við
erum að finna sálina í vel sömdum
lögum, sem eiga margt annað inni.
Það er pínu tilgangurinn með plöt-
unni,“ útskýrir Pálmi.
Eitt lag af þessari væntanlegu
plötu hefur heyrst í sumar en það
er lagið Ég er að tala um þig eftir
Jóhann G. Jóhannsson sem Björg-
vin Halldórsson söng upphaflega.
„Við höfum nú gert það að okkar
og erum mjög sáttir við útkomuna.
Við erum að útsetja íslensk alþýðu-
lög frá ýmsum tímabilum í tón-
listarsögunni og hefur það verið
verkefni þessa árs að vinna úr hug-
myndum og velja lög, eða kannski
meira að leyfa lögunum að koma til
okkar, eins og þau hafa flest gert.
Sum lögin hafa rúllað fram og aftur
í tempóum og stílum þangað til við
erum orðnir sáttir og finnum réttan
tilgang með útsetningunni, að gefa
góðu lagi annað líf og jafnvel lengja
lífdaga þess,“ segir Pálmi. „Næsta
útspil okkar verður tónlistarperla
sem við vitum að mörgum þykir
vænt um, Villtir strengir eftir Odd-
geir Kristjánsson. Það lag var t.d. að
detta út af lagalistanum af því ein-
faldlega að við vorum ekki komnir
niður á útsetningu sem við vorum
sáttir við, en í vestfirsku kyrrðinni
fundum við svarið og erum mjög
ánægðir með útkomuna.“
Þótt Sniglabandið hafi ekki verið
að spila um hverja helgi að undan-
förnu þá hefur sveitin hist vikulega
síðan í janúar til þess að vinna í tón-
list. „Við byrjuðum fyrstu vikuna í
janúar og höfum hist vikulega síðan.
Þetta hefur verið mikil útsetningar-
vinna og hópar þurfa líka að koma
þessu andlega saman,“ bætir Pálmi
við.
Þeir félagar hafa einnig verið
með útvarpsþætti í sumar á Rás
2 en hafa oftast sent þá út utan af
landi. „Við vorum með þáttinn á
Ísafirði síðustu helgi og fórum svo
á Núp í leiðinni í bæinn. Við send-
um þáttinn út frá Sauðárkróki um
helgina.“ Sniglabandið kemur ein-
mitt fram á Gærunni á Sauðárkróki
í kvöld, á Hótel Mælifelli.
Þetta hefur gengið
rosalega vel. Við vorum
búnir með fjögur lög
áður en við fórum vestur
og náðum svo að klára
önnur fjögur lög á Núpi.
Þetta er það besta sem
hljómsveitir geta gert
þegar þarf næði og
einbeitingu til að vinna
og tengjast saman.
Pálmi Sigurhjartarson,
píanóleikari Sniglabandsins.
EINBEITTIR Hér eru liðsmenn Sniglabandsins djúpt hugsi í hljóðverinu sem þeir
settu upp á Núpi í Dýrafirði.
STÓR SJÖUND Hér eru þeir Sigurvald Ívar Helgason, Þorgils Björgvinsson, Einar
Rúnarsson, Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, Skúli Gautason, Pálmi J. Sigurhjartarson og
Björgvin Ploder flottir við flaggstöngina. MYNDIR/SNIGLABANDIÐ
Lagið Disappointing er fyrsta
lagið sem John Grant sendir
frá sér af nýrri plötu. Þess má
til gamans geta að söngkonan
Tracey Thorn er gestasöngkona
í laginu.
John Grant sendir frá sér sína
þriðju plötu í haust og er áætl-
aður útgáfudagur 2. október.
Platan var tekin upp í Dallas
þar sem Grant gerði sína fyrstu
plötu, Queen of Denmark, sem sló
svo eftirminnilega í gegn úti um
allan heim.
Síðasta plata Grants, Pale
Green Ghosts, var tekin upp hér
á landi og kom út árið 2013. Hún
var af mörgum talin vera ein af
bestu plötum ársins og var meðal
annars ofarlega á árslistum tón-
listartímaritanna Mojo, Guardian
og Uncut. John Grant verður með
útgáfutónleika í Hörpu dagana 5.
og 6. nóvember. - glp
Nýtt lag frá
John Grant
NÝTT EFNI John Grant sendir frá nýja
plötu í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-4
5
1
0
1
5
C
8
-4
3
D
4
1
5
C
8
-4
2
9
8
1
5
C
8
-4
1
5
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K