Fréttablaðið - 15.08.2015, Side 24

Fréttablaðið - 15.08.2015, Side 24
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Það verður líf og fjör á Sólheimum í dag þar sem haldið verður upp á Lífræna daginn í Menningarveislu Sólheima. Þessi hátíð er nú haldin í tíunda sinn en fleiri stórafmælum verður fagnað þennan dag á Sól- heimum. „Það hittir svo á að í ár eru einnig þrjátíu ár frá Íslands- göngu Reynis Péturs og Skátafé- lag Sólheima á einnig þrjátíu ára afmæli. Það er því nóg af tilefn- um til að fagna,“ segir Valgeir F. Bachman, skipuleggjandi Menn- ingarveislunnar, en þegar blaða- maður heyrir í honum hljóðið er undirbúningur á fullu. Verið er að reisa markaðstjaldið þar sem framleiðslan sem fer fram á Sól- heimum verður til sölu með góðum afslætti. Að auki verða tvennir tón- leikar í Sólheimakirkju, útileik- ir og spil fyrir alla fjölskylduna, Háskólalestin mætir með fræðandi skemmtun og sýningin um göngu- ferð Reynis Péturs verður opin. Skátafélagið vígir nýtt skátaheimili á afmælinu og fagnar með varðeldi þar sem hægt verður að baka brauð á priki og skátasöngvar sungnir. „Það myndast alltaf gífurlega góð stemning á þessum degi og hefur í raun verið góð stemning hjá okkur í allt sumar. Það hefur aldrei verið jafn mikið að gera hjá okkur. Enda er alltaf sól í Sólheim- um þótt það rigni aðeins,“ segir Valgeir. Sólskinsdagur í Sólheimum Sólheimar fagna stórafmælum í sinni árlegu Menningarveislu í dag. Fjöldi gesta í Sólheimum hefur sjaldan verið meiri en þetta sumarið og gestgjafarnir því í góðri æfi ngu að bjóða upp á gott fj ör og smitandi gleði. UNDIRBÚNINGUR Í FULLUM GANGI Í markaðstjaldinu verður grænmeti frá Sólheimum til sölu. Reynir Pétur Steinunnarson göngugarpur, Valgeir F. Backman og Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir skátar aðstoða Hörpu Rós Jónsdóttur við að bera lífræna íþróttanammið úr búðinni út í tjald. Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is 12:00-18:00 Kaffihúsið Græna kannan, verslunin Vala og markaðstjald. 13:00-17:00 Leikir fyrir börn á öllum aldri á túninu. 14:00-17:00 Háskólalestin. 14:00-15:00 Magnea Tómasdóttir og Inga Björk Ingadóttir með tónleika í Sólheimakirkju. 15:00-17:00 Vorsabær II kemur með hesta, teymt undir. 15:30-17:00 Skátaheimili Sólheima vígt. Varðeldur og söngur. 16:00-17:30 Lífrænt grænmetiströllaseyði af hlóðum Tröllagarðs. 16:00-17:00 Nikolaus Kattner trúbador treður upp við Grænu könnunna. LÍFRÆNI DAGURINN Á MENNINGARVEISLU SÓLHEIMA Uppskrift að hrátertu með kókos- bragði sem er frábær með laugar- dagskaffinu og er jafnvel enn betri daginn eftir og dugar því líka með sunnudagsmorgunkaffinu. Bounty-terta 1 bolli döðlur 2 ½ bolli kókosmjöl ¼ bolli kókosolía ½ bolli kasjúhnetur rifinn börkur af einni appelsínu 1 tsk. vanilla salt krem 100 g dökkt gott súkkulaði 2 msk. kókosolía Skerið döðlurnar frekar smátt og leggið í bleyti ásamt kasjúhnetum í um 20 mínútur. Hellið mesta vatninu af og maukið í blandara. Bætið við kókosolíu, kókosmjöli, appelsínu- berki, vanillu og salti og blandið áfram í stutta stund. Setjið kringlótt mót á tertudisk, þrýstið „deiginu“ þar í. Bræðið súkkulaði og kókosolíu yfir vatnsbaði og hellið yfir tertuna. Kælið í a.m.k. klukkustund eða yfir nótt. Fengið af alberteldar.com Suðræn kókosstemning í einum tertubita Albert Eiríksson býður upp á uppskrift að Bounty-hrátertu sem er ósköp holl en líka óskaplega gómsæt. Á MATARHÁTÍÐ ALÞÝÐ- UNNAR, Reykjavík Bacon Festival, á Skólavörðustígnum á milli kl. 14 til 17 í dag. Á ALLA DÁSAMLEGU TÓNLISTINA á Jazzhátíð Reykjavíkur. STÚLKAN Í TRÉNU, nýja bók eftir Jussi Adler Olsen sem hefur gott lag á að halda vöku fyrir flestum. Á EINS MARGA LEIKI í enska boltanum og þú getur. HELGIN 15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU... SUÐRÆN SNEIÐ Hrátertan er best daginn eftir. Þorsteinn Bachmann, leikari Áfram, Valur! „Ég er í fæðingarorlofi þannig að ég verð líklega mest með fjölskyldunni. Litla dóttirin er tíu vikna þannig að það eru ansi mikil rólegheit yfir okkur. Ég var reyndar að gæla við að fara á völlinn í dag á Valur-KR og held þar að sjálfsögðu með Val. Í kvöld munum við konan mín kíkja í afmæli til Charlotte Böving.“ Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðst.maður fjármálaráðherra Hendir skóm „Ég ætla að sofa, borða, lyfta og láta það eftir Loga að henda/gefa fullt af skóm. Og fara í brúðkaup!“ Vera Sölvadóttir, kvik- myndagerðarkona Nýtur laugarinnar „Ég ætla að hanga í Vestur- bæjarlauginni eins mikið og ég get af því að henni verður lokað vegna viðgerða frá og með mánudeginum.“ Jógvan Hansen, söngvari Vinna og heyskapur „Ég er að fara að vinna. Syng í tveimur brúðkaupum í dag en á morgun getur verið að ég fari í Borgarfjörðinn í heyskap.“ 1 4 -0 8 -2 0 1 5 2 1 :3 3 F B 1 2 0 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 C 8 -8 A 3 0 1 5 C 8 -8 8 F 4 1 5 C 8 -8 7 B 8 1 5 C 8 -8 6 7 C 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 1 2 0 s C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.