Fréttablaðið - 15.08.2015, Síða 28
Þarf að grípa orðið oftar
Jóhanna viðurkennir að henn-
ar helsti galli í starfinu sé að
láta ekki heyra nógu mikið í sér,
enda hafi hún lært í sínu póli-
tíska uppeldi að maður biðji ekki
um orðið hafi maður ekkert nýtt
fram að færa.
„Ég þurfti að venjast nýju
fundarformi. Ég var vön hnit-
miðuðum fundum hjá félagskerfi
landbúnaðarins enda er fólk að
skjóta inn fundum á milli mjalta-
tíma og þarf að vera komið heim
fyrir ákveðinn tíma. Þannig að
reglan er að maður biður ekki
um orðið til að endurtaka eitt-
hvað sem annar er búinn að
segja. Fyrst þegar ég kom inn á
Alþingi gat ég orðið biluð á því
að fólk væri að endurtaka sama
hlutinn aftur og aftur. Það var
svolítið erfitt fyrir mig að detta í
þann gír. En ég er að læra þetta.“
Fékk þrefalt sjokk
Jóhanna María hefur þó verið
áberandi í umræðu um stað-
göngumæðrun og ættleiðingar.
Þar hefur hún látið til sín taka
með löngum ræðum og fyrir-
spurnum um málefnið. Henni
finnst mikilvægt að mögu-
leikinn á staðgöngumæðrun í
velgjörðar skyni sé kannaður til
hlítar en ekki að málið sé kæft
í fæðingu vegna öfgafullra hug-
mynda um það. Málið er henni
hjartfólgið en hún er sjálf í þeim
sporum að geta ekki gengið með
barn með eðlilegum hætti.
„Þegar ég var tvítug og tiltölu-
lega nýbyrjuð í framboði missti
ég fóstur án þess að hafa vitað
að ég væri ólétt. Ég fékk í raun
þrjár fréttir í einu. Að ég hafði
verið ólétt, að ég hafði misst
fóstrið og að ég myndi aldrei
geta eignast barn án aðstoðar.
Þannig að ég var í miklu sjokki
og man varla eftir þessum tíma.
Ég var í kosningabaráttu og
reyndi að hafa nógu mikið að
gera til að fá aldrei lausa stund
til að setjast niður og hugsa um
mitt ástand.“
Með ónýtt leg
Jóhanna María mun aldrei geta
gengið fulla meðgöngu því legið
í henni hafnar fóstrinu. „Ég er
með heilbrigð egg, en ónýtt leg.
Það hafnar fóstrinu þegar það er
komið á visst þroskastig. Legið
skynjar þá að fóstrið sé aðskota-
hlutur, losar festinguna og hreins-
ar sig út. Læknarnir sögðu mér að
ég gæti farið í svakalegan pakka,
reynt miklar hormónameðferðir
og tæknifrjóvgun en að það væru
samt sem áður mjög litlar líkur á
að mér tækist að ganga með barn.
Þeir sögðu að það yrði algjört
kraftaverk. Það eru margir sem
hafa komið til mín og sagt að þau
séu mörg kraftaverkabörnin –
en ég vil ekki lifa á því að mögu-
lega verði ég manneskjan sem fái
kraftaverk.“
Í framhaldi af þessum fréttum
fór Jóhanna María að kynna sér
frjósemisaðgerðir, ættleiðingar
og staðgöngumæðrun. „Ég hafði
séð fyrir mér að mennta mig
og stofna svo fjölskyldu eins og
flestir aðrir. Mér fannst það eðli-
leg næstu skref í lífinu. En svo
fær maður að vita að það sé ekki
möguleiki lengur. Þá fór ég að
skoða þetta betur og komst að því
að ég hef í raun ekki rétt á hjálp
eins og lagakerfið er á Íslandi.
Ef ég væri með ónýt egg gæti ég
fengið gjafaegg, en af því að ég
er með ónýtt leg þá hef ég enga
möguleika.“
Öfgar í umræðunni
Þessi reynsla Jóhönnu Maríu
fékk hana til að skoða staðgöngu-
mæðrun. Nú gat hún vel skil-
ið fólkið sem vill gjarnan hafa
þennan möguleika opinn. Það var
fólk í sömu stöðu og hún. „Þetta
eru konur með ónýtt leg eða ekk-
ert leg. Eins með samkynhneigða
karlmenn sem hafa ekkert leg
til umráða. Og mér fannst þetta
bara svo ósanngjarnt. Að kerfið
velji að hjálpa þessum og þessum
og þessum. En ekki þessum! Og
sá einstaklingur á bara að sætta
sig við að fá í andlitið að það sé
ekki sjálfgefið að eignast börn.
En það er bara ekki sjálfgefið
fyrir neinn.“
Jóhanna María vill leyfa stað-
göngumæðrun í velgjörðar-
skyni. Skýrsla hefur verið gerð
um málið og stjórnarflokkarnir
eru tilbúnir með frumvarp sem
byggt er á þeirri vinnu. Þar er
vilji til að leyfa staðgöngumæðr-
un í velgjörðarskyni. Frumvarp-
ið á eftir að fara fyrir þingið og
vonar Jóhanna María að fólk sé
tilbúið að líta á málið frá öllum
hliðum.
