Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 15.08.2015, Qupperneq 20
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 20 Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. Það er mat þeirra sem til þekkja að innflutn- ingstollar hækki verð á nauta-, svína- og kjúk- lingakjöti á bilinu 40% til 90%. Háir tollar veita innlendum framleiðend- um skjól gagnvart inn- flutningi. Mjög mismun- andi er hvernig skjólið nýtist einstökum fram- leiðslugreinum kjötvarn- ings. Efnahags- og framfarastofn- unin (OECD) í París safnar saman og birtir upplýsingar um áhrif stjórnvaldsaðgerða á markaðsverð landbúnaðar- varnings. Áhrif tolla á afkomu íslenskra bænda eru fundin með því að bera saman skila- verð til þeirra annars vegar og erlendra kollega hins vegar. Við skilaverðið til erlendra bænda er bætt flutningskostnaði til Íslands. Með þessum hætti fæst mat á hversu mikil áhrif tollarn- ir hafa á skilaverð til íslenskra bænda. Árið 2014 var staðan gagnvart Íslandi eins og lýst er í meðfylgjandi töflu. Virk tollvernd ótrúlega mikil Virk tollvernd er lítil eða engin þegar litið er til hefðbund- innar kjötframleiðslu. Afnám tolla á kjötafurðir myndi litlu breyta hvað varðar skilaverð til íslenskra bænda á þessum afurðum. Virk tollvernd er hins vegar ótrúlega mikil þegar litið er til hvíta kjötsins, kjúklinga- og svínakjöts. Samkvæmt tölum OECD nam umframkostnaður íslenskra neytenda vegna ofur- tolla á kjúklinga- og svínakjöti 3,6 milljörðum króna árið 2014. Ofurtollar á kjöti eru gjarn- an rökstuddir með tilvísan til stuðnings við búsetu í dreifð- um byggðum landsins. Því hefði að óreyndu mátt ætla að tollar hefðu mest áhrif á verð á lambakjöti og því næst á verð á nautakjöti. Megnið af fram- leiðslu svína- og kjúklingakjöts fer fram í póstnúmerum í ágætri nálægð við póstnúmer 101 og er ekki ýkja mannaflafrek. Hvort framleitt er tonninu meira eða minna af hvítu kjöti á Íslandi hefur hverfandi, ef nokkur, áhrif á búsetu í dreifðum byggð- um landsins. Er á valdi Alþingis Ofurtollar á kjötvöru skila sér augljóslega ekki með skilvirk- um hætti sem stuðningur við dreifðar byggðir. Það er í valdi Alþingis og ríkisstjórnar að breyta lögum og reglum um tolla á innfluttri kjötvöru. Það stend- ur því upp á þessa aðila að svara því hvort þeir vilji áfram stuðla að því að þvinga neytendur til að greiða 3,6 milljarða í yfirverð fyrir kjúklinga og svínakjöt. Hverjir græða á ofur tollum á kjöti Kjöt Skilaverð Skilaverð til Mismunur/virk Tollverndar- til bænda erlendra bænda* tollvernd hlutfall Nautakjöt 599,26 kr/kg 528,41 kr/kg 70,85 kr/kg 12% Svínakjöt 394,26 kr/kg 240,72 kr/kg 153,54 kr/kg 39% Kjúklingakjöt 435,00 kr/kg 113,99 kr/kg 321,01 kr/kg 74% Lambakjöt 574,08 kr/kg 574,08 kr/kg 0,00 kr/kg 0,00 kr/kg 0% *að viðbættum flutningskostnaði til Íslands, án tolla. Heimild: OECD, PSE-Database, eigin útreikningar ➜ Áhrif tolla á verð til bænda TOLLAR Þórólfur Matthíasson prófessor ➜ Það stendur því upp á þessa aðila að svara því hvort þeir vilji áfram stuðla að því að þvinga neyt- endur til að greiða 3,6 milljarða í yfi rverð fyrir kjúklinga og svínakjöt. Á þessu ári eru 160 ár liðin frá því Íslendingar fengu heimild til að versla við menn af öðru þjóðerni en dönsku. Verslunarfrelsið er án efa stærsta fram- faraspor Íslandssögunn- ar, sem engin þjóð á meira undir og því hljótum við að harma nýar hindranir á viðskiptum við Rússa, gamla vinaþjóð sem alltaf hefur reynst Íslendingum vel þegar mest hefur á reynt. Árið 1901 gerðu Danir sam- komulag við Breta um að þeir síðarnefndu keyptu beikon af Dönum og fengu að launum að veiða í fjörðum og flóum Íslands allt að þremur sjómílum frá strandlengju í 50 ár og skyldi samningi þessum sagt upp með