Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 10
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Námskeiðið hefst 10. Sept 2013 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stella, stella.gunnars@gmail.com
stella.gunnarsdottir@reykjavik.is
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst Föstudaginn 20.Sept .Nk.
í Árbæjarlaug
2 s ember 2014 í Árbæjarlaug.
föst a i 19. s ember
Ná skeiðið hefst septemb r 2015 í Árbæjarlaug.
Innritun virka daga frá kl. 17.00 og um helgar frá kl. 13.00
í síma 557-6618 Stel a, stella.gunnars@gmail.com
stel a.gunnarsdot ir@reykjavik.is
4. september
ORKUMÁL Skipulagsstofnun hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
verulegir annmarkar hafi verið
á umhverfismatsferli Landsnets
varðandi lagningu Blöndulínu 3
frá Blöndu í Húnavatnssýslu að
tengivirki að Rangárvöllum í Eyja-
firði. Landsnet hafi ekki kannað
kosti þess að setja línuna í jörð
þrátt fyrir beiðni Skipulagsstofn-
unar.
Ólafur Valsson, eigandi jarð-
arinnar Hóla í Öxnadal, krafðist
endur upptöku matsins, meðal ann-
ars á þeim grundvelli að ekki hafi
verið bornir saman þeir valkostir
að leggja jarðstreng og loftlínu.
Skipulagsstofnun taldi sér ekki
heimilt að taka málið upp að nýju,
en lagði til grundvallar að meta
hefði átt þann kost að leggja jarð-
streng í stað loftlínu.
Skipulagsstofnun lagði fyrir
Landsnet árið 2008 að meta jarð-
streng til samanburðar við loft-
línu á þessari leið sem er um eitt
hundrað kílómetra löng. Svonefnd
frummatsskýrsla, sem Landsnet
skilaði til Skipulagsstofnunar í
mars 2012, hafði ekki að geyma
slíkt mat að mati stofnunarinnar.
Ásdís Hlökk Theodórsdótt-
ir, forstjóri Skipulagsstofnunar,
telur að þrátt fyrir augljósa ann-
marka geti stofnunin ekki tekið
málið upp að nýju. „Til þess þurf-
um við að hafa lagalegar heim-
ildir og eins og er rakið í bréfi til
Ólafs er talað um hvaða heimildir
við höfum. Það sem við gerum er
að við förum í öll þau efnisatriði
sem málsaðili vekur máls á til að
skoða hvort efnislegir annmark-
ar eru á málinu sem er óháð því
hvort það séu lagalegar heimildir
til að taka málið upp aftur,“ segir
Ásdís Hlökk. „Hins vegar munum
við hafa þetta mál til hliðsjónar
þegar sambærileg mál koma inn á
borð hjá okkur.“
Skagfirðingar og Eyfirðingar
hafa kallað eftir því að jarðstreng-
ur verði kannaður sem alvöru val-
kostur en Landsnet hefur hingað
til ekki gert það. „Ljóst er að héðan
í frá muni Skipulagsstofnun ekki
taka við frummatsskýrslum frá
Landsneti í sambærilegum málum
nema jarðstrengur sé tekinn til
raunhæfrar skoðunar. Ég mun
ekki leyfa loftlínu um land mitt.
Umrætt landsvæði hefur mikið
verndargildi á landsvísu að áliti
Náttúrufræðistofnunar Íslands
og nýtur það verndar lögum sam-
kvæmt,“ segir Ólafur Valsson, eig-
andi Hóla í Öxnadal.
sveinn@frettabladid.is
Umhverfismat
háð miklum
annmörkum
Skipulagsstofnun telur umhverfismatsferli Landsnets
varðandi Blöndulínu 3 ófullnægjandi. Landsnet hafi
ekki skoðað jarðstrengi þrátt fyrir óskir þess efnis.
Telur sig ekki geta afturkallað fyrri ákvörðun sína.
