Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 76
FÓLK|HELGIN
TILÞRIF Heiðbjört Gylfadóttir sýnir hér skemmtileg varnartilþrif í sandinum á stigamóti á Þingeyri í sumar. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Um helgina fer fram síðasta strandblaksmót sumarsins á nýjum strandblaksvöllum við Laugardalslaug. Mikill fjöldi keppenda mun
taka þátt, eða 54 lið, en áhugi á strandblaki hefur
aukist mikið hér á landi á undanförnum árum að
sögn Karls Sigurðssonar, landsliðsþjálfara í strand-
blaki. „Strandblaksvöllum á landinu hefur fjölgað
jafnt og þétt um tvo til sex á hverju ári og eru þeir
orðnir um fimmtíu talsins í heildina og ég gæti talið
upp velli á nánast hverjum einasta stað á landinu.“
ÓDÝRT OG SKEMMTILEGT SPORT
Þegar Karl er spurður að því hvort strandblaks iðkun
á Íslandi sé ekki bara einhvers konar ósk hyggja líkir
hann því hlæjandi við bob-sleða á amaíku. „Þegar
við fórum af stað með strandblakið hér á landi árið
2004 þurftum við að draga fólk til þess að taka þátt í
mótum fyrstu tvö árin. Undanfarin fjögur til fimm ár
höfum við ekki þurft að gera það og eru þátttökumet
í mótunum bætt á hverju ári.“
Fjölgunin hefur verið sérstaklega mikil undan-
farnar vikur en Karl þakkar það glæsilegum völlum
við Laugardalslaug sem útbúnir voru vegna
Smáþjóðaleikanna sem fram fóru hér á landi fyrr
í sumar. „Sá völlur er sýnilegri en margir aðrir
strandblaksvellir. Það er mikið um að almenn-
ingur sé að spila þar auk vanra blakara og hefur
völlurinn verið upptekinn frá klukkan fimm til tíu
alla virka daga í sumar og einnig mikið notaður um
helgar. Það geta allir verið með í þessu sporti og
fyrir utan það hvað það er skemmtilegt þá er það
líka ódýrt, maður þarf bara að eiga skýlu og þá er
maður góður, enga skó eða annan útbúnað,” segir
hann og brosir.
BIKINÍ EKKI SKYLDA
Strandblak er meðal vinsælustu greina Ólympíu-
leikanna og segir Karl ástæðuna fyrir því vera
líklega þá að það sé svo skemmtilegt sport, þó
einhverjir myndu segja að áhuginn á íþróttinni
væri tilkominn að einhverju leyti vegna smæðar
fatnaðar keppenda. „Það er reyndar búið að breyta
búningareglunni, áður var það þannig að stelpur
þurftu að keppa í bikiníi og meira að segja var það
þannig að strengurinn á hlið buxnanna mátti að
hámarki vera sjö sentimetrar. Þetta er orðið frjáls-
ara núna og mega keppendur vera í nánast hverju
sem er, þeir þurfa að vísu að vera í topp en mega
vera í honum utan yfir treyju. Það má finna reglur
um búninga í öðrum íþróttum líka, alþjóðasam-
böndin setja reglur en svo er spurning hvort þeim
er fylgt eftir alla leið. Við höfum alltaf leyft fólki
að spila í því sem því finnst þægilegast. Við viljum
ekki að einhverjar búningareglur fæli fólk frá því að
spila. Þótt reglurnar séu orðnar frjálsari þá halda
keppendur úti áfram að spila í bikiníi einfaldlega
vegna þess að þeim finnst það þægilegasti fatnað-
urinn til að keppa í. Það er því alltaf spurning um
hvað áhorfendur eru að horfa á en ég horfi vegna
skemmtanagildis leiksins.“
STRANDBLAKIÐ ERFIÐARA
Munurinn á strandblaki og hefðbundnu blaki
sem spilað er innanhúss er fyrst og fremst sá að í
strandblaki eru keppendur tveir í hvoru liði en sex
í venjulegu blaki. „Strandblakið er mun erfiðara,
að minnsta kosti fyrir vana blakara. Völlurinn er
nánast jafn stór en í strandblakinu þurfa keppend-
ur að geta leyst fleiri hlutverk af hendi, þeir spila
vörn, sókn, uppspil og þurfa að geta lesið leikinn.
Í hefðbundnu blaki skipta fleiri leikmenn með sér
þessum verkum. Strandblaksiðkendur þurfa því
bæði að einbeita sér að fleiri þáttum en í inniblaki
og þurfa að dekka stærra svæði á vellinum. Auk
þess er erfitt að hlaupa í djúpum sandinum og
hoppa, nethæðin er líka sú sama og inni þrátt fyrir
að verið sé að hoppa í fjörutíu sentimetra djúpum
sandi,“ útskýrir Karl.
Hann bætir við að strandblakara vanti aðstöðu
til þess að iðka íþróttina inni við í vetur. „Við höf-
um haft inniaðstöðu undanfarna tvo vetur sem er
ekki í boði lengur. Miðað við þá aukningu sem verið
hefur í greininni undanfarið þurfum við að geta
spilað inni á veturna, það er fullt af fólki sem vill
stunda íþróttina allt árið en ekki bara sem sumar-
sport og leitum við því nú logandi ljósi að einhverri
skemmu eða húsnæði þar sem hægt er að henda
sandi inn í og spila.“
EINS SKRÍTIÐ OG BOB-
SLEÐAR Á JAMAÍKU
STRANDBLAK Fjöldi þeirra sem stundar strandblak hér á landi hefur aukist
mikið undanfarin ár. ÁHUGASAMIR GETA SÉÐ ÞÁ BESTU Í ÍÞRÓTTINNI HÉR
Á LANDI ETJA KAPPI Í LAUGARDAL UM HELGINA.
KARL SIGURÐSSON landsliðsþjálfari í strandblaki.
KAUPTÚNI 3 | SÍMI 564 4400 | VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
Opið
mánudaga–laugardaga kl. 11-18
sunnudaga kl. 13-18
20–70%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
ENN MEIRI
VERÐLÆKKUN
ÚTSALA! ÚTSALA!
af öllu frá
ETHNICRAFT
20 -40
af öllum vörum frá
UMBRA
20 -40
af öllu frá
HOUSEDOCTOR
20 -40
VERSLUNIN FLYTUR!
Um næstu mánaðamót
flytjum við í Lindir, Kópavogi.
Hlökkum til að sjá þig
í nýju versluninni.
v
KAUPTÚN
LINDIR
af öllum vörum frá
HABITAT
20 -70
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-A
7
D
0
1
5
C
8
-A
6
9
4
1
5
C
8
-A
5
5
8
1
5
C
8
-A
4
1
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K