Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 96
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
Páll Stefánsson er löngu orðinn einn allra þekkt-asti ljósmyndari landsins enda hefur hann átt stór-an þátt í að móta ímynd landsins með verkum
sínum. Fyrst sem ljósmyndari á
Iceland Review og ritstjóri þar
síðustu árin og einnig með þeim
fjölda bóka sem eftir hann liggja.
En nú fyrir skömmu kom út eftir
Pál ljósmyndabókin Iceland Ex-
posed sem er hans fyrsta Íslands-
bók um nokkurt skeið.
Núið er best
„Ég er búinn að vinna við þetta í
þrjátíu og þrjú ár og hef gert að
því ég held þrjátíu og tvær bækur
ef þessi er talin með. En þetta er
fyrsta Íslandsbókin mín í sjö ár.
Í millitíðinni hef ég gert bækur
um Afríku, Færeyjar, Finnland,
Svíþjóð, Danmörku – þannig
að ég hef verið að gera bækur í
útlöndum. Ég hvíldi mig soldið á
íslenska landslaginu, því maður
þarf stundum að endurnýja sig og
svo var bara nóg að gera í öðrum
verkefnum. Svo fór ég í þetta af
fullum krafti síðustu átján mán-
uðina.
Annars er mér mest bölvan-
lega við að líta til baka – finnst
að maður eigi að fara fram á við.
En þegar þessi bók átti að fara að
komast á koppinn fóru að koma
til mín myndir. Elstu myndirnar
eru rúmlega fimm ára gamlar en
mest er þetta frá síðustu átján
mánuðum. Annars verða flestar
þessar myndir til í mínu starfi
fyrir Iceland Review. Maður
getur kannski sagt að þetta sé
„best of“ en það er þá vegna þess
að það besta er að gerast í núinu.“
Hver er ég?
Í fyrsta hluta bókarinnar, sem
er á ensku, rifjar Páll upp sögur
og ýmis tengsl við staði sem eru
honum kærir og hann hefur mikið
myndað í gegnum ferilinn. Hann
segir að í þeim hluta sé vissulega
fólgin ákveðin tilraun sem kemur
vart á óvart þar sem Páll svarar
flestu með því að segja sögu.
„Það kom þessi hugmynd –
einhver segir að ég geti skrif-
að og mig langaði þá eiginlega
að segja fólki hver ég er – hver
er þessi gaur talandi um ömmu
sína? Þessi bók er hugsuð fyrir
ferðalanginn sem vill taka Ísland
með sér og það veit enginn hver
Jónas, Pétur eða Páll eru í sjálfu
sér og þetta er svona smá tilraun
til þess að láta fylgja með hver
ég er. Þessar sögur segja svona
kannski eitthvað um mig, eitt-
hvað sem fólk gæti haft gaman
af.
Eins og það að ég á til að ganga
í tátiljum og fór í fjallgöngu um
miðnæturbil á Vestfjörðum í
fyrrasumar í mínum góðu tátilj-
um. Þar braut ég á mér helvítis
tá af því að það rúllaði á hana
steinn eins og gengur. Læknir-
inn sem skoðaði mig á spítalanum
vildi fá lýsingu á því hvað hefði
gerst og hann fékk þá lýsingu.
Að því loknu horfði hann á mig
og sagði svo af yfirvegun: „Páll,
þú ert fífl.“ Svo mörg voru þau
orð.“ Páll skellihlær við tilhugs-
unina enda enn og alltaf í sínum
góðu tátiljum og stuttbuxum nán-
ast allan ársins hring.
Fékk myndina
Páll myndar allan ársins hring í
öllum veðrum og sýn hans á það
hlutskipti birtist auðvitað í sögu
sem honum finnst lýsa þessa
ágætlega. „Núna í sumar sá ég
fyrir mér mynd og beið í fjalls-
hlíð vegna þess að það voru pínu-
lítil göt í himninum þar sem birtan
ruddist niður en götin voru fá og
ekki á alveg réttum stöðum. Svo
ég beið eftir að þetta fína spott-
ljós félli niður á réttu staðina.
Stundum fiskar maður og stund-
um ekki og ég var búinn að bíða
þarna í svona klukkustund. Það var
líka fólk þarna að ráfa um fjalls-
hlíðina og allt í einu kom að mér
Kanadamaður um sextugt, lagði
vingjarnlega höndina á öxlina á
mér og sagði: „Fyrirgefðu, ungi
maður, en er eitthvað að?“ Nei, ég
er bara að bíða eftir birtunni, svar-
aði ég, og þá sagði hann mér að þau
hefðu verið farin að hafa áhyggjur
af mér. Farin að halda að ég væri
svona skelfilega langt niðri eða
eitthvað þaðan af verra.
Í þessum töluðu orðum fékk ég
augnablikið sem ég hafði verið að
bíða eftir og þá hresstist ég svo
um munar. Ég rak konu mannsins
af stað og lét hana hlaupa á réttu
staðina í fjallshlíðinni og blessað-
ur maðurinn fylgdist stjarfur með
aðförunum – en ég fékk myndina.
Svona er þetta bara. Stundum
kemur þetta og stundum ekki.
Þetta er svolítið eins og að veiða
fisk, sem ég hef reyndar aldrei
gert, hvort þú veiðir þann stóra eða
ekki er ekki endilega málið. Útiver-
an og náttúran eru stóra málið og
dagurinn getur verið jafn góður
fyrir því þó svo maður hafi ekki
fengið neitt. Ég er einfaldlega
alltaf að veiða.“
Ég er einfaldlega alltaf að veiða
Páll Stefánsson ljósmyndari hefur myndað Ísland í meira en þrjá áratugi og hefur með verkum sínum átt stóran þátt í að móta sýn
heimsins á náttúru landsins. Páll er hafsjór af skemmtilegum sögum af ævintýraferðum sínum um landið sem hann elskar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ELDGOS Í HOLUHRAUNI. „Það hefur aðeins hent mig tvisvar að geta ekki tekið mynd. Náttúran er svo stór og sterk að ég einfaldlega missi andann, verð agndofa. Fyrra skiptið var í dagrenningu í Tansaníu þegar ég
var á leið niður í Ngorongoro-gíginn. Hitt þegar ég kom að gígaröðinni í Holuhrauni, nokkrum klukkustundum eftir að gos hófst þar á síðasta degi ágústmánaðar 2014.“ MYND/PÁLL STEFÁNSSON
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Að því loknu horfði
hann á mig og sagði svo
af yfirvegun: „Páll, þú
ert fífl.“ Svo mörg voru
þau orð. Páll skellihlær
við tilhugsunina.
LANGANES „Ég hef alltaf haldið mikið upp á Langanes. Líklega vegna þess að
hvergi á Íslandi er maður nær náttúruöflunum.“ MYND/PÁLL STEFÁNSSON
MENNING
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-8
A
3
0
1
5
C
8
-8
8
F
4
1
5
C
8
-8
7
B
8
1
5
C
8
-8
6
7
C
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K