tveggja ára fyrirvara. Með því að íslenska þjóðin tók sér lýðveldis- rétt í allsherjaratkvæðagreiðslu árið 1944 var rudd leið til þess að segja upp samningnum svo strax farið að vinna að því. „Flesksölu- samningnum“ danska var formlega sagt upp af Íslands hálfu 1949. Frá lýðveldistökunni árið 1944 hafa Íslendingar fjórum sinn- um fært út fiskveiðilögsöguna. Í fyrsta skipti 15. maí 1952 og reru smábátar með íslenska fánann við hún. Landhelgin hafði verið færð út í fjórar sjó- mílur frá grunnlínupunkt- um sem þýddi að flóum og fjörðum var lokað fyrir erlendum fiskiskipum. Bretar brugðust við þessu með viðskiptahindr- unum, sem þeir reyndu að fá önnur Evrópuríki til að taka þátt í og settu löndunar bann á íslensk skip sem stóð frá 1952- 1956. Í byrjun reyndist Íslend- ingum þetta erfitt en þá voru það Rússar, eða réttara sagt gömlu Ráðstjórnarríkin, sem réttu Íslend- ingum hjálparhönd með stóraukn- um fiskkaupum. Í kjölfarið var svokallaður vöruskiptasamningur undirritaður 1. ágúst 1953. Tryggð var sala á öllum íslenskum fiski ásamt stórfelldri uppbyggingu á frystihúsum og fiskiðjuverum um land allt, sem margfaldaði afurða- verðið. Með þessum samningum var jafnframt lagður grunnur að málningar-, niðursuðu- og skinna- iðnaði svo eitthvað sé nefnt. Ólíkt núverandi ESB-ríkjum hafa Rússar aldrei beitt Íslendinga viðskiptaþvingunum, þvert á móti losuðu þeir takið og komu okkur til bjargar þegar mest á reyndi. Evrópusambandið hótaði Íslandi viðskiptaþvingunum í tengslum við makrílveiðar árið 2011. Ef Ísland færi nú að ýtrustu óskum sam- bandsins og fórnaði áratugalöng- um og farsælum viðskiptum við Rússa, kæmist Ísland í enn verri stöðu ef slíkar hótanir verða aftur settar fram. Þegar Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum var það gert að skilyrði að Ísland þyrfti ekki að lýsa yfir stríði á hendur Þjóð- verjum og Japönum. Íslendingar, sem eru herlaus þjóð, eru í góðu færi til að leita sátta í stað þess að bera sprek á eldinn, ekki síst í ljósi þess að Ísland á að baki langvinna vináttu við Rússa sem hafa stutt Íslendinga í öllum þorskastríðum, auk þess sem við erum ekki í Evr- ópusambandinu. Höfundur var stýrimaður hjá Land- helgisgæslunni í þorskastríðinu. Brot úr sögu þjóðar Hornfirðingur- inn Sigurpáll Ingibergsson hefur það fyrir sið að taka mynd í hvert sinn sem hann á leið fram hjá Hólárjökli. Sigurpáll sendi loftslagsátakinu #MittFramlag þessa samsettu mynd og eru myndirnar tekn- ar með tíu ára millibili. Engum leynist breyting- in sem hefur orðið á einum áratug. „Það sést glöggt að jökultungan hefur styst og jökullinn þynnst,“ segir Sigurpáll og bætir við: „Ég spái því að jökultungan verði horf- in innan fjögurra ára. Hlutirnir gerast svo hratt.“ Hólárjökull er skriðjökull úr Vatnajökli, stærsta jökli Íslands og Evrópu. Hann mun láta mikið á sjá vegna hlýnunar jarðar á næstu tveimur öldum og munu skriðjökl- arnir sunnan í jöklinum (Breiða- merkurjökull og Skeiðarárjökull) eyðast fyrst. Langjökull, næststærsti jökull Íslands, mun einfaldlega hverfa innan hálfrar annarrar aldar og við lok þessarar aldar verða 80% jökulsins á bak og burt. Síðasta kynslóð sem getur gert eitthvað Þeir sem fylgjast með erlendum fréttum hafa vafalaust orðið þess varir að Bandaríkjastjórn hefur gripið til róttækra aðgerða til að stemma stigu við loftslagsbreyt- ingum. „Við erum fyrsta kynslóðin sem finnur fyrir áhrifum loftslags- breytinga og sú síðasta sem getur gert eitthvað í málinu,“ sagði Bar- ack Obama, forseti Bandaríkj- anna, þegar hann fylgdi aðgerð- unum úr hlaði á dögunum. Hins vegar er löngu kominn tími til að loftslagsbreytingar séu fluttar úr flokknum „erlendar fréttir“ yfir í „innlendar fréttir“ jafnt á Íslandi sem annars