Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 100
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
LAUGARDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
15. ÁGÚST
Tónleikar
13.00 Söngvaskáld í Byggðasafni
Hafnarfjarðar í dag klukkan 13.00.
Fram koma: Sveinn, Adda, Koi, Markús.
Frítt er inn
15.00 Á elleftu tónleikum sumarjazz-
tónleikaraðar veitingahússins Jómfrúar-
innar við Lækjargötu, í dag kemur
kemur fram tríó gítarleikarans Björns
Thoroddsen. Auk hans skipa tríóið þeir
Jón Rafnsson á kontrabassa og Sigfús
Óttarsson á trommur. Þeir munu leika
fjölbreytt úrval jazz og popp tónlistar
í eigin útgáfum. Tónleikarnir fara fram
utandyra á Jómfrúartorginu. Þeir hefj-
ast klukkan 15 og standa til klukkan 17.
Aðgangur er ókeypis.
19.00 Í kvöld kl. 19.00 verður frum-
flutt á Íslandi óratorían Salómon eftir
Händel í Hallgrímskirkju sem hluti af
Kirkjulistahátíð 2015. Flytjendur eru
Mótettukór Hallgrímskirkju og Alþjóð-
lega barokksveitin í Den Haag ásamt
einsöngvurunum Robin Blaze (kontra-
tenór– titilhlutverk), Þóru Einarsdóttur,
Sigríði Ósk Kristjánsdóttur, Benedikt
Kristjánssyni og Oddi Arnþóri Jónssyni.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
19.00 Hápunktur Kirkjulistahátíðar
2015 verður þegar hin stórfenglega
óratóría Händels, Salómon konungur,
verður flutt í fyrsta sinn á Íslandi.
Verkið verður flutt í dag klukkan 19.00
í Hallgrímskirkju.
20.00 Hið íslensk-þýska Ensemble
Adapter er einn reyndasti samtíma-
tónlistarhópur Íslands. Hann hefur
aðsetur í Berlín og hefur margsannað
sig á alþjóðagrundvelli. Adapter hefur
nú tekið höndum saman við Cycle
listahátíð. Tónleikarnir fara fram í
Salnum, Music Hall í Kópavogi og hefj-
ast klukkan 20.00.
20.00 Heiðurstónleikar The BEATLES
fara fram í kvöld í Háskólabíói. Fjór-
menningarnir sem stíga á svið í
Háskólabíói eru heldur engir aukvisar
og fara þar nokkrir af öflugustu
söngvurum þjóðarinnar, þeir BJÖRG-
VIN HALLDÓRSSSON, MATTHÍAS
MATTHÍASSON, STEFÁN JAKOBSSON
& EIRÍKUR HAUKSSON, ásamt ROKKA-
BILLÝBANDINU. Tónleikarnir hefjast
klukkan 20.00.
21.00 Sveitin FM Belfast er nýkomin
á klakann eftir tónleikaferðalag um
Evrópu, þar sem lýðurinn var trylltur í
Sviss, Þýskalandi, Belgíu og fleiri lönd-
um. Þau ætla að slútta túrnum með
flottu giggi í Tjarnarbíó í kvöld. Nú er
komið að Íslendingum að dansa af sér
skóna við stuð FM Belfast. Tónleikarnir
hefjast með DJ-setti klukkan 21.00 en
miðaverð er 2.000 krónur í forsölu og
2.500 krónur við hurð.
22.00 Rokkhljómsveitin Infiniti frá
Akureyri blæs til endurkomu-tónleika á
Pósthúsbarnum á Akureyri laugardags-
kvöldið 15. ágúst næstkomandi.
Hljómsveitin hefur ekki spilað saman
opinberlega í að verða 10 ár og munu
því öll gömlu góðu lögin, ásamt nýju
efni hljóma í órafmögnuðum útgáfum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og
fara fram á Pósthúsbarnum.
23.00 Keflavíkurnætur standa fyrir
sumar-tónlistarveislu í sjálfum
bítlabænum 14. til 16. ágúst næst-
komandi. Tónlistarsagan á sér djúpar
rætur í Keflavík enda hefur verið opnað
Rokkminjasafn, til að varðveita þau
djúpu spor tónlistarsögunnar sem
hafa verið mörkuð í Keflavík í gegnum
tíðina. Fram koma Helgi Björns, Sigga
Beinteins, Bó, Amabadama, Matti Matt,
Muscleboy, FM95BLÖ, Steindi Jr, Bent,
Agent Fresco, Friðrik Dór, Skítamórall,
Ingó & Veðurguðirnir, Óli Geir, Love
Guru, Von og fleiri.
