Fréttablaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 104
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 64
TÓNLEIKAR ★★★★ ★
Kings of Leon
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN
13. ágúst 2015
Það var margt um manninn í Nýju-
Laugardalshöllinni á fimmtudags-
kvöldið þegar ein vinsælasta rokk-
hljómsveit heims, Kings of Leon,
steig þar á svið. Það var reyndar
íslenska hljómsveitin Kaleo sem
hóf leik og sýndi sveitin frábæra
takta og var afar þétt í sinni spila-
mennsku. Kaleo spilaði því miður
í einungis um 25 mínútur og undir-
ritaður skynjaði það á tónleika-
gestum að fólk var almennt til í
að heyra fleiri lög frá rokkurun-
um úr Mosfellsbænum. Það var
auðsjáanlegt og auðheyranlegt að
dvöl sveitarinnar í Bandaríkjunum
undanfarna mánuði hefur gert
þessa góðu sveit enn betri og
verður gaman að sjá hvað ger-
ist hjá henni í framtíðinni.
Eftir að Kaleo lauk leik, tók við
smá bið en fólk var almennt í
góðum fíling.
Þá kom að því, að suðurríkja-
rokkararnir í Kings of Leon stigu
á svið og þeir voru stundvísir.
Undir ritaður var heillaður, alveg
frá fyrsta tóni, frá því að fyrsti
hljómurinn í laginu Supersoaker,
sem er jafnframt fyrsta lagið á
nýjustu plötu Kings of Leon, Mech-
anical Bull, allt fram að síðasta
hljómi í lokalagi tónleikanna, sem
er jafnframt vinsælasta lag sveit-
arinnar, Sex on Fire.
Bræðurnir þrír, Caleb Followill,
Nathan Followill, Jared Followill og
frændinn Matthew Followill slógu
ekki feilnótu alla tónleikana, eða þá
hefur hún allavega farið fram hjá
undirrituðum. Með þeim á sviðinu
var þúsundþjalasmiður að nafni
Ethan Luck, sem spilaði á slagverk,
gítar, hljómborð, söng bakraddir
og allt þar á milli. Þessir fagmenn
léku öll vinsælustu lög sveitarinnar
og voru öryggið uppmálað í spila-
mennsku sinni og framkomu. Tón-
leikagestirnir, sem voru um átta
þúsund manns, fengu að heyra lög
af öllum sex breiðskífum Kings of
Leon og því klárt mál að þeir fengu
helling fyrir sinn snúð, sama hvaða
plata er í uppáhaldi.
Söngvari sveitarinnar, Caleb
Followill, talaði aðeins við tónleika-
gesti á milli laga en var aldrei með
neitt óþarfa blaður. Hann sagðist
til dæmis vera flugþreyttur en að
hann myndi laga það með því að
drekka sig fullan og glotti í kjölfar-
ið. Þá sagði töffarinn einnig þegar
langt var liðið á tónleikana að sveit-
in hefði í hyggju að koma aftur til
landsins, það væri frábært að
vera á Íslandi og þeir hefðu hlakk-
að mikið til þess að koma hingað.
Annars virtust liðsmenn Kings of
Leon að mestu leyti vera
einbeittir í því að
skila sínu vel,
sem þeir
gerðu.
Þeir voru
ekki með
neitt
óþarfa
blaður og
það er ber-
sýnilegt að
þessi gaur-
ar hafa
svo
sannarlega spilað á nokkrum tón-
leikum áður. Þvílík reynsla og fag-
mennska.
Það voru fleiri fagmenn í saln-
um því hljóð og ljós var til mikillar
fyrirmyndar. Hljóðkerfið skilaði
frábærum hljómi og ljósadýrð-
in var þvílík. Til að setja punkt-
inn yfir i-ið voru þrír risaskjáir
við sviðið, sinn hvorum megin við
sviðið og svo einn, sem var jafn-
framt stærsti skjárinn, fyrir aftan
sviðið. Þessi skjáir gerðu mikið
fyrir tónleikana og gerðu þá að
miklu sjónarspili. Fjöldi mynda-
véla var á sviðinu þannig að áhorf-
endur gátu vel séð hvað meðlim-
ir sveitarinnar voru að gera uppi
á sviði þegar þeir rýndu í hliðar-
skjáina. Glæsileg grafík var svo á
skjánum á bak við sviðið sem talaði
við hvert lag fyrir sig. Þessir skjá-
ir, með þessari glæsilegu grafík og
myndefni, gerðu svo sannarlega
góða tónleika enn betri.
Það eina sem undirritaður gat sett
út á á tónleikunum var svæðisskipt-
ingin og fannst honum heldur mikið
að hafa svæðin fjögur, A+, A, B og C
svæði. Ástæðan fyrir því gæti verið
sú að undirritaður er ekki vanur
svona mörgum svæðum á stand-
andi tónleikum á Íslandi og þetta
því svolítið viðbrigði. Annars
var allt skipulag til mikils
sóma og virtist undirrit-
uðum allt fara vel fram
og allir ganga sælir og
sáttir úr Nýju-Laugar-
dalshöllinni.
gunnarleo@frettabladid.is
NIÐURSTAÐA:
Bræðurnir þrír, Caleb
Foll owill, Nathan Follo-
will, Jared Followill og
frændinn Matthew
Followill í Kings of Leon
slógu ekki feilnótu alla
tónleikana. Hinir íslensku
Kaleo gáfu tóninn fyrir
það sem í vændum var
og voru frábærir. Vel
heppnaðir tónleikar í
alla staði.
Kings of Leon stóðu
heldur betur fyrir sínu
ÁNÆGÐIR Á ÍSLANDI Hér eru þeir Caleb Followill, söngvari Kings of Leon, ásamt bræðrum sínum, bassaleikaranum Jared Followill og trommararnum Nathan Followill. Frændinn í bandinu, gítarleikarinn Matthew
Followill, var á hinum enda sviðsins og náðist ekki á þessa fögru mynd ljósmyndarans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
8
-4
A
0
0
1
5
C
8
-4
8
C
4
1
5
C
8
-4
7
8
8
1
5
C
8
-4
6
4
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K