staðar og kannski ættu þessar kvíslar að renna saman í farveginn „mann- legar fréttir“. Fyrir þá sem telja loftslags- breytingar enn vera „erlendar fréttir“ sem komi okkar álíka mikið við og lagabreytingar um flóðhestaveiðar í Langt-í-burtu- istan, skal bent á að málsmetandi útlendingar sækja til Íslands til að sjá breytingarnar með eigin augum. Fyrir tveimur árum heimsótti Ban Ki-moon, aðalframkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, Ísland og sagði á blaðamannafundi að eitt markmið heimsóknarinnar væri „að hann vildi sjá afleiðingar lofts- lagsbreytinga af eigin raun og nota vitnisburðinn til að efla pólitískan vilja og sannfæra fólk um hversu brýnn vandi loftslagsbreytingar væru“. Tusku-makríll í stað lundans? Við þurfum samt ekki að hafa orð útlendinga fyrir því að loftslags- breytingar séu að gerast, hér og nú. Vestmannaeyingar horfa for- viða á tómt bjargið í einni stærstu varpstöð lunda í heiminum. Sjór hefur hlýnað við Ísland og makr- íllinn sækir norður á bóginn og á Íslandsmið landsmönnum til mik- illar ánægju. En böggull fylgir skammrifi því makríllinn leitar í sama æti og lundinn, með þeim afleiðingum að hann kemur ekki upp afkvæmum sínum, pysjunum. Sérfræðingar eru á einu máli um að íslenskt efnahagslíf hafi náð sér nokkuð vel eftir Hrunið meðal annars þökk sé tveimur hvalrekum í líki aukins ferðamannastraums og tekna af nýkominni fisktegund: makrílnum. Það er rífandi gangur í sölu tuskulunda á Laugavegi og Skólavörðustíg í Reykjavík, en ef bjargið tæmist endanlega í Eyjum verður lundinn álíka söluvænleg- ur og geirfuglinn sálugi og fitja verður upp á einhverju nýju. Ekki veit ég hvort tuskumakríll seldist eins og heitar lummur, en það væri auk þess skammgóður vermir því þegar loftslagið er annars vegar virðist allt breytingum undirorp- ið og ekkert vera endanlegt. Makr- íllinn gæti horfið eins og hendi sé veifað ef sjórinn kólnar á ný, þegar bráðnunar Grænlandsjökuls fer að gæta í auknum mæli í hafinu. #MittFramlag Sameinuðu þjóðirnar efna til enn einnar loftslagsráðstefnu, þeirr- ar tuttugustu og fyrstu í röðinni, í París í desember og nú er talið að tímamótasamkomulag kunni að vera innan seilingar. Ljósmyndir Sigurpáls af jöklinum hörfandi, voru hans framlag til átaksins og keppninnar #mittframlag sem íslensk félagasamtök og stofnanir með fulltingi Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna, hafa efnt til í aðdraganda Parísarfundarins. Nú líður á seinni hlutann í keppninni þar sem sigurvegari fær Parísarferð að launum, en þar er einfaldlega spurt: Hvert er þitt framlag í dag til bættrar umgengni við náttúruna og gegn loftslagsbreytingum? Og verkefnið er að taka mynd af hverju því sem þér kann að detta í hug og senda gegnum Twitter eða Instagram með #mittframlag eða deila á vefsíðu verkefnisins www. mittframlag.is. Loftslagsbreytingar eru ekki bara í langt-í-burtu-istan LOFTSLAGSMÁL Árni Snævarr upplýsingafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum Sigurpáll spáir því að Hólárjökull hverfi innan tíu ára VERSLUN Sigurður Þórðarson stýrimaður ➜ Ólíkt núverandi ESB- ríkjum hafa Rússar aldrei beitt Íslendinga viðskipta- þvingunum, þvert á móti losuðu þeir takið og komu okkur til bjargar þegar mest á reyndi. ➜ Langjökull, næststærsti jökull Íslands, mun einfald- lega hverfa innan hálfrar annarrar aldar og við lok þessarar aldar verða 80% jökulsins á bak og burt. atvinnuleikhópa Umsóknarfrestur til 30. september Styrkir til 1 4 -0 8 -2 0 1 5 2 1 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 C 8 -6 2 B 0 1 5 C 8 -6 1 7 4 1 5 C 8 -6 0 3 8 1 5 C 8 -5 E F C 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 1 2 0 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.