23.30 Rafnæs heldur göngu sinni
áfram og býður ykkur að dansa í kvöld.
Fyrri kvöld hafa verið hýst á Paloma og
verður engin breyting þar fyrir Rafnæs
#4. Plötusnúðar kvöldsins koma hver
úr sínu horni og munu spila raftónlist
sem er þeim að skapi. Það er vilji okkar
að breiða boðskap góðrar raftónlistar
og skapa aðstæður þar sem hún fær að
Næstkomandi laugardag halda
borgarbúar upp á Menningarnótt
en Dj Margeir og Óli Ofur ætla
að fara með hátíðarhöldin í nýjar
hæðir. Í fyrra héldu þeir karni-
val á gatnamótum Klapparstígs
og Hverfisgötu og þeir ætla að
endur taka leikinn í ár. Með aðstoð
frá Nova ætla þeir með karni-
valið í nýjar hæðir og leyfa gest-
um og gangandi að upplifa alvöru
danspartí úti á miðri götu. Þeir
fara óhefðbundnar leiðir þegar
það kemur að uppsetningunni en
þeir ætla meðal annars að hengja
stærstu diskókúlu landsins upp í
byggingakrana sem er á svæðinu
vegna hótelbyggingar.
„Ég var að horfa út um gluggann
hjá mér þegar mér datt þetta í hug.
Ég sló á þráðinn til byggingarverk-
takanna og þetta var bara sam-
þykkt og ákveðið í einu símtali.
Eftir því sem ég kemst næst þá
á Nova stærstu diskókúlu lands-
ins en ef það er til önnur stærri
þá notum við hana,“ segir Mar-
geir. Þegar líða fer á daginn ætla
þeir að nota það öflugan kastara á
diskókúluna að það þurfti að láta
flugumferðarstjórn vita af því.
„Við erum komin með öll leyfi sem
við þurfum og þetta verður bara
algjör snilld.“
Í fyrra mættu mörg þúsund
manns á karnivalið en það má
búast við fleirum í ár þar sem það
sló í gegn í fyrra. Dagskráin er
pökkuð af flottum tónlistarmönn-
um ásamt því að það verður „pop-
up“ jóga yfir daginn. Þeir skildu
þó eftir eitt gat í dagskránni. „Mig
langar að gefa einhverjum efnileg-
um plötusnúð tækifæri á að spila
og auglýsi hér með eftir einhverj-
um sem hefur áhuga og langar að
sýna hvað í sér býr.“
Það er öruggt að allir á svæðinu
verði dansandi og enginn kemst
upp með að standa og fylgjast með.
„Það sem var svo gaman í fyrra
var hvað allir voru að taka þátt og
dönsuðu á fullu. Þetta var eins og
dansmaraþon. Í ár erum við í sam-
starfi við Reykjavík Dance Festi-
val og á einum tímapunkti munu
þau koma fram og peppa alla upp.“
Karnivalið er engin venjuleg hátíð
enda verður lagt gras á reitinn og
byggt alvöru svið. „Þetta er ekki
bíll sem keyrir inn á miðja götuna
þar sem hliðarnar opnast og þá
myndast svið. Við erum að virkja
alla borgarbúa í að taka þátt í von
um að þetta verði einhvers konar
hverfishátíð. Svo hvetjum við líka
aðra byggingarverktaka til þess
að hengja diskókúlur í bygginga-
kranana sína í tilefni Menningar-
nætur.“ gunnhildur@frettabladid.is
Diskókúlur hanga
úr byggingakrönum
Dj Margeir og Óli Ofur halda karnival annað árið í röð á gatnamótum Klapparstígs
og Hverfi sgötu á Menningarnótt. Þeir leita að upprennandi plötusnúðum.
VEL HEPPNAÐ Í FYRRA Búist er við að karnivalið slái í gegn á Menningarnótt um næstu helgi.
Ég sló á þráðinn til
byggingarverktakanna og
þetta var bara samþykkt
og ákveðið í einu símtali.
Eftir því sem ég kemst
næst þá á Nova stærstu
diskókúlu landsins en ef
það er til önnur stærri þá
notum við hana.
ENDALAUST TAL OG
10 GB Á 3.990 KR.*
Færðu farsímann yfir til 365 og fáðu
frábært sjónvarpsefni á fáránlega
góðu verði.
1817
365.is
*Gildir fyrir áskrifendur í tilboðspökkum 365.
Nánari upplýsingar á 365.is
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-7
1
8
0
1
5
C
8
-7
0
4
4
1
5
C
8
-6
F
0
8
1
5
C
8
-6
D
C
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K