„Fólk dettur gjarnan í gírinn
og talar um þriðja heims ríki,
framleiðslu á börnum og sölu á
líkama kvenna. En við erum að
skoða þetta á allt öðrum forsend-
um og hér á Íslandi þar sem við
höfum fyrsta flokks heilbrigðis-
þjónustu og sálfræðinga til að
aðstoða við ferlið. Það verður að
setja þetta mál í samhengi við
aðra þjónustu sem pörum sem
glíma við ófrjósemi er boðið
upp á. Konur sem fá gjafaegg fá
önnur erfðaefni, ganga með barn-
ið og eiga það eftir meðgöngu án
nokkurra vandræða. En ef einhver
gengur með þitt barn, þitt erfða-
efni, fyrir þig, þá er þetta orðið að
einhverju sem má ekki tala um og
málið er kæft í fæðingu.“
Nauðsynleg lagasetning
Jóhanna María segir mikilvægt
að setja lagaramma utan um stað-
göngumæðrun, hvort sem hún
verður lögleidd hér á landi eða
ekki. „Það eru börn að koma til
Íslands sem hafa fæðst með þess-
um hætti erlendis. Það mun halda
áfram. Ættingjar úti eru búnir að
afsala sér rétti á barninu og hafa
ekkert tilkall þannig að börnin
koma hingað og við verðum að veita
þeim ríkisborgararétt. En þau eiga
í raun enga foreldra ennþá og það
verður til mikill vandræðagangur
í kringum það. Það er vont að láta
fjölskyldur rúlla í dómskerfinu í
nokkur ár og þarna þarf að grípa
inn í og setja lög.“
Snýst ekki um mína möguleika
Mögulega hefði Jóhanna María
ekkert farið að íhuga barneignir
og fjölskyldulíf ef hún hefði ekki
fengið fréttirnar fyrir fjórum
árum um að hún eigi ekki sama
möguleika og aðrir. Í raun höfðu
fréttirnar þau áhrif á hana að
henni fannst hún þurfa að nota
stöðu sína á þingi til að vekja
athygli á málinu.
„Fyrir mér snýst þetta ekki um
mig og mína möguleika. Fréttirn-
ar sem ég fékk þegar ég var tví-
tug höfðu þau áhrif á mig að ég
hellti mér út í rannsóknarvinnu
og starfið hafði mikil áhrif á það.
Mér finnst vera galli á lögunum
og ég er nú í ágætri stöðu til að
vekja athygli á því. Ég hef fengið
að heyra að ég sé bara að berjast
fyrir þessu af því að það snert-
ir mig. En það er alls ekki þann-
ig. Ég vil ekkert endilega nota
staðgöngumæðrun í framtíðinni,
kannski langar mig að ættleiða,
kannski langar mig bara ekki
að eignast börn. En ég get svo
sannar lega sett mig í þessi spor,“
segir Jóhanna María og vonar að
það muni skapast almennileg
umræða um málið þegar frum-
varpið verður tekið fyrir á þingi.
„Ég vona að hún verði litríkari
en bara já eða nei, að rætt verði
hvað sé hægt að gera til að bæta
frumvarpið og umræðan verði
tekin á hærra stig. Ég vil endi-
lega bæta þetta frumvarp eins
mikið og hægt er.“
Dreymir um gott bú
En Jóhanna María er ekki á þeim
stað í lífinu að hún hugi að barn-
eignum. Hún lætur duga að fá
frændsystkini sín lánuð, dekra
þau og knúsa, og svo skila þeim
aftur til foreldranna. Þessa dag-
ana er hún ein á risastórri jörð að
vinna frá morgni til kvölds við að
standsetja bú fjölskyldunnar. Hús
bróður hennar þarf að vera til-
búið áður en grunnskólinn hefst
og hún vonast til að fjósið verði
tilbúið í október þannig að for-
eldrar hennar geti flutt sig yfir.
Tvö ár eru eftir af kjörtímabilinu
en hún segir of snemmt að segja
til um hvort hún fari aftur í fram-
boð. Í haust mun hún þar að auki
hefja nám í miðlun og almanna-
tengslum við Bifröst. „Ég ætla
að taka námið hægt og rólega
með vinnunni. Ég er á þeim
aldri að maður ætti að vera að
klára háskóla – ef ég hefði hald-
ið dampi. Ég hef mikinn áhuga á
að tengja þetta nám inn í félags-
kerfi landbúnaðarins. Það gæti
farið vel með því að búa hér og
taka við búinu, ef þetta gengur
upp eins og okkur dreymir um.
Svo sagði einhver að lífið væri
ekki búið eftir fertugt þannig að
ég held nú að ég hafi nógan tíma,
aðeins 24 ára gömul.“
Í FJÓSINU Jóhanna María vinnur að því að hreinsa út úr fjósinu og hlöðunni til að geta sett upp nýjar innréttingar. Eftir örfáar vikur hefst þing á ný og því á hún annasama daga fram undan. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ég hef fengið að
heyra að ég sé bara að
berjast fyrir þessu af því
að það snertir mig. En það
er alls ekki þannig. Ég vil
ekkert endilega nota
staðgöngumæðrun í
framtíðinni, kannski
langar mig að ættleiða,
kannski langar mig bara
ekki að eignast börn. En
ég get svo sannarlega sett
mig í þessi spor.
15. ágúst 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
1
4
-0
8
-2
0
1
5
2
1
:3
3
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
8
-7
1
8
0
1
5
C
8
-7
0
4
4
1
5
C
8
-6
F
0
8
1
5
C
8
-6
D
C
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K