ÖXNADALUR Landsnet hefur lengi viljað leggja nýja Blöndulínu til að styrkja
raforkuflutninga á landinu. Telur stofnunin byggðalínuna hringinn í kringum landið
löngu sprungna. Landeigendur í Skagafirði og Eyjafirði hafa lengi barist fyrir því að
Blöndulína fari á sumum svæðum í jörð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég mun ekki leyfa
loftlínu um land mitt.
Umrætt landsvæði hefur
mikið verndargildi á
landsvísu að áliti Náttúru-
fræðistofnunar Íslands og
nýtur það verndar lögum
samkvæmt.
Ólafur Valsson,
eigandi Hóla í Öxnadal.
STJÓRNSÝSLA Strætó bs. braut
útboðslög þegar fyrirtækið samdi
við Ný-Tækni vegna Ferðaþjón-
ustu fatlaðra. Þetta er niðurstaða
kærunefndar útboðsmála frá því
á fimmtudag.
Ný-Tækni tók í febrúar við hlut-
verki Kynnisferða við svokallaðan
tilfallandi akstur fyrir Ferðaþjón-
ustu fatlaðra. Kynnisferðir óskuðu
eftir að losna undan skuldbinding-
um sem fyrirtækið hafði gengist
undir sem aðili að rammasamningi
eftir útboð í fyrrasumar. Fyrir-
tækin þrjú sem kærðu tóku þátt í
því útboði en Ný-Tækni ekki.
Kærunefndin kemst að því í
úrskurði sínum að Strætó bs. sé
skaðabótaskyldur gagnvart kær-
endunum vegna samningsins.
Samningurinn var þó ekki ógiltur
vegna þessara annmarka. Þá var
Strætó bs. gert að greiða kærend-
um sameiginlega 800 þúsund krón-
ur í málskostnað.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður kærendanna, segir umbjóð-
endur sína þokkalega sátta við
niðurstöðuna. „Þar sem úrskurðar-
nefndin telur að framsalið hafi
ekki verið í samræmi við lagaskil-
yrði þá hefði mönnum þótt lógískt
að ómerkja þetta framsal. En hins
vegar er þetta staðfesting á gagn-
rýni á vinnubrögð Strætó og gott
að fá viðurkenningu á bótaskyldu.“
Sveinn Andri segir tvennt fram
undan. Annars vegar muni þeir
setjast niður og semja um greiðslu
skaðabóta í samræmi við niður-
stöðu úrskurðanefndarinnar.
„Hins vegar þarf Strætó að fara
að taka til hjá sér og skipta út
þeim aðilum sem hafa haldið utan
um þessa rammasamninga,“ segir
Sveinn Andri. - fbj
Þarf að borga skaðabætur samkvæmt niðurstöðu kærunefndar:
Strætó brotlegur við útboðslög
BRUTU LÖG Margvíslegir erfiðleikar hafa sett mark sitt á Ferðaþjónustu fatlaðra að
undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BANDARÍKIN Jimmy Carter, fyrr-
verandi Bandaríkjaforseti, hefur
skýrt frá því að krabbamein hafi
greinst í líkama hans.
Carter, sem er níræður, segir
þetta hafa komið í ljós þegar
hann gekkst undir aðgerð á lifur
nýverið. Hann segir að krabba-
meinið hafi nú þegar borist víðar
um líkamann.
Carter var forseti Bandaríkj-
anna á árunum 1976 til 1981.
Eftir að hann lét af forsetaemb-
ættinu stofnaði hann Carter-
stofnunina, sem hefur látið að sér
kveða í mannúðarmálum víða um
heim.
- gb
Fyrrverandi forseti Bandaríkjanna skýrir frá veikindum:
Carter kominn með krabbamein
JIMMY CARTER Hefur starfað að
mannúðarmálum eftir að hann lét af
forsetaembætti. NORDICPHOTOS/AFP
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-7
B
6
0
1
5
C
8
-7
A
2
4
1
5
C
8
-7
8
E
8
1
5
C
8
-7
7